Vísir - 10.06.1961, Blaðsíða 16
YÍSIR
Laugardagur 10. júní 1961.
Á morgun, sunnudag, á Melavöllurinn í Reykjavík 50 ára afmæli. í tilefni að’ Jjví birtum við
þossa ágætu íþróttamynd, en að öðru leyti varðandi afmælið, vísast til Íþróttasíðunnar, bls. 2.
Stærsta myndlistar-
sýningin í Reykjavík.
Stærsta myndlistarsýning,
I sem hér hefir verið haldin,
I hefst í byrjun septembcr, Sam-
norræna myndlistarsýningin,
| og þátttakendur af íslands
! hálfu verða þcssir, að því er
I Vísir hefir fregnað:
I Málarar: Jón Stefánsson,
Sverrir Haraldsson, Einar
Baldvinsson, Jóhannes Jóhann-
I esson og Eiríkur Smith.
í Svartlistarmenn: Bragi Ás-
I geirsson, Hörður Ásgeirsson og
Svavar Guðnason.
Slys í gær.
Síðdegis í gær varð slys á
Urðarbraut, er sjö ára gamall
drengur varð fyrir bíl.
Drengurinn, Sigursveinn Óli
Karlsson, var strax fluttur i
slysavarðstofuna. Slysið, skeði
um sexleytið í gær, en um átta
leytið höfðu læknar hann enn
til meðferðar, og voru meiðsli
hans þá enn ekki könnuð til
hlítar. Sögðu þedr að drengur-
inn myndi hafa hlotið mikið
höfuðhögg, en allt benti til að
það væri ekki alvarlegs eðlis.
Myndhöggvarar: Dómnefnd,
sem eru myndhöggvararnir
Ásmundur Sveinsson, Magnús
Á. Árnason og Sigurjón Ólafs-
son hefur boðið Ólöfu Pálsdótt-
ur og bræðrunum Guðmundi
og Jóni Benediktssonum þátt-
töku í sýningunni. Myndhöggv-
aradeild Félags ísl. myndlistar-
manna er fámenn, og dómnefnd
armenn hafa ekki ákveðið um
sína þátttöku fyrr en séð verð-
ur,hvernig „skúlptúr“-verkum
hinna Norðurlandanna verður
komið þolanlega fyrir.
Sýningin verður haldin í
tveim húsum, Listasafni ríkis-
ins og í Listamannaskálanum.
Málverkin verða sýnd 1 Lista-
safninu , svartlistarmyndirnar
í Listamannaskálanum og högg-
myndir og annar „skúlptúr“
verður á báðum stöðunum.
Af íslands hálfu hefir orðið
að takmarka þátttökuna mjög
mikið til að gefa gestunum sýn-
ingarrúmið fyrst og fremst Og
fremur mun hafa verið valin
leiðin að hafa íslenzka þátttak-
endur frá, en allt að 5 verk
eftir hvern, til að gefa svolítið
meiri heild yfir verk einstaks
þátttakenda.
Hékk í bíl og
slasaðist.
Það slys varð sl. miðvikudag
að 12 ára drengur, sem hafði
gert sér að leik að hanga aftan
í bíl, slasaðist illa.
Slysið skeði á Laugarnesvegi
og bifreiðarstjórinn, sem hlut
átti að máli flutti drenginn
strax í slysavarðstofuna, er
slysið ha'fði skeð, og gaf lög-
reglunni að því búnu skýrslu
um atburðinn. Drengurinn hafði
bæði tognað um hné og særzt
illa á hendi.
Á miðvikudagskvöldið hand-
tók lögreglan tvo drukkna
pilta, sem stolið höfðu skelli-
nöðru þá nokkru áður og ’ekið
hénni drukknir. Þegar þeir
skildu við hana var farartækið
talsvert skemmt, en litlu síðar
voru þeir handteknir og tekið
af þeim blóðsýnishorn.
Stolinn bíll.
- ók upp Frakkastíg og inn
Laugaveg.
Eftir hádegið í gær horfðu
vegfarendur á undarlegan
akstur um götur Reykjavíkur,
þar sem maður ók af Hverfis-
götu upp Frakkastíg og beygði
síðan inn Laugaveg, en hvort
tveggja er samkvæmt lög-
reglusamþykkt Reykjavíkur
stranglega bannað.
Ekki hafðd ökuþórinn farið
langt inn Laugaveginn þegar
bifreið hans stöðvaðist. Fór
hann þá út úr henni og ýtti
aftur á bak, fyrst vestur Lauga
veginn og síðan sömu leið og
hann kom niður Frakkastíg. —
Urðu þá tvær bifreiðir, kyrr-
stæðar, á vegi hans og skall
bifreið hans á þær báðar. —
Hlutu þær allar þrjár mei'ri eða
minni skemmdir.
Þusti nú að fólk úr ýms-
um áttum, en ökumaðurinn
sjálfur lét svo um mælt við
áhorfendur að hann aatíaði að
víkja sér frá til að gefa lög-
reglunni skýrslu um óhöppin.
Sú skýrsla kom þó aWrei,
og ökumaðurinn hefur heWur
ekki komið í leitimar.
Hins vegar upplýstist það
nokkru seinna, að bifreáðinni
hafði maðurinn stolið niður við
höfn, í nánd við Verbúðimar.
Bfleigandánn var að virma þar
í skipi og þegar hann ætlaði
að huga að bíl sínum var hann
horfinn.
Lögreglan leitar nú þjófsins.
Jón Engilberts opnar
sýninp í Hafnarfiröi.
Jón Engilberts hefir verið
boðið að halda sýningu í Iðn-
skóla Hafnarfjarðar, og verður
sýningin opnuð í dag kl. 5 síð-
degis.
Hér er um að ræða nýjung í
listalífi Hafnarfjarðar, því að
áformað er að þetta verði upp-
haf að því, að listamönnum,
kunnum sem ókunnum verði
boðið að halda sýningar í stof-
um Iðnskólans um sumarmán-
uðina, í sumarleyfum skólans.
Blaðamönnum var í gær boð-
ið að skoða myndirnar, sem Jón
Engilberts hefir komið fyrir á
veggjum í tveim stofum skólans
og gangi, og eru það alls 21
vatnslitamynd, málaðar á
ýmsum stöðum á landinu. Þar
er t.d.: Bátur ókominn að landi,
Síðasti bærinn í dalnum, Leik-
ur að morgni, Svell er yáxgnípu,
Kvöld á hausti. Frá^ ^ijæfells-
nesi, Úr Skagafirði o. fl. og ein
mynd er þar, sem einn af okk-
ar ágætustu tónListarmönnum
gaf nafnið Tónlistin.
Skólastjóri Iðnskóla Hafnar-
fjarðar, Sigurgeir Guðmunds-
son, sagði í gær við blaðamenn,
að Hafnfirðingum væri mikill
heiður sýndur af Jóni Engil-
berts listmálara að sýna í húsa-
kynnum skólans fyrstur utan-
bæjarmanna. Þar hefir aóeins
ein sýning verið haldin áður,
sýning Sveins Björnssonar,
sem búsettur er í Hafnarfirði
og hélt þarna sína fyrstu vatns-
litamyndasýningu í s.l. mán-
uði.
Þing norrænna
rithöfunda.
Þing norrænna rithöfunda
var sett >' hátíðarsal Háskóla
íslands í gær kl. 15. Formaður
íslenzka rithöfundasambands-
ins Stefán Júlíusson hélt setn-
ingarræðu, menntamálaráð-
lierra Gylfi Þ. Gíslason flutti
ávarp, en varaform. sænska
rithöfundasambandsins Jan
Gehlin talaði fyrir hönd cr-
lendu gestanna.
Þingið kom síðan saman í
Oddfellowhúsinu tii funda. —
Fyrsta málið á dagskrá var um
breytingar á almennum samn-
ingum rithöf. og útgefenda á
Norðurlöndum. — Umræðum
þessum lauk í gær.
í dag var boðaður fundur í
Þjóðleikhúskjallaranum og var
fyrsta málið um þýðingar á
norrænum bókmenntum í
Rússlandi. Meðal annarra mála
sem til umræðu verða á seinni
fundum eru: Skólabækur og-
hin nýju höfundalög á Norður-
löndum, sérstaða finnskra og
íslenzkra bóka á samnorrænum
bókamarkaði og loks félagsleg
hagsmunamál rithöfundasam-
takanna.
ILUtdn
Hægviðri,
skúraleiðingar
en bjart
á milli.