Vísir


Vísir - 26.06.1961, Qupperneq 3

Vísir - 26.06.1961, Qupperneq 3
JÆánudagur 26. júní 1961 VfSIR 3 i Gaitskell. Hemingway. Bresnev. Jens Otto Kragh. Stevenson. Frondizi. Nasscr. Tsjombe. Ben Gurion. Molotov. Erhard, Að jiessu sinni birtum við aðeins tcikningar í mynd- sjánni af ýmsum þeim mönn um, sem mikið hafa komið við sögu í erlendum frétt- um undanfarið. Lesendur hafa vafalaust séð ljósmynd- ir í Vísi af öllum þessum mönnum og kannast við svip- inn. Hollenzkur teiknari hef- ir dregið. fram á skoplegan máta helztu einnkenni hvers manns og við erum þess full- vissir, að þið hafi gaman af að sjá árangurinn. Stjórnmálamenn í augum teiknarans. Stalin bar ábyrgðina. Svara Mtússum í Beriínarmálinu Rauða stjarnan, málgagn Rauða hersins sagði fyrir þrem ur dögum að Stalin hefði átt alla sök á óförum þeim sem rússneski herinn fór fyrir þýzka hernum í síðari heims- .styrjöldinni. Þýzki herinn komst sem kunnugt er upp að borgarhlið- um Moskvu, er Stalin sagður . bera höfuðábyrgðina. Þess er jafnframt getið í sömu grein, að Krúsév, sem þá var aðstoð- armaður Bodenny marskálks hafi hvað eftir annað reynt að fá Stalin til að skipta um skoð- un og gera eitthvað jákvætt. Stalin mat hernaðarástandið rangt, sagði Rauða stjarnan. Stalin er einnig sakaður um að eiga höfuðsökina á því að vörn Rússa á Kiev-víglínunni 1941 varð að engu. Þarna misstu Rússar eina af stærstu her- deildum sínum og næstum alla Úkrainu fyrir austan Dnjepr segir blaðið. Urðu að fresta brúðkaupinu. Bandaríska kvikmyndaleik- konan Laureen Bacall og leik- arinn Jason Robards komu til Vínar fyrir skömmu í þeim til- gangi að gifta sig en urðu að hverfa heim án þess að geta gengið fyrir altarið. Austurrísk stjórnarvöld höfðu ekki fengið í hendur andláts- vottorð Humphrey Bogarts, sem Bacall var gift, þar til hann lézt. Og ekki höfðu þau heldur feng- ið vottorð um fráskilnað Rob- Bandaríkjastjórn hefir í undirbúningi svar við stefnu- yfirlýsingu Rússa í Berlínar- málinu. Uppkast er þegar til- búið og meginatriði liggja ljóst fyrir. Ekki er ákveðið hvenær svar- ið verður sent, en það á að verða mjög ítarlegt. Vestur- veldin eru eindregið sammála um stefnuna. Þau telja, að ekki komi til mála að slaka nokkuð á. Kohler, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hefir afhent fulltrúum Breta, Frakka og Vestur-Þýzkalands uppkast að svarinu. Fréttamenn segja, að fulltrú- ar Vesturveldanna hafi rætt um uppkastið á sameiginlegum fundi og síðan lýst yfir ein- dregnu samkomulagi. Lord Home, utanríkisháðherra Breta, sagði í London, að Vesturveldin væru reiðbúin til að ræða Berlínarmálið við Rússa, en því aðeins, að Rússar viður- kenni skyldur Vesturveldanna við íbúa borgarinnar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.