Vísir - 26.06.1961, Page 4

Vísir - 26.06.1961, Page 4
1 v r s i r Mánudagur 26. júní 1961 Tvíkrossað séní. Heyrnarlaus á hægri löpp og haltur á vinstra eyra. Séní eru allsstaðar í heiminum, einnig á ís- landi. Flest hafa þó einhverja annmarka, og þá eru þau kölluð mis- heppnuð séni. Ekta séni kemur naumast fram hjá hverri þjóð nema einu sinn á öld — eða einu sinni á 10 öldum. Ég hitti mann úti á götu nýlega, sem minnir mig allt- af á brot úr séníi, kannski bára misheppnuðu séníi, ég veit það ekki. Maðurinn heit- ir Bjarnþór Þórðarson, kom- inn af miklum og merkum Mýraættum og fæddur ein- hversstaðar þar efra. Ég réð- ist að Bjarnþóri og spurði hvort hann væri séní, eða bara eitt af þessum mis- heppnuðu. — Því miður bara mis- heppnað séní, svaraði Bjarn- þór. Það gera krossarnir. — Krossar! Hefurðu verið krossaður. Eða eru farinn að dútla við trúarbrögð? — Ekkert af neinu þessu. En ég hef borið tvo krossa, annan frá fæðingu, hinn frá því er ég var átta eða níu mánaða? — Hverskonar krossar eru það? — Annar er sá, að ég er örvhentur, en var vaninn á hægri í uppvextinum. Það háði mér afskaplega. Seinna heyrði ég lækna segja, að það sé glæpur, að venja örhent börn á hægri hönd. Það víxl- ar heilastöðvunum, segja þeir. — Þú berð tvo krossa. Hver er hinn? — Ég fékk heilahimnu- bólgu þegar ég var á 1. ald- ursári. Við það missti ég heyrnina á hægra eyra. Þetta tvennt ruglar mig í öllu jafn- vægisskyni. Ég var líka tal- inn bjánalegur í viðbrögðum þegar ég var lítill. — En samt enginn bjáni í raun og veru? — Ekki eins mikill og ég leit út fyrir. Ég reyndi af fremsta megni að sigrast á örðugleikunum og tókst Það á ýmsa lund. Ég kenndi sjálf- um mér að lesa þegar ég var aðeins sex ára. — Hvað segirðu? Kennd- irðu sjálfum þér að lesa? — Já, að því undanskildu, að raamma kenndi mér staf- ina. Svo var ég orðinn flug- læs áður en nokkur vissi af. Fullorðna fólkið skildi ekk- ert í þessu. — Datt mér ekki í hug, að þú værir séní! — Já, og þegar ég var mánuði betur en 8 ára, gerði ég það upp á grín, að fara í inntökupróf með bróður mínum, sem var kominn hátt á 10. ár. Þá var skólaskyld- an miðuð við 10 ára aldur, a.m.k. í minni sveit. eins og forðum, þegar þú lærðir að lesa? — Svona að mestu. Eins fræðara er mér þó skylt að minnast með miklu þakklæti frá þessum árum. Sá var Þór- hallur Þorgilsson, sem nú er látinn. Við fórum á 30 klukkustundum — og það léttilega — yfir alla þá frönsku, sem kennd er í Menntaskólanum. Þórhallur var óviðjafnanlegur meistari. — Hvernig gekk? — Ég komst upp, en bróð- ir minn féll. Svo lauk ég fullnaðarprófi 12 ára, í stað- inn fyrir 14 ára, eins og venja var til. Sama vor tók- um við bræður próf upp í menntaskólann í Reykjavík. — Svo þú ert þá gamall menntskælingur? — Nei, svo er guði fyrir að þakka, að það varð ajdrei. Ég ofreyndi mig við nám vorið sem ég tók inntöku- próf, var sífellt illt í hausn- um og leið illa. Fór til lækn- is og læknirinn sagði, að ég mætti ekki líta í bók næstu þrjú árin. Ég varð að hætta við menntaskólann. Ég var bóksækinn, gat aldrei séð bækur í friði og las í trássi við öll læknisboðorð. Mér datt í hug að reyna við gagn- fræðapróf svona utanskóla. — Og það tókst? — Tókst, segirðu! Ég féll, svo reyndi ég aftur og féll aftur. í bæði skiptin á stærð- fræðinni. Það á að banna svoleiðis fög í skólum. Ég reyndi samt í þriðja sinn, og þá tókst það — með naum- indum. Þegar ég labbaði út úr Menntaskólanum um vorið með prófskírteinið upp á vas- ann og var kominn niður i ’ Lækjargtöu, sneri ég hausn- um aftur, steytti hnefann í áttina að skólanum og sagði að hér eftir skyldu þeir ekki fella mig á punktadellunni. — Punktadella! Hvað er það? — Geómetrían hans Ólafs Dan og allt það. — Var náminu þar með lokið? — Ekki aldeilis. Ég puð aði fyrir brauði og kartöfl um á sumrin — vegna mag ans, skilurðu, en las á vetrin Utan skóla að sjálfsögðu Tveim vetrum seinna lauk ég stúdentsprófi. — Kenndirðu sjálfum þér, Ég tek ekki grynnra í árinni. — Tókstu gott frönsku- próf? — Það man ég ekki. En „fílu“-veturinn minn í há- skólanum 1934—351 var ég sæmdur verðlaunum fyrir frammistöðu mína í frönsku. — Og síðan kennirðu eink- um frönsku? — Ég kenni yfirleitt flest vestan-tjalds-mál. Stundum koma líka guðfræðingarnir úr háskólanum til mín og biðja mig um hjálp í grísku. — Þú ert þá eins konar málaskóli? — Það má kalla það svo — samt ekki Mímir. Annars hef ég aldrei auglýst nema einu sinni fyrir rúmum 20 árum í Mogganum. Sú aug- lýsing var seinna tekin upp í kennslubók í íslenzku. Hún hefur á einhvern hátt þótt klassísk. En þó eg auglýsi ekki tungumálakennslu sjálfur, hefur frændfólk mitt stund- um gert það í mínu nafni og að mér fornspurðum. Það er gert til að pína mig til að vinna. — Hefurðu marga nem- endur? — Nógu marga. Þeir finna einhvernveginn leiðina til mín, þessi grey. Ég hef haft nemendur úr flestum fram- haldsskólum í Reykjavík. Hafnarfirði líka. Ennfremur frá menntamálunum á Akur- eyri og Laugarvatni. Já, það er stundum mikið að gera — Hvað gerirðu annað en kenna? — Sem minnst. Ég fór einu sinni á síld, meira að segja tvö sumur í röð. En það varð stutt í því síðara. — Hvernig þá? — Það skeði hátragiskt at- vik um borð í síldveiðiskip- inu bastilludaginn 14. júli 1950. Ég stakkst á hausinn og meiddi mig. Meiddi mig á ökla. Hann blánaði upp, og félagar mínir héldu að ég hefði brotnað. Þeir fóru með mig í skyndi inn til Seyðis- fjarðar. Síðan var flogið með mig til Reykjavíkur frá Eg- ilsstöðum. Mér leið bölvan- lega, Ég fór til læknis og staulaðist við staf. Fór til hans dag eftir dag. Einn dag- inn tók hann stafinn af mér og hermdi eftir mér, sagði mér svo að koma daginn eft- ir. Ég kom aldrei aftur. — Fórstu þá til annars læknis? — Annars læknis! Hvað hefði það þýtt? Bara sama sagan endurtekið sig. Nei, takk. — Hvað gerðirðu þá? — Hélt áfram að staulast við prikið mitt, fór til trygg- inganna og heimtaði örorku- bætur. — Og fékkst þær? — Já, fyrst. En ekki lengi. Þeir spurðu mig, helvítin þau arna, hvort ég ætlaði mér að lifa á löppinni það ' sem eftir væri ævinnar. Það fannst mér hámark ósvífn- innar. — Og var það þá, sem þú brauzt prikið í bræði þinni og hefur gengið óhaltur alla tíð síðan? maður. Munurinn’ á hóf- drykkju- og kófdrykkju- mönnum er sá, að hinn fyrr- nefndi drekkur sprúttið eins og hann eigi með það, stillir drykkju sinni í hóf, og hætt- ir þegar hann hefur fengið nóg. Kófdrykkjumaðurinn hefur hins vegar hlutverka- skipti við áfengið, þannig, að það gleypir hann, en hann ekki það. Þetta er allt sam- an merkilegt rannsóknarefni. En ég er hófdrykkjumaður, hvað sem öðru líður. . — Þú lézt einu sinni vaxa á þér skegg, Bjarnþór, og varst þá kallaður Jesúbróðir eða eitthvað þvíumlíkt. — Já, ég þurfti að láta rífa úr mér nokkrar tennur, og til að hlífa mublufátækt- inni, lét ég vaxa á mér skegg á meðan. En þegar ég var búinn að fá mér gervikjaft og búinn að sætta mig nokk- urn veginn við hann, fór ég til rakara og bað hann að merla framan úr andlitinu á mér. Þegar ég stóð upp af stólnum hjá honum, var skeggið enn á sínum stað, hann sagðist ekki raka jafn fallegan brúsk af jafn Ijótu fési. Voillery Ambassador sagði líka að skeggið á mér Bjarnþór Þórðarson. — Hver segir það? Þetta er svívircftleg lygi! Ég hef aldrei náð mér í öklanum og geri sennilega aldrei. En þessar lygar eru eftir öðru. Ég veit engan mann meira rægðan né logið upp á held- ur en rnig. Ég veit líka hvað- an þetta er komið. Það eru kennaraskælingarnir, sem hafa lagt mig í einelti, Þeir hafa alltaf gert það. Þeir segja, að ég sé fyilibitta og idíót. — Ég hef líka alltaf heyrt að þú værir fyllibytta. — Nei, ég er hófdrykkju- væri eins og á frönskum að- mírál. — Það hefur ekki verið tilgangurinn með skegginu, að hafa það sem beitu fyrir kvenfólk? — Nei, ég hef aldrei nennt að eiga við kvenfólk. Það er líka allt of smitað af þess- ari style-menningu, sem alls- staðar grassérar. Svo vilja þær heldur ekkert skipta sér af manni, sem er „heyrnar- laus á hægri löpp og haltur á vinstra eyra“, eins og ég er. Nei, þar er verkfajl á báða bóga. Þ. J.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.