Vísir - 26.06.1961, Page 5

Vísir - 26.06.1961, Page 5
Mánudagur 26. juní 1961 V I S I R í þáttum þessum mun verða tekið til meðferðar flest það, er viðkemur hí- býlum. Trúlega eru hús- gögnin það fyrsta, sem keypt er í nýja Ibúð, þvínæst gluggatjöld og teppi. En lítið er hægt að athafna sig ef engir lampar, hnífapör, diskar, pottar, glös o. fl. eru við liendina. Þegar allt þetta er komið á sinn stað má segja að allt hið nauðsyn legasta sé fengið. En samt vantar eitthvað, eitthvað, sem gerir vistar- veruna að heimili en ekki einungis íverustað. Það má gjarnan vera eitthvað á veggnum, í glugganum, á borðum og uppi á hillum og þá er valið úr veggtepp- um, málverkum, myndum vösum, skálum, öskubökk- um, kertastjökum, 'blómum o. fl., o. fl. Þessir hlutir ættu helzt ekki að vera keyptir í einni striklotu heldur smátt og smátt þegar vandlega er bú- ið að skoða þá og ímynda sér, hvernig þeir fara með því, sem fyrir er, og þtta ómak borgar sig, því að allir þess- ir hlutir eiga ríkan þátt í að gefa heimilinu hlýju og persónuleika. Hér munu framvegis sýnd- ar myndir af húsgögnum, teiknuðum af innlendum og erlendum húsgagnaarkitekt- um. Jafnframt verða sýndar myndir af ýmsum öðrum heimshlutum og jvonandi verða þeir einnig jöfnum höndinn innlendir sem er- Icndir. Kertastjakarnir á með- fylgjandi mynd eru teiknað- ir af hjónunum Nönnu og Jörgen Ditzel, sem bæði eru arkitektar. Þessar mjúku og tæru línur kertastjakanna eru ífullri andstöðu við „mass ivt“ og stíft kertið, en sam- eiginlega mynda þau létta og listræna heild. Einn fremsti húsgagna- arkitekt Dana er Börge Mo- gensen. leg og látlaus, en samt mjög persónuleg, og oft teiknar hann einnig áklæði þeirra. hPMH mynd eru úr eik og teiknuð 1957—58, en vefnaðurinn er teiknaður af Börge Húsgögn hans eru þægi- Húsgögnin á meðfylgjandi Mogensen og Lis Ahlmann Þessi húsgögn eru einnig teiknuð af Börge Mogensen. Hægt cr að stækka borðið þannig að tíu manns geti set- ið við það. Mynstruð tjöldin, sem eru í tveimur bláuin litum, eru mjög ákjósanlegur rammi um hin óbrotnu Ijósu eikar- húsgögn. Lampinn er teiknaður af Poul Henningsen. Þessi lampi, sem er úr möttum kopar og hvítmálað- ur að innan, er einn af hin- um frægu PH lömpum, en svo nefnast lampar þeir, sem teiknaðir eru af Paul Hen- ningsen arkitekt, sem um 35 ára skeið hefir verið einn ^ fremsti og hugmyndaríkasti ^ sérfræðingur Norðurlanda á þessu sviði, sem og ýmsum öðrum sviðum nýtízku hús- , búnaðar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.