Vísir - 26.06.1961, Qupperneq 16
VÍSIR
Mánudagur 26. júní 1961
Slys á
togara.
í morgun sáu mcnn reyk
mikinn leggja frá skipi sem
kom inn Faxaflóa. Var það
brezka lierskipið Ulysses á
Ieið til Reykjavíkur með
slasaðan mann. Þykkan
reykjarmökk lagði frá reyk-
háf skipsins frá því að það
kom fyrst í ljós og mun það
hafa siglt eins og vélarnar
framast gátu knúið það á-
fram. Sjúklingurinn er tog-
arasjómaður og hafði liann
misst framan af handlegg.
Eskifjarðar-
bátar á síid.
Frá fréttaritara Vísis. —
Eskifirði, sl. föstudag.
Eskifjarðarbátar eru sem óð-
ast að fara á síld. Þrír eru þeg-
ar farnir, en liinir fara væntan-
lega bráðlega.
í gærkveldi fór Seley á veið-
ar, Björg í fyrrakvöld og Guð-
rún Þorkelsdóttir s.l. mánudag.
í kvöld fer Vattarnesið á veið-
ar. Hólmanesið hefur verið í
viðgerð í Noregi undanfarið, en
er væntanlegt til landsins á
næstunni og fer þá strax á
síldveiðar. Víðir hefur verið í
leigu í Stykkishólmi fram að
þessu en er nú á leið austur og
fer strax á veiðar. Einir fer
væntanlega á morgun.
Margir trillubátar, um 20—
30 talsins hafa stundað hand-
færaveiðar hér úti í Reyðarfirði
undanfarið og aflað ágætlega.
Aflinn fer í frystihúsið á Eski-
firði.
Laug á lög-
reglamenn.
Tveir lögregluþjónar í Osló
hafa verið sýknaðir af ákæru
um nauðgun.
Hafði gift kona kært tvo lög-
regluþjóna, sem hún sagði, að
hefðu skipað henni upp í bíl
þann, er þeir voru í við skyldu
störf, og hefðu þeir síðan
nauðgað henni. Málið kom fyrir
kviðdóm með þrem konum og
sex körlum, og sýknaði hann
hina ákærðu. Þeir hafa nú til-
kynnt, að þeir muni fara í
skaðabótamál við konuna.
Hjúskap Ingrid Bergman og
Roberto Rossellinis lauk op-
inberlega 17. júní, er dóm-
stóll í Róm ómerkti hann.
Tvö skip leigð fil að flytja
síld af miðum fil verksmiðja*
Þau geta samtals borið
7000 mál í einni ferð.
Síldarverksmiðjan á Hjalteyri
og Krossanesverksmiðjan hafa
nú leigt tvö skip til síldarflutn-
inga.
Var byrjað á að flytja síld
til verksmiðjanna í fyrra með
flutningaskipum, og gafst það
vel. Er annað skipið Aska, sem
var í síldarflutningum í fyrra,
en hitt heitir Tarin og er einnig
norskt.
Tarin getur borið 5000 mál,
en Aska 2000. Aska er í flutn-
ingum með sement og tunnur
og annan varning, en Tarin ligg-
ur nú á Húnaflóa og bíður eftir
því að fá síld.
Skipin hafa bæði krabba lil
að losa síldina úr bátunum. Er
ekki hægt að loSa síld úr bát-
um nema í landvari, og munu
skipin því liggja við land eða
inni á fjörðum, eins nærri síld-
armiðum og kostur er. Til er
önnur leið að losa sild úr bát-
um, en það er með dælu. Slíkt
myndi að líkindum vera heppi-
legra, þar eð dæla mætti síld- (
inni úr bátunum úti í rúmsjó, j
en dælurnar eru langtum dýrari I ^uSvelli
18.30 með
Flugfélagið fékk nýja
flngvél í gær.
í gær bættist 'Flugfélagi Is-
lands nýr farkostur, Cloudmast
erflugvélin SKÝFAXI, sem kom
heim og lcnti á Reykjavíkur-
klukkan rúmlega
ar flugvél á leigu þá um tlma.
Leiguflugvélin er farin fyr-
ir nokkrum dögum.
Hin nýja Cloudmasterflug-
vél var afhent Flugfélagi ís-
og var þvi ekki
ráðj að fá þær
en krabbarnir,
horfið að því
að sinni.
Hjalteyrarverksmiöjan er bú-
in að taka á móti 2000 málum,
en til Krossaness hafa borizt
um 600 mál. Nokkuð hefur ver-
ið saltað á báðum stöðum.
anborðs.
Eins og sagt var frá í fréttum
fyrr í sumar, keypti Flugfélag
íslands Cloudmasterflugvél af
SAS, en þar sem afhending var
ákveðin síðari hluta júnímán-
aðar, tók Flugfélagið sams kon-
Síðdegis á laugardag gerði dembu mikla hér í bænum, svo að segja má, að allt hafi farið
a flot. Til dæmis stífluðust niðurföll við Austurstræti, svo að gatnamótin við Pósthússtræti
voru eins og hafsjór yfir að líta. Myndin hér að ofan er tekin þar, og er maður að reyna að
losna um stíflu í niðurfallinu, til þcss að „stöðuvatnið“ geti streymt út í sjó.
áttatíu farþega inn-1 lands á Kastrupflugvelli við
Kaupmannahöfn s.l. laugardag.
Frú Ingibjörg Gíslason, kona
Bergs G. Gíslasonar stórkaup-
manns, gaf flugvélinni nafnið
,,Skýfaxi“, en það er önnur flug
vél Flugfélags íslands sem ber
það nafn. Hin fyrri var Kata-
línaflugvél, sem tekin var út
úr flugi fyrir rúmlega tveim
árum síðan og reyndist alla tíð
hið mesta happafley.
Sem fyrr segir er Skýfaxi af
sömu gerð og leiguflugvélarnar,
sem Flugfélag íslands hefur
haft á leigu frá SAS að und-
anförnu.
Innréttingu flugvélarinnar
hefur samt verið breytt veru-
lega, með tilliti til aðstæðna.
Farþegarými rúmar áttatíu far-
þega. Það er mjög bjart og vist-
legt.
Er Skýfaxi lenti á Reykjavík-
urflugvelli í gær, afhenti Soffía,
dóttir Arnar Johnson, Jóhann-
esi R. Snorrasyni flugstjóra
blómvönd. Þá afhenti Örn Ó.
Johnson forstjóri frú Ingibjörgu
Gíslason blóm og bauð áhöfn
og farþega velkomna. Flugstjóri
í þessari fyrstu ferð heim var
Jóhannes R. Snorrason, fíug-
maður Hörður Sigurjónsson og
leiðsögumaður Axel Thoraren-
sen.
Fyrstasíld
ÞEIR STJORNI STYRKTARSJ0Ð-
UNUM SEM í ÞÁ GREIÐA.
Tíminn segir í gær í lcið-
ara að eðlilegt sé að styrkt-
arsjóðir verklýðsfélaganna
séu einungis undir stjórn fé-
laganna ,þar sem það séu ein-
göngu verkamennirnir, sem
leggi í þá fé. Gefur blaðið í
skyn að því ættu vinnuveit-
endur ekki að vera að þrjósk
ast við að heimta fulltrúa í
stjórn styrktarsjóðs Dags-
brúnar,hcldur leysa verk-
fallið.
Þessi ummæli Tímans eru
álíka gáfuleg og önnur skrif
blaðsins uin verkfallsmálin.
Sannleikurinn er sá að vinnu
veitendur munu greiða einir
milljóna framlag í styrktar-
sjóð Dagsbrúnar hér í Rvík.
í leiðaranum segir blaðið
að eðlilegast sé að sjóðirnir
séu undir stjórn þeirra sem
leggja í þá fé. Samkvæmt
því ættu vinnuveitendur að
fara með meiri hlutann í
styrktarsjóð Dagsbrúnar, ef
ekki sitja þar einir að völd-
um! Fram á það fara þó at-
vinnuveitendur ekki, heldur
aðeins að þeir fái einn mann
af þremur í stjórnina.
Breti í landhelgi
Það er langt síðan brezkur
togari hefur verið á veiðum
vð Búðahraun í Faxaflóa.
Togarinn Sir William Hardy
er samt á þessum slóðum
núna, en ætlar ekki að taka
ncma eitt hol og fara síðan.
Þetta cr fiskiðnaðarrann-
sóknarskip, sem þarf að ná
sér í slatta af smáþorski til
að rannsaka. Sótt var um
leyfi til veiðanna fyrir
nokkru og mun skipið koma
til Reykjavíkur í kvöld. —
flutt Út.
Húsavík í morgun.
Fyrsta síldin fór til út-
flutnings frá Húsavík í gær.
Það voru samtals 1160 heil-
• og hálftunnur sem m.s.
Helgafell lestaði hér.
Eitt skip, Pétur Jónsson,
kom til Húsavíkur mcð síld
í gær, samtals 500 tunnur,
sem fengust einhvers staðar
á vestursvæðinu.
Veðurhorfur:
Norðan gola,
léttskýjað. —
Hiti 6-11 stig.
i