Vísir


Vísir - 03.10.1961, Qupperneq 4

Vísir - 03.10.1961, Qupperneq 4
4 VÍSIR Þriðjudagur 3. október 19.61 Sextán ára fagurkeri Theodóra Baldvinsdóttir er 16 ára og siglfirzk. Merki- Ieg stúlka, sem gengur á fjöll og spilar á fiðlu í frí- stundum sínum, hlustar hug- fangin á Beethoven og hrífst af Byron og Ibsen. Þetta er óvenjulegt um 16 ára stúlku. Það er líka annað óvenju- legt urp hana. Hún hefir aldrei komið til Reykjavík- ur fyrr en núna á dögunum. Merkileg stúlka hún Theo- dóra Baldvinsdóttir. — Að hverju fannst þér mest gaman í Reykjavík? — Að labba um göturnar og skoða fólkið og mannlífið. Það er allt öðruvísi en heima á Siglufirði. — Hafðirðu hugsað þér Reykjavík eins og hún er? — Nei, allt öðruvísi. En eg varð samt ekki fyrir nein- um vonbrigðum. Gæti vel hugsað mér að eiga heima í Reykjavík. — Þú gengur í skóla? — Já, Gagnfræðaskóla Siglufjarðar. Tek gagnfræða- próf í vor ef allt gengur sam- kvæmt áætlun. — Ætlarðu að halda námi áfram? — Helzt. — Hvar? — Kannske í Samvinnu- skólanum. — Verða kaupfélagsstjóri? — Ekki frekar það. — Hvers vegna þá Sam- vinnuskólann? — Það er svo fallegt í Bif- röst. Eg vil stunda nám þar sem er fallegt. •— Hvað gerirðu á sumrin? Hefirðu saltað síld? — Eg hefi saltað síld, eg hefi unnið í netaverkstæði og líka í sjoppu. — Hvenær byrjaðirðu að salta síld? — Man það ekki svo vel, sennilega þegar eg var átta ára. En frá 12 ára aldri hefi eg verið fastráðin söltunar- stúlka, þangað til í sumar. Þá saltaði eg ekkert. Það var — Hvað seldist bezt? — Náttúrlega kók. Allir drekka kók. Svo seldi eg líka mikið af sígarettum. — Og kaupmaðurinn ánægður með söluna? — Ekki lét hann neina ánægju í ljós. Hann dró held- eða var það að minnsta kosti á meðan eg borgaði árgjald- ið. Nú hefi eg ekki komið á fund í tvö ár og það getur vel verið að það sé búið að reka mig. — Fyrir fyllirí? — Nei, eg hefi aldrei bragðað áfengi. Eg sleikti einu sinni tappa úr brenni- vínsflösku. Það var vont bragð. Eg held eg geri það ekki oftar. — Hvað gerirðu í frístund- um þínum? — Á veturna spila eg á fiðlu, les og teikna. Á sumr- in geng eg á fjöll. Eg lagði leið mína oft upp í Hvann- eyrarskál þegar eg, var lítil. Núna finnst mér það of hversdagslegt. Eg leita eitt- hvað lengra og hærra, að einhverju nýju. Stundum fer eg á bíó. — Úr því að þú spilar á fiðlu skyldi maður ætla, að þér þætti gaman að hljómlist. — Já, eg hefi mikið yndi af hljómlist Beethovens, Lehmberts og Griegs, og reyndar fleiri. — En eftir hvaða skáld þykir þér mest gaman að lesa. — Þórberg og Kiljan og af ljóðskáldum Davíð og Örn Arnarson. — En útlenda höfunda? — Byron og Ibsen. Þeir eru andlegir risar. Þeir rista djúpt í speki sinni og skáld- skapur þeirra er stórbrotinn og háleitur. Norskt skip sprakk nærri Madagaskar. Theódóra Baldvinsdóttir. líka fyrsta síldarsumarið, sem hefir komið á Siglufirði frá því eg man eftir. — Er gaman að salta? — Já,. stundum. Það er spennandi þegar mikil síld berst á land. Það er mikið líf í tuskunum. Auk þess græðum við peninga. — Er ekki erfitt að græða svona mikla peninga? — Jú, eg hefi orðið þreytt ur ekki neitt af kaupinu mínu. En viðskiptavinirnir voru sumir hverjir leiðinleg- ir þegar þeir lentu á fyllliríi. — Þykir þér ekkert gam; an að fullum körlum. — Nehei! Eg er í stúku. Norska skipið STAR CAR- RIER, 9050 lesta, sprakk í loft upp s.l. laugardag úti fyrir hafnarbænum Diego Suarez á norðurströnd Madagascar. — í lestum skipsins var m. a. mikið magn af dýnamiti. AIls biðu 27 menn bana af völdum spreng- ingarinnar, skipverjar, inn- bornir hafnarverkamenn og franskir sjóliðar. Saknað er um 20 manns. — Fimm skipverjar hlutu meiðsl ig brunasár, en enginn þeirra ;r í lífshættu. Meðal þeirra, er fórust, eru fyrsti stýrimaður og fyrsti vélstjóri. Á skipinu var 37 manna áhöfn, 34 Norðmenn, 2 Spánverjar og einn Finni. — Skipið lá á föstudagsmorgun við hafnargarð og var verið að losa það og kom þá upp eldur í lest, en þar sem enn voru 10 lestir af dynamiti í skipinu, var það dregið út á ytri höfnina og gerði það dráttarbátur úr franska flotanum, en samtímis var unnið áfram að slökkvi- starfinu. Kl. 17 tilkynnti skip- stjóri að elduripn væri slökkt- ur, en 4 tímum síðar varð sprengingin, og skipið gereyði- lagðist. Skipið var með farm til ým- issa hafna á Madagascar. Það hafði verið leigt frönsku skipa- félagi til þessarar ferðar. Yfir 360.000 menn eru nú í vestur-þýzka hemum (Bundeswehr). Botnkrafa, sem enginn botnar í. — í netaverkstæði! Er það ekki karlmannsverk? — Nei, það eru margar stelpur sem hnýta net. Það er ágætt að grípa til þess haust og vor, milli síldarinn- ar og skólans. Við hnýtum í ákvæðisvinnu. — Ertu dugleg? — Nei, eg er ekki dugleg. Eg kjafta svo mikið við hin- ar stelpurnar að eg gleymi mér stundum. — Svo þær eru þá ekkert duglegri en þú. — Eg hugsa að þær séu álíka. — Um hvað rabbið þið? — Um stráka. Stundum líka um annað. ef eg hefi þurft að vaka lengi. Aldrei samt dottið sofandi ofan í tunnuna. — Það er sagt, að það sé slarksamt á Siglufirði um síldartímann? — Það var með allra minnsta móti í sumar. Oft lenda strákarnir í handalög- máli og stelpurnar jafnvel líka. Það eru helmingi hrika- legri slagsmál þegar kven- fólkið slæst. Það er svo grimmt. — Þú vannst í sjoppu í sumar, segirðu? — Já, frá níu á morgnana til sjö á kvöldin. Það var ágætt og eg fekk dágott kaup. Sumir láta sig hafa það að i kref jast landréttinda á tunglinu J og stjörnunum, en Norman j Fuller og Lloyd D. Smith láta sér nægja að krefjast næstum alls þess lands, sem liggur á botni allra hafa og innhafa | heimsins. Það er staðreynd að þeir fé- lagarnir Fuller — 30 ára stál- smiður frá Kaliforníu, hafa lagt inn formlega kröfu hjá fóget- anum í Santa Ana, til neðan- sjávarlands. Þeir eiga heimtingu á því, segja þeir, og alls þess, sem er einhvers virði á eða undir botni hafanna, af þeirri einföldu á- stæðu að enginn hefur nokkru sinni lagt fram slíka kröfu áður. „Við erum engir vitleysingj- ar“, sagði Fuller, og benti jafn- framt á að krafa þeirra var ekki til „lands“ sem er nálægt ströndum hinna ýmsu ríkja og sém þau ríki kalla yfirráða- svæði sín eða landhelgi. „Aðalatriðið er að þetta hefur aldrei verið gert áður. Það hef- ur enginn kert kröfu til alls þessa lands. Eins og nú standa sakir, er ekkert, sem bannar Rússum að setja uþp olíubor- turn rétt utan við þriggja mílna landhelgi Bandaríkjanna eða eitthvað annað, ef þeim býður svo við að horfa“. Fuller. sagði aðalástæðuna fyrir þessari kröfu vera við- leitni til að varðveita réttihdi Bandaríkjanna. Hann sagði að það væri augljóst að málm- námur neðansjávar væru gífur- legar og að þeir Smith væru á þeirri skoðun að ,ef til þess kæmi að þessi auðæfi væru nýtt, ætti hagnaðurinn að renna til líknarstofnana. „Við höfum leitað ráða hjá hópi lögfræðinga, sem sumir eru sérfræðingar í eignarrétti, og þeir segja að krafa okkar virðist fullkomlega lögleg.“ Fuller og Smith halda því fram að krafa þeirra sé ekki gerð í auglýsingaskyni fyrir þá. Fuller sagði að vel gæti farið svo að þeir myndu ekki lifa það að sjá málmnámur verða nýttar á sjávarbotni eins ogþeirhugsa sér það gert, en að þessi krafa þeirra sé fyrsta skrefið í þá átt. „Það er skynsamleg grund- vallarframkvæmd að endur- heimta þessi vannýttu auðæfi í sjónum,“ sagði hann. „Við för- um að þessu á skynsaman hátt í hagnaðarskyni.“ Sérfræðingur stjórnarinnar í sjórétti, sem ekki vildi láta nafns síns getið, var ekki eins bjartsýnn á framgang málsins. Hann sagði að það hafi ávallt verið hefðbundið að úthafið sé öllum frjálst, og að ef krafa þeirra Fuller-Smith yrði rekin áfram, mundi það kosta lang- dregin málaferli fyrir alþjóða- dómstól. i U

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.