Tölvumál - 01.01.1978, Page 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag Islands, Reykjavík
Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm.
Oddur Benediktsson
Grétar Snær Hjartarson
l.tbl. 3.árg. janúar 1978
Öll réttindi áskilin
FÉLAGSFUNDUR
Félagsfundur veröur í Norræna Húsinu þriðjudaginn
24. janúar 1978 og hefst kl. 14.30.
Á fundinum veröa til umræðu:
Samningar um kaup og leigu á vél- og hugbúnaöi.
Framsöguerindi flytur dr. Jon Þór Þórhallsson, forstjóri.
Síöan mun Halldór Friðgeirsson verkfræðingur, stjórna
hringborðsumræðum um efnið. Auk hans og framsögumanns
taka þátt í umræðunum Elías Davíðsson, kerfisfræðingur,
Jón^Marínósson, deildarstjóri og Frosti Bergsson, deildar-
stjóri.
Jafnframt því, að hringborðsmenn bera saman bækur sínar,
munu þeir leitast við að svara þeim spurningum fundargesta
sem fram kunna að verða bornar.
í lok fundarins eða fundarhléi mun félagið að venju bjóða
fundarmönnum til kaffidrykkju í kaffistofu Norræna Hússins.
DESEMBERFUNDURINN
Stj órnin
Á félagsfundinum 6. desember sl. flutti Willy Bohn,
kerfisfræðingur frá IBM í Þýskalandi erindi um þróun
staðla fyrir skráningu gagna í tölvum og flutning þeirra.
Hann hóf mál sitt á sögulegu yfirliti, en varði mestum
tíma til að lýsa alþjóðlegum staðli fyrir 7 bita kóda,
ISO 646. Þessi staðall tengist EBCDIC í gegn um
Hollerith gatspjaldakódana, þannig að hverju sæti í
ISO staðlinum samsvarar ákveðið sæti í EBCDIC 8 bita
töflunni. Hins vegar er ekki til alþjóðlegur staðall
fyrir EBCDIC. Þar hefur hver framleiðandi sinn eigin
staðal. Fyrir 8 bita kóda er því enn sem komið er ekki
til alþjóðlegur staðall að öðru leyti en þv£, að ISO
4873 kveður á um hvernig taflan skuli stækka. ASCII
staðall sem hér á landi er nokkuð þekktur, er hin ameríska
útgáfa af ISO 646.