Vísir - 14.10.1961, Blaðsíða 4

Vísir - 14.10.1961, Blaðsíða 4
4 V f S I R Laugardagur 14. október 1961 f Á ferðalagi um Noreg í sumar heimsótti Hugrún skáldkona frú Jónínú Sæ- borg, íslenzka konu, búsetta í Osló, sem giftist norskum manni haustið 1913. Alla tíð síðan — að undanteknum sex árum, hefir hún átt heima í Noregi. — Birtist hér viðtal, sem Hugrún átti við, hana. |>að blaktir ekki hár á höfði, eða lauf á grein. Lítill yndislegur íkorni hopp- ar léttilega milli trjánna. Skógurinn er farinn að klæð- ast haustlitunum. i Gul, bleik og dökkrauð epli hanga fullþroskuð á greinunum. Plómurnar eru bústnar og girnilegar. Það er angan í lofti, sætur ilm- ur, sem kitlar mann í nefið og magann, og léttir sporið upp brekkuna. Eg finn ekki til mæði þótt stígurinn sé brattur. Það er svo létt að anda, og sólargeislarnir eru þægilega heitir. Útsýnið yfir borgina er fagurt sem fyrr, og mér sýn- ist hún stærri en áður. Nýj- ar byggingar hafa risíð á þessum þrem árum sem liðin eru síðan eg sá hana síðast, og skógurinn í brekkunni er stöðugt að hækka, sums stað- ar sést aðeins ofan á rauð húsaþökin í gegnum limið. „Þetta er alveg eins og í ævintýrunum“ segi eg við sjálfa mig. „Þetta er ævintýri“ heyri eg að einhver segir fyrir aft- an mig. Eg lít snöggt við, og sé sjálfa drottninguna í þessu töfraríki, konuna, sem eg var á leiðinni að heimsækja, hún hafði séð til mín út um glugg- ann, og var nú komin til móts við mig ofan á gang- stíginn. „Eg hélt að þú ætlaðir ekki að hafa þig alla leið,“ sagði hún. „Eg er búin að horfa lengi á þig út um gluggann. Komdu blessuð og sæl, og vertu hjartanlega velkom- in.“ ■ „Þú veizt nú hvernig eg verð, þegar eg kem hingað upp eftir,“ segi eg um leið og eg heilsa. „Jú, jú, alveg eins og berg- numin, en mig undrar það ekki, mér finnst sjálfri fag- urt hér, en nú skulurh við koma inn, þú hefir ekki verra útsýni úr glugganum á kvist- inum, þaðan getum við séð yfir borgina á meðan við fá- um okkur kaffisopa, það hefir margur íslendingurinn setið þar uppi og unað sér vel.“ JJún leiðir mig upp að hús- inu númer 34 við Furu- veginn, það er umgirt fögr- um garði með ávaxtatrjám og blómskrúði, sem enn skartar sínu fegursta, þótt komið sé fram í september. „Já, það er fagurt hér seg- irðu, en einhvern veginn er það nú svo, að eg nýt feg- urðarinnar ekki sem fyrr, ekki síðan eg varð ein, við nutum hennar, sem alls ann- ars, í félagi, maðurinn minn og eg, en nú er hann horfinn eins og þú veizt., Það var 3. maí í fyrra, sem hann dó, við vorum að koma heim, og leiddumst eins og vant var hérna upp brekkuna, þá hné hann allt í einu niður, hafði að vísu fundið til fyrir hjartanu áður, en þetta kom svo skyndilega, alveg eins og klippt væri á þráð, eg ætl- aði ekki að trúa því að öllu væri lokið------við vorum svo hamingjusöm, aldrei nokkur snurða á sambúðinni. Even var sérstakur maður -----bara einn af þúsundi eins og hann. Það er von að eg sé einmana, en við skulum ekki ræða um það, eg fer líka bráðum að fara, það er gott þegar svona er komið, það eru mikil vonbrigði að vera alitaf ein.----Það var nú stundum glatt á hjalla hjá okkur, þegar landar mín- ir hópuðust hingað. Þá var gaman að lifa. Við létum allt- af standa opnar dyr fyrir námsfólkið hérna í Osló, og öðrum, sem vildu ko,„^, sér- staklega var oft margt um manninn hér á hátíðum. „Var maðurinn þinn alltaf jafnfús til þess að bjóða fs- lendingana velkomna, þótt hann væri norskur?“ „Það var ekki síður hans vilji en minn, allt sem mér var kærkomið varð honum kært. Það var stundum þröngt á þingi, en þröngt mega sáttir sitja.----Við i • höfðum líka margt að þakka þessu fólki, margir hafa reynzt okkur vel, og stuðlað að því að okkur var boðið til fslands fyrir nokkrum árum. Það var dásamlegt ferðalag. Það er alltaf gaman að koma heim. |Jvernig atvikaðist það, að þú giftist norskum manni, eg held að eg hafi aldrei spurt þig að því.“ „Það skal eg með ánægju segja þér. Þegar hann var tuttugu og fjögurra ára var hann sendur til Siglufjarðar til þess að setja niður vél- arnar í síldarverksmiðjuna, sem síðar eyðilagist í snjó- flóðinu þar 1919. í þeirri ferð fór hann til Akureyrar, en eg var þar þá og rak greiðasölu í svokölluðu Boqahúsi. Það gekk vel hjá mér, eg hafði ágætar tekjur.“ „Svo hefir þú fórnað at- vinnunni fyrir ástina?“ „Það varð engin fórn. Eg hefi aldrei séð eftir því.“ „Fórstu svo með honum til Noregs þetta sama Sr?“ „Fyrst fór hann heim, en kom aftur eftir sjö mánuði, og þá opinberuðum við, það var 17. júní, en giftum okkur svo um haustið í okt. 1913. Það var séra Geir Sæmunds- son sem framkvæmdi vígsl- una. Svo fórum við strax til Noregs, en mér hálfleiddist, svo maðurinn vildi að við færum aftur til íslands, hann vildi ekki leggja það á mig að vera með óyndi, svona var hann í öllu, Hann fékk strax atvinnu við að setja upp vélarnár í, síldarverksmiðjuna í Krossa- nesi. Áður hafði verið þar fljótandi verksmiðja, skip„ frá Melbu í Noregi, vélarnar voru teknar úr því, að mig minnir, og settar upp inni. Einnig vann hann við það að setja niður vatnsrörin í göt- urnar á Akureyri. yið vorum heima í sex ár. Fórum síðan til Noregs og höfum átt þar heima síðan.“ „Hafðir þú þá sigrazt á óyndinu?" „Já, algerlega. Síðan hefir mér aldrei leiðst hér.“ „Hvaða atvinnu hafði mað- urinn þinn hér?“ „Hann vann við að búa til logsuðutæki öll ájrin, þar til hann andaðist.“ „Hvaðan var hann ættað- ur?“ „Frá Heiðmörk, þar leit hann fyrst Ijðs þessa heims 12. maí 1888.“ ' „En hvar ert þú fædd?“ „Eg er fædd í Ólafsfirði, faðir minn var lengi hrepp- stjóri í Grímsey.“ „Hvað áttuð þið hjónin mörg börn?“ „Við eignuðumst fimm, tvö af þeim dóu ung, en hin eru öll gift og búseít hér, annar sonur okkar bjó um tíma í Reykjavík, en er nú kominn hingað aftur. þú lítur ekki út fy'rir að vera orðin gömul.“ „Mér er engin launung á því að ég er orðin 71 árs, það er að' vísu ekki hár ald- ur, miðað við það að fólk virðist nú verða langlífara en áður, svona að meðaltali, en þó er farið að halla undan fæti, ég fann það bezt eftir að ég varð ein, og finn það alltaf betur og betur. Heils- an er líka á völtum fæti, það er hjartað, sem er eitt- hvað í ólagi. Það bilar allt. En ég hefi mikið að þakka fyrir. Guð hefur verið góður við mig og farið vel með mig, mér er ekki vandara um en öðrum, sem verða að sjá af sínum. En skarðið er stórt. Þeir verða að missa sem eiga.“ „Mig minnir að ég hafi heyrt að þú hafir farið heim til íslands á síðast liðnu ári?“ „Já, það er rétt. Ég skrapp heim. Ég átti sérstakt er- indi þangað. Ég og maðurinn minn, höfðum ráðgert að stofna sjóð, sem á að vera grundvöllur að byggingu elliheimilis í Ólafsfirði, og fór ég því heim til þess að hrinda þessu í framkvæmd, og er nýbúin að senda heim peninga, og mun sjóðurinn nú þegar orðinn um fimmtíu þúsund krónur.“ „Það kalla ég gott, og vel af stað farið. Ég óska þér til hamingju með framkvæmd- irnar.“ „Þakka þér fyrir.“ ||vernig stóð á því að ykk- ur datt í hug að stofna elliheimilissjóð?“ „Því er fljót svarað. Eitt sinn er ég kom til Ólafs- fjarðar til þess að heimsækja foreldra mína, bjuggu þau í svo köldum og lélegum húsa- kynnum, að mér rann það til rifja, og þá hét ég því að reyna að gera eitthvað til þess að bæta hag gamla fólksins þar, þótt seinna yrði. Þannig varð þessi sjóð- ur til. Kvenfélagið „Æskan“ í Ólafsfirði hefur tekið að Framh á 5. síðu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.