Vísir - 14.10.1961, Blaðsíða 16
VISIR
[ Laugardagur 14. október 1961
Hjálpið
blindum.
Blindravinafél. íslands, sem er
elzta félag landsins, og sem
unnið hefir um áratugi að mál-
efnum hinna blindu, hefir
merkjasölu á morgun, sunnu-
dag, til stuðnings hinu marg-
víslega starfi fyrir blint fólk.
Reykvíkingar eru viður-
kenndir — ekki aðeins hér á
landi heldur og á öðrum Norð-
urlöndum — fyrir góðan skiln-
ing á erfiðleikum og vandræð-
um þeirra, sem standa höllum
fæti í lífsbaráttunni. Þess vegna
eru nú leitað til þeirra eins og
svo oft áður, svo að unnt verði
að lyfta hinum þunga bagga,
sem þeir blindu bera, og það
verður að þessu sinni gert með
því, að merkin verði keypt af
sem allra flestum á morgun,
sunnudag.
Blindravinur.
Togarar koma
af veiðum.
TOGARINN Skúli Magnús-
son kom hingað til Reykjavík-
ur í gær og landaði hann afl-
anum til vinnslu hér. Er hann
með um 160 tonn af heimamið-
um. í morgun kom hingað inn,
á útleið í söluferð, togarinn
Þorkell Máni, sem talinn var
vera með 140—145 tonna afla,
einnig af heimamiðum.
W|;Í
-jV' .
UBL _i
pjHjjijKf'
,5 i-n.4 !ij
Tónarnir leystust úr
læðingi í nýju húsi.
Sinfóniuhljómsveit ís-
lands hefur nú loksins feng-
ið hljómleikasal við sitt
hæfi. Hún hélt fyrstu hljóm-
leikana í Háskólabíói í fyrra
kvöld, og tók Ingimundur
Magnússon ljósmyndari Vís-
is þá meðfylgjandi mynd af
hljómsvéitinni á sviðinu í
Háskólabíó.
Mikil eftirvænting ríkti
meðal tónlistarunnenda hér
í bæ um það, hvernig hinn
nýi salur myndi reynast.
Húsið var fullskipað, eða um
l»úsund manns, sem söfnuð-
ust þarna saman undir mið-
nætti til að hlýða á hljóm-
Ieikana.
★
Það var enginn vafi á því
að mikill munur var á tón-
um hljómsveitarinnar að
þessu sinni frá því sem ver-
ið hefur. Áheyrendum sem
vanir voru að hlýða á hljóm-
sveitina í Þjóðleikhúsinu,
fannst líkast því sem hljóm-
um hennar hefði verið
hleypt lit úr lokuðum poka.
Það var eins og tónarnir
hefðu fengið frelsið svo létt-
ir voru 'þeir og skírir við
hinn bætta hljómburð.
Hljómlistarmennirnir
sjálfir virtust og hafa hrif-
izt með. Þeir voru í óvenju-
lega góðu skapi og samhent-
ir í leik sínum. Það eina sem
virtist vera að hljómburðin-
um að finna, var að þeir sem
sátu aftarlega og í miðjum
salnum sögðu, að ekki
heyrðist vel í fiðlunum.
Getur verið að bað komi nú
í Ijós betur en áður sem vit-
að er, að fiðlusveitirnar í
hljómsveitinni eru fámenn-
ari og veikari en eðlilegt
þykir. Annað undarlegt fyr-
irbæri virtist koma fram, —
salurinn deyfir mjög lófatak
áheyrenda og það getur ver-
ið óheppilegt, því að áheyr-
endurnir taka þátt í því að
skapa _stemningu með lófa-
takinu.
Áður en hljómleikar þess-
ir voru haldnir hafði hljóm-
sveitin haldið þrjár æfingar
í salnum, en enga æfingu
hafði verið hægt að hafa
nieð fiðlu-einleikaraniun,
þar sem hann kom svo að
segja beint af flugvellinum
inn í salinn. Sætti það furðu,
hve framúrskarandi samleik
fiðluleikarinn og hljómsveit-
in náðu. Leikur Sinfóníu-
hljómsveitarinnar ; fiðlu-
konsert Mendelsohns er
meðal þess bezta sem hún
hefur flutt og lofar það góðu
um starf hins nýja stjórn-
anda, Tékkans Jindriks Ro-
hans.
>*
Sjö Islendingar
syna í París
Austur-Þýzk skotsnilld
vekur aðdáun í V.-Berlín.
Undanfarið hafa sjö ungir ís-
Ienzkir málarar sýnt verk sín á
alþjóðasýningu í París. Franska
listatímaritið L a R e v u e
M o d e r n c hefur nú sent
þremur þeirra, þeim Pétri
Friðrik Sigurðssyni, Hafsteini
Austmann og Sverri Haralds-
I syni bréf þar sem þeim er til-
í kynnt að um þá munu birtast
j gagnrýni og umsögn og virðast
verk þeirra hafa vakið allmikla
athygli.
Hinir íslenzku málararnir,
sem myndir eiga á sýningunni
eru Benedikt Gunnarsson,
Bragi Ásgeirsson, Bjarni Jóns-
son og Steinþór Sigurðsson.
Franska menntamálaráðu-
neytið bauð í vor Bandalagi ís-
lenzkra listamanna að taka
þátt í alþjóðlegri listsýningu
— Biennale de Paris — seip nú
er haldin í. annað sinn í nú-
tímalistasafninu í París. Á þess
ari sýningu er kynnt list ýmissa
þjóða. Þátttakendur verða að
vera yngri en 35 ára og mark-
miðið er að sýna hvað er að
gerast meðal hinna ungu frá
ýmsum þjóðum á listasviðinu.
íslendingum var úthlutað 10
metra veggplássi og hafði það
í för með sér að hinir 7 ungu
málarar gátu aðeins sent eina
mynd hver og hana af takmark
aðri stærð.
Enn fremur voru á sýning-
OSKJULEIÐANGURINN ætlar
að verða heppinn með veður.
Leiðangursmenn eru þar innfrá
í sumarveðri, því í gær var
svo mikill hiti yfir landinu, að
líkja má við hitabylgju, þegar
þess er gætt, að komið er fram
undir miðjan október. í gær-
kvöldi kl. 6 var 14 stiga hiti á
Egilsstöðum, 12 á Akureyri og
unni kynnt tónvei-k eftir þá
Fjölni Stefánsson og Þorkel
Sigurbjörnsson.
Brezka blaðið Observer birt-
ir grein um sýninguna í síðustu
viku ásamt mynd. Segir þar m.
a. að af Norðurlöndum hafi
verkin frá Svíþjóð vakið mesta
aithygli. Miklum vonbrigðum
hafi hins vegar framlag frönsku
listamannanna valdið og hafi
þeir fengið allt of mikið pláss
undir lélegar myndir. Á ein-
staka málara frá Norðurlönd-
um er ekki minnzt.
hér í Reykjavík 10 stiga hiti.
Víðast var hitinn 8—10 stig.
Inni í Öskju var hægviðri heið-
ur himinn og milt veður.
Austur á Fagurhólsmýri hef-
ir verið mikil rigning, en þeir
hafa oft séð hann svartan þar,
sagði Veðurstofan. Frá því
kl. 6 á fimmtudagskvöld og þar
Frh. á 2. síðu.
Níu manns tókst að flýja
gegnum rryir- og gaddavírs-
girðingar kommúnista á
borgamörkunum í Berlín
í gær og héldu austur-
þýzkir lögreglumenn uppi
ákafri skothríð á flótta-
fólkið, en enginn særSist
og komust allir heilu og
höldnu inn á vettvang
frjálsra manna.
Talið er, að austur-þýzku
verðirnir hafi skotið a. m. k.
250 vélbyssu og riffilskotum
yfir mörkin, en hér hafi gerst
hið sama og grunur leikur á,
að tíðast gerist, þegar skotið er
á flóttafólk, sem er nú næstum
daglegur viðburður, þ. e. að
verðirnir reyni að forðast að
hæfa hina flýjandi samlanda
sína, en haldi uppi skothríð sér
til réttlætingar, að þeir hafi
reynt að hindra flóttann. Til
þessa hafa aðéins 3 menn beðið
bana af völdum skothríðar, er
þeir voru að flýja kúgunina
austan markanna.
I Vestur-Berlín eru menn
sannast að segja farnir að dást
að þeirri óvanalegu skotsnilld
austur-þýzkra varða, sem rnenn
nú heyra um daglega, svo er
spurt: Hve lengi geta þeir kom-
ist upp með þetta fyrir yfir-
boðurum sínum?
Árekstrar á
hálftíma fresti.
Á tæpum ijórum klukku-
stundum eftir hádegið í gær,
urðu sjö bifreiðaárekstrar hér
í bænum.
Telst þessi árekstrafjöldi
næstum til einsdæma á jafn
skömmum tíma á þeim tíma
árs sem skyggni er sáemilega
gott ög engin hálka á götum.
Hitabylgja yfir landinu.