Vísir - 14.10.1961, Side 5

Vísir - 14.10.1961, Side 5
Laugardagur 14. október 1961 V í S I R 5 Hann var giæsimennið mikla í sjón og raun. Hugleiðing á aldarafmæli séra Bjarna Þorsteinssonar. f DAG á aldarafmæli séra Bjarna Þorsteinssonar^ hvarfl- ar hugurinn á kunnar slóðir og kærar, til Siglufjarðar. Og fyrst og fremst mun hugurinn staðnæmast við þann blettinn, er séra Bjarni átti heima á hátt í hálfa öld, prestsetrið Hvann- eyri. Á þeim bletti vann séra Bjarni þau verk, sem gerðu hann frægastan, þar festi hann, þessi aðflutti laukur, svo ræki- lega rætur, að þaðan urðu þær ekki slitnar. Og þar hvíla nú bein hans í jörðu undir veg- legu minnismerki á núverandi lóð Hvanneyrar, í suðvestur- horni gamla kirkjugarðsins, sem nú er orðinn að grænu túni. Við þessar stöðvar eru bundnir töfrar, sem ekki er auðvelt að lýsa. Það er einhver ómur frá ævi tónskáldsins í öllu sem mætir manni á þessum slóðum. Á Hvanneyri hafa margir búið vel og myndarlega og margir merkisklerkar hafa prýtt þann stað. Og þó er eins og séra Bjarni eigi staðinn einn, sé og verði dýrlingur þessa staðar. Þegar ég fluttist að Hvann- eyri í Siglufirði 1951 voru all- mörg ár liðin frá dauða séra Bjarna. Ég vissi nokkur deili á honum og ævi hans vegna bess eins sem ég hafði lesið um hann, en ég sá hann aldrei í 'ifanda lífi. En á þeim þrem árum sepi ég dvaldist á Hvann- eyri fannst mér ég kynnast bessum horfna forvera mínum furðu vel. Alls staðar í Siglu- firði og þó ekki sízt á Hvann- eyri var sem maður væri í andlegri nálægð við séra Bjarna. Svo mikill er arfur hans þar inni á milli fjallanna, svo mikil ítök átti hann í hug- um og . hjörtum síns gamla safnaðar Já, ég sá hann og kynntist honum í öllum þess- um lifandi og fersku minning- um, í fólkinu sjálfu. í verkum hans, sem víða eru metin en hvergi elskuð sem í Siglufirði. Það var gott að vera þannig í návist séra Bjarna, ekki sízt í kirkjunni, sem hann hafði séð rísa og þjónað sjálfur síðust.u starfsárin, og gott var að ganga upp í hornið á gamia kirkjugarðinum og sitja þar á grasinu. sem óx yfir það. er eitt sinn var Það var alitaf bægt að finna betur og betur hvílíkt stórveldi séra Bjarni var og er enn á þessum stað. Bjarni Þorsteinsson. Ég ætla ekki hér að, rifja upp verk þau er hann vann í lifanda lífi. Það verður gert annars staðar og betur um þessar mundir. Það er nóg að segja að hann var andlegt og veraldlegt yfirvald í vitund Siglfirðinga meðan hann var og hét. Hann var glæsimenn- ið mikla í sjón og raun og áhrif hans munu hafa verið ótrúleg á hugarfar og fas hinna. eldri Siglfirðinga. Sá höfðihgsskapur og glæsibrag- ur sem hefur verið óvenju ríkt einkenni Siglfirðinga, er að mínu áliti engin tilviljun. Þar gætir líka séra Bjarna og fleiri góðra manna, sem settu svip sinn á Sig'lufjörð á mót- unarárum hans. Það má eflaust deila um það hve mikill listamaður Bjarni hafi verið, sé strang- asti mælikvarði listarinnar lagður á verk hans. En sú list er þó mikils virði, sem nær þvi ,að vera dáð og elskuð á sama hátt og list hans. ekki sízt á þeim slóðum, sem hún varð til. Miðað við smæð sína og örðugar aðstæður er Siglu- fjörður óvenjulega mikili tón- listarbær. Það er heldur ekki tilviljun. Sem prestur og ræðuskör- ungur hefur séra Bjarm ef- laust átt sína jafningja. Hvorki hann sjálfur, líf hans og verkj var hafið yfir alla gagnrýni. I Séra Bjarni var ekki gallalaus. En samt var hann maður, maður sem Siglfirðingar elsk- uðu og virtu og dá í minning- um. Slíkir voru töfrar hans, og að því leyti er hann stærstur allra ,sem lifað hafa í skjóli siglfirzkra fjalla. Þannig hef- ur hann orðið dýrlingur Siglu fjarðar, ekki vegna heilag- leika síns, heldur vegna þess hve stór hann var í mannleg- leika sínum og manndómi. Verk hans munu lifa, og nafn Bjarna verður aldrei máð út úr kirkjusögu íslands, listasögu þess og sögu ís- lenzkra þjóðfræða. Og víst er þetta mikils virði. Arfur séra Bjarna til þjóðarinnar verður seint ofmetinn. En vænzt þyk- ir mér um minningu hans, sem hann skildi eftir í Siglufirði sem maður, og þann arf hans sem ávaxtazt hefir í siglfirzk- um hjörtum og eðli. Fólkið, sem hann bjó innan um, fann,' að hann var höfðingi í sjón og raun, en samt var hann einn af því og hluti af því og það !af honum. Það gaf Siglfirðing- |um metnað, sem ég vona að jendist þeim um aldur. Og nú halda Siglfirðingar hátíð í minningu síns mikla leiðtoga og listamanns. Það er enn einn vottur þess hve trú- ir þeir eru arfi séra Bjarna. Séra Bjarni er enn hluti af lífi Siglfirðinga, eins og hann var í lifanda lífi hinn stóri maður í samfélagi þeirra. Svo mjög er þetta áberandi, að ég Iget ekki stillt mig um að segja hér eina sögu þessu til sönnunar. Þegar eg kvaddi Sigl- firðinga haustið 1954 kom ég á fund gamallar vinkonu minnar í söfnuðinum, mikill- ar. og trúrrar kirkjufnann- eskju. Hún /sagði við mig: „Mig dreymdi séra Bjarna í nótt. Hann bað mig að bursta hempuna sína, þvi að hann þyrfti á henni að halda. Ég vissi, hvað hann átti við, blessaður. Nú ert þú að íara, og við bíðum eftir nýjum presti. En séra Bjarni .yfirgef- ur okkur ekki.“ Það vermdi hjartað að finna þessa tryggð við látmn leiðtoga, vissuna um það að hann vai enn eign Siglfirð- inga, þótt ósýnilegur væri. Og enga ósk á ég heitari en þá á þessari hátíð, að séra Bjarni, minning hans og arf- ur, megi vera eign Siglfirð- inga um ókomna daga, sem hingað til. Megi listaandi hans lifa í vitund þeirra og tryggð- in við kirkjuna vera söm og hún hefur ávallt verið. Ég sendi Siglfirðingum hlýj ar kveðjur. Þótt jarðnesk störf hins mikla snillings heyri nú fortíðinni til eru Staðarhóls- hnjúkur og Hólshyrna enn hin sömu og benda til hæða. Kristján Róbertsson. Viðtal dagsins — FrL. af 4. síðu: sér að sjá um þetta fyrir mig. ásamt yfirvöldum bæjarins.“ „Hefur þú svo hugsað þér að bæta í sjóðinn smátt og smátt?“ „Já, það er meiningin, „margt smátt gerir eitt stórt“. Það kemur fyrir, að fslendingar sem hér eru á ferð fá gistingu hjá mér, sér- staklega þegar erfitt er að fá herbergi á hótelum, og það sem þeir greiða, fyrir gistinguna læt ég ganga í sjóðinn." „Hefur þú hugsað þér að dvelja lieima á íslandi í ell- inni?“ „Nei, það hefi ég ekki gert. Hér verð ég, í húsinu mínu á meðan ég get séð um mig sjálf, síðan fer ég á elliheim- ili hér í borginni, ef ég þarf á að halda.“ „Vonandi áttu samt eftir að koma til íslands.“ „Mig langar til þess að fara heim, ef ég lifi það að verða 75 ára, en það getur nú margt breytzt á fjórum árum, það þarf stundum ekki svo langan tíma til, dæmin eru nærtæk.“ „Það er eðlilegt að ræt- urnar liggi djúpt hér, þar sem þú hefur búið svo lengi.“ „Já, hér uni ég mér vel, burt séð frá yfirstandandi einstæðingskennd. Ég hefi , verið gæfusöm. Hér á ég börnin mín, og barnabörnin, og frá þeim vil ég ekki fara. , Þó get ég ekki neitað því að hugurinn hvarflar oft heim, og lcært er mér landið mitt, og fólkið þar. Ég bið því blessunar Guðs. Svo bið ég þig að skila kærri kveðju heim. Nú fer að hausta að þar, eins og hér, haustið kemur á réttum tima eins og hinar árstíðarnar. Það haustar einnig í mannlífinu. og veturinn gengur í garð. En það mun vora á ný“. Ég kveð frú Jónínu við garðshliðið Handtakið er hlýtt Það'er birta í augum hennar. eit+v>^að sem minnir mig á vorið. Að utan - Frh. af R. síðu. einum eða tveimur klst. höfðu þeir safnað saman helztu forsprökkum OAS hreyfingarinnar. — Öllum nema Salan. — Slapp stærsti fiskurinn úr net- inu, eða hlífðu spænsk yfirvöld honum. KATLA - Frh. af 9. s. og um baráttu verður' að ræða í framtíðinni. Um pökk- unarverksmiðjuna Kötlu er það að segja, að flestir kaup- menn skildu köllun síns tíma og sýndu fyrirtækinu skiln- ing, enda er þessi starfsemi hennar nú álitinn nauðsyn- legur og eðlilegur hlekkur í viðskiptalífinu. Neytendum er tryggð mun betri vara þegar unnt er að pakka henni í vélum og undir eftir liti heilbrigðiseftirlitsins, heldur en þegar pökkunin er framkvæmd í höndum við misjafnar aðstæður. Myndsjáin — Framh. af 3. síðu. síðasttalda búðin. Guðrún er ættuð frá Akureyri. Hún fluttist hingað suður á stríðs- árunum, vann fyrst í Harald- arbúð og síðar í Markaðnum og í verzluninni Guðrún á Rauðarárstíg. Hún verzlar nú á Klapparstígnum með útlendar kápur og dragtir. ★ Eindálka myndin er frá Skóhúsinu, sem er ný verzl- un á Hverfisgötunni í nýju húsi á horni Vitastígs. Eig- andi hennar er Bergur Krist- insson, sem áður var verzl- unarstjóri í Raftækjaverzl- uninni í Bankastræti. Hann segir, að búð hans ætli að hafa sem sérgrein barna- og unglingaskó. Merki það, scm hann hefir seti upp á verzl- un sinni, stígvélið úr ævin- týrinu, hefir vakið mikla at- hygli. Loks kemur svo mynd úr bókaúð. Það er bókabúð Máls og menningar í húsi við hlið Laugavegs apóteks, sem almennt gengur undir nafn- inu Rúblan. Á myndinni er verzlunarstjórinn Óskar Þor- geirsson, sem áður fyrr var hjá ritfangaverzluninni Pennanum. Nokkrar stúlkur óskast i^vlitijspi'Vit ísitt fdfVifi #i/. i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.