Tölvumál - 01.02.1979, Síða 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag Islands
Pósthólf 681,121 Reykjavík
Höfundum efnis áskilin öll réttindi
Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm.
Oddur Benediktsson
Grétar Snær Hjartarson
2. tölublað, 4.
Febrúar 1979
FÉLAGSFUNDUR
Skýrslutæknifllagið efnir til fllagsfundar í Norræna
Húsinu þriðjudaginn 27. febrúar 1979 kl. 14.30.
Á fundinum verður til umræðu og afgreiðslu:
Staðlaðir samningar Skýrslutæknifllagsins fyrir
kaup, leigu og viðhald a tölvubunaði.
Starfshópur hefur síðan í maí sl. starfað að gerð tillagna
að stöðluðum samningum. Hópinn skipuðu þeir Ari Arnalds,
Elías Davíðsson, Guðni Kristjánsson og Páll Jensson og mun
hópurinn hafa framsögu á fundinum. Tillögur hópsins eru
birtar hlr í blaðinu: Á bls. 4-7 Samningur um viðhalds-
þj ónustu, á bls. 8-11 Kaupsamningur og a bls. 12-15 Leigu-
samningur.
Að venju mun félagið bjóða fundarmönnum til kaffidrykkju
í fundarlok.
Stj órnin
JANÚARFUNDURINN
Fllagsfundur um drög að umsögn Skýrslutæknifllagsins um
frumvarp um persónugagnalöggjöf var haldinn í Norræna
Húsinu 30. janúar 1978. Fundinum stjórnaði Páll Jensson.
Framsögu um málið hafði dr. Oddur Benediktsson. Hann
fór yfir drögin eins og þau birtust í síðustu Tölvumálum,
útskýrði þau og gerði grein fyrir þeim sjónarmiðum sem
að baki þeirra liggja. Þá lagði hann til að orðalags-
breyting yrði gerð á einni málsgrein umsagnarinnar.
Klemens Tryggvason, hagstofustjóri, tók til máls og ræddi
um þær breytingar, einkum tæknilegar, sem orðið hafa í
þjóðfllaginu þann liðlega aldarfjórðung sem liðinn er
síðan þjóðskráin var stofnuð. Á sviði gagnavinnslu hafa
nú síðustu árin stóraukist möguleikar á fjöldaframleiðslu
skráa með persónuupplýsingum og úrvinnslu á þeim. Hann
taldi að lög þau sem nú er rætt um mættu gjarnan verða
til leiðbeiningar um leyfisveitingar til handa þeim er^
óska að senda gögn, auglýsingar, happdrættismiða, inn á
heimili manna. Ásókn í skrár og límmiða, áritaða í þessum
tilgangi,hefur aukist mjög hin síðari árin. Klemens kvaðst
árgangur