Tölvumál - 01.02.1979, Side 3

Tölvumál - 01.02.1979, Side 3
tölvumAl 3 Ýmsar geröir af tölvum og tengdum búnaði voru til^sýnis. Allt frá örtölvukerfi á bretti fyrir 40 þúsund krónur upp í bókhaldstölvusamstæðu að söluverðmæti um 8 milljónir króna. Auk þess mátti sjá vísi að íslenskum tölvuraf- búnaðariðnaði, einkum ætlaðan fyrir frystihús. Sýningin tókst vonum framar. Áætlað er að eitthvað á annað þúsund manns hafi sótt sýninguna. Sýnendur voru þessir: Halldór Jónsson, verkfræðinemi, sýndi COMMANDOR PET tölvu. Haukar hf kynntu tölvubúnað, m.a. frá MIDWEST, SOROC og CENTRONICS. Heimilistæki sf sýndu WANG 2200 og WANG PCS tölvur. IBM á íslandi kynnti SERIES/1 tölvusamstæðu. Kristján ö Skagfjörð hf sýndi PDP 11/03 tölvusamstæðu. Kúlulegusalan hf sýndi örtölvuborð og TI þróunarkerfi. Menntaskólinn við Hamrahlíð sýndi COMMANDOR PET tölvu. Póllinn hf á ísafirði sýndi örtölvustýrða samvalsvog og RADIO SCHACK tölvu. Rafgagnatækni sýndi örtölvu með forriti fyrir flugáætlun. Rafís hf sýndi örtölvustýrðan hávaðamæli. Raunvísindastofnun Háskólans sýndi örtölvustýrða fiskvog og umferðarteljara. Sameind hf sýndi H-8 og H-ll örtölvur frá HEATH. Símtækni sf sýndi örtölvustýrðan símagjaldmæli. Skrifstofutækni hf sýndi OLIVETTI tölvusamstæðu. Skrifvélin kynnti CANON tölvur. Smith & Norland hf kynnti örtölvubúnað frá SIEMENS A/G. Tæknibúnaður hf sýndi ýmsa örtölvustýrða notkunarmæla, t.d. fyrir akstur. Tækniskóli íslands sýndi forritanlega stýrieiningu, smíðaða af nemendum. Tölvutækni hf sýndi BURROUGHS B80 tölvusamstæðu. Verkfræðiskor Háskólans sýndi ýmsar kennslu-örtölvur. Völundur hf, Vestmannaeyjum sýndi örtölvustýringu fyrir fiskflokkurnarvel og nytniutreikningakerfi fyrir frystihús. Örtölvufélagið sýndi COSMAC örtölvu.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.