Tölvumál - 01.02.1979, Side 6

Tölvumál - 01.02.1979, Side 6
6 tölvumAl. 6. UPPSÖGN SAMNINGS 6.1 Notandi má segja samningi þessum upp með ef rekstraröryggi lágmarksbúnaðar í heild verður minni en mánaða fyrirvara. Þó má segja samningnum upp án fyrirvara % á tímabili. 6.2 Viðhaldsaðili má segja samningi þessum upp með sex mánaða fyrirvara þegar sjö ár eru liðin frá gildistöku samnings þessa, sbr. 3.3, nema annars sé getið í 10. gr. 7. ÞAGNARSKYLDA Starfsmenn viðhaldsaðila skulu gæta skilyrðislausrar þagnarskyldu gagnvart óviðkomandi um upplýsingar varðandi málefni notanda eða aðrar upplýsingar, sem þeir afla sér i sambandi við þjónustu þá, sem fjallað er um í þessum samningi. 8. FRAMSAL SAMNINGS Hvorugur aðili getur án skriflegs leyfis hins aðila afhent réttindi sín og skyldur samkvæmt samningi þessum i hendur þriðja aðila. 9. MEÐFERÐ ÁGREININGSMÁLA 9.1 Samningur þessi og túlkun hans fer að öllu leyti samkvæmt íslenskum lögum. 9.2 Komi upp ágreiningur milli samningsaðila um túlkun samnings þessa, getur hvor aðili um sig krafist þess að ágreiningsefnið verði útkljáð með gerðardómi. 9.3 Gerðardóm skipi þrír menn tilnefndir af borgardómi Reykjavíkur. Formaður dómsins skal fullnægja skilyrðum sem dómari. Samningsaðilar geta bent á hina tvo, sem tilnefndir eru með hæfilegu tilliti til þeirrar sérstöku þekkingar, sem æskileg er talin við mat á ágreiningsefnum þeim, sem lögð hafa verið i gerðardóm. Komi engar slíkar ábendingar, skal tilnefna án þeirra. 9.4 Gerðardómur setur sér sjálfur starfsreglur. Fella skal rökstuddan dóm eins fljótt og unnt er og áður en hálft ár er liðið frá því að gerðardómur var skipaður. 9.5 Þegar gerðardómur ákveður hver skuli greiða málskostnað, þar með talin þóknun til lögfræðinga málsaðila, getur hann tekið tillit til þess hvort málið var sett í gerðardóm af sanngjörnum ástæðum eða ekki. Gerðardómur ákveður með tilliti til málsatvika hvenær dóminum skuli fullnægt. Venjulega skal það gert eigi síðar en 14 dögum eftir dómsúrskurð.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.