Tölvumál - 01.02.1979, Side 9

Tölvumál - 01.02.1979, Side 9
tölvumAl 9 3. AFHENDING OG HÚSNÆÐI 3.1 Búnaðurinn skal aíhentur uppsettur og prófaður (sjá 4.gr.) á notkunarstað á athendingardegi þann . Húsnæðið skal vera tilbúið til þess að uppsetning geti hafist eigi síðar en dögum fyrir afhendingardag, og prófun skai hefjast dögum fyrir afhendingardag. 3.2 Kaupandi getur frestað umsömdum afhendingardegi um allt að mánuði. Frestun þessa skal tilkynna með minnst mánaða fyrirvara. 3.3 Seljandi skal i síðasta lagi við undirritun samnings láta kaupanda í té skriflegar leiðbeiningar um innréttingar húsnæðis þess, sem setja á búnaðinn upp í. Kaupandi ber kostnað af innréttingum, svo sem uppsetningu á nauðsynlegum loftræstibúnaði og rafleiðslum í húsnæðinu. 3.4 Þegar innréttingum er lokið, skal kaupandi tilkynna seljanda það. Kaupandi ábyrgist að skoðun seljanda, sbr. 3.5, geti farið fram nægilega snemma til að kaupandi geti lagfært galla fyrir þann dag, sem húsnæðið skal vera tilbúið samkvæmt 3.1. 3.5 Seljandi skal án óþarfa tafa skoða húsnæðið og innréttingar. Eftir það skal hann einnig án óþarfa tafa tilkynna kaupanda niðurstöður skoðunarinnar. Seljandi getur ekki gert kaupanda ábyrgan fyrir bilunum, skemmdum á búnaði eða drætti á afhendingu búnaðar sem raktar verða til ófullnægjandi aðstæðna í húsnæði, sem seljandi hefur skoðað og samþykkt. 4. PRÓFUN búnaðar o. fl. 4.1 Prófun búnaðarins skal framkvæma á eftirfarandi hátt: 4.2 Þegar prófun búnaðar er lokið, þannig að þeim kröfum, sem gerðar eru í 4.1, sé fullnægt, skal kaupandi án óþarfa tafa staðfesta það skriflega. 4.3 Sé staðfestingin, sem nefnd er í 4.2, dagsett á umsömdum afhendingardegi eða siðar, telst sá dagur vera (raunveru- legur) afhendingardagur. Sé staðfestingin hins vegar dagsett fyrir umsaminn afhendingardag, er kaupanda heimilt að fresta eignayfirtöku (afhendingardegi) allt til umsamins afhendingardags. 5. VANEFNDIR OG SAMNINGSROF 5.1 Seinki afhendingu fram yfir umsaminn afhendingardag, annað hvort vegna þess að búnaðurinn afhendist ekki á réttum tima, eða vegna þess að prófun hins afhenta búnaðar hefur ekki sýnt fullnægjandi niðurstöður eða ekki farið fram, án þess þó að kaupandinn eigi sök á því, skal seljandi: a) bæta það tjón sem af seinkun hlýst á eftirfarandi hátt: b) greiða dagsektir að upphæð %c af kaupverði búnaðarins fyrir hvern dag sem afhending dregst fram yfir umsaminn afhendingardag. Bótagreiðslur þessar skulu þó aldrei verða hærri en % af kaupverði búnaðarins. Bótagreiðslur þessar ber að greiða strax og dráttur hefur átt sér stað. Kaupandi ákveður hvort beitt skuli viðurlögum í lið a) eða b). 5.2 Geti kaupandi ekki tekið við búnaðinum á umsömdum afhendingardegi vegna þess að húsnæði er ekki tilbúið eða vegna þess að prófanir hafa ekki getað átt sér stað eða hefur verið frestað, og seljandi á ekki sök á þessu, færist afhending- ardagur aftur um þann tíma, sem seinkun kaupanda nemur. Kaupanda er engu að síður skylt að greiða umsamið kaupverð með þeim skilmálum sem greindir eru í 2. gr. Einnig er kaupanda skylt að greiða allan þann kostnað, sem seljandi verður fyrir og stafar sannanlega af þessum drætti kaupanda.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.