Tölvumál - 01.02.1979, Qupperneq 13

Tölvumál - 01.02.1979, Qupperneq 13
TÖLVUMÁL 13 3. AFHENDING OG HÚSNÆÐI 3.1 Búnaðurinn skal afhentur uppsettur og prófaður (sjá 4. gr.) á notkunarstað á afhendingardegi, þann . Húsnæðið skal vera tilbúið til þess að uppsetning geti hafist eigi siðar en dögum fyrir afhendingardag, og prófun skal hefjast dögum fyrir afhendingardag. 3.2 Leigutaki getur frestað umsömdum afhendingardegi um allt að mánuði. Frestun þessa skal tilkynna með minnst mánaða fyrirvara. 3.3 Leigusali skal i síðasta lagi við undirritun samnings láta leigutaka i té skriflegar leiðbeiningar um innréttingar húsnæðis þess, sem setja á búnaðinn upp í. Leigutaki ber kostnað af innréttingum, svo sem uppsetningu á nauðsynlegum loftræstibúnaði og rafleiðslum í húsnæðinu. 3.4 Þegar innréttingum er lokið, skal leigutaki tilkynna leigusala það. Leigutaki ábyrgist að skoðun leigusala, sbr. 3.5, geti farið fram nægilega snemma til að leigutaki geti lagfært galla fyrir þann dag, sem húsnæðið skal vera tilbúið samkvæmt 3.1. 3.5 Leigusali skal án óþarfa tafa skoða húsnæðið og innréttingar. Eftir það skal hann einnig án óþarfa tafa tilkynna leigutaka niðurstöður skoðunarinnar. Leigusali getur ekki gert leigutaka ábyrgan fyrir bilunum, skemmdum á búnaði eða drætti á afhendingu búnaðar sem raktar verða til ófullnægjandi aðstæðna í húsnæði, sem leigusali hefur skoðað og samþykkt. 4. PRÓFUN BÚNAÐAR O. FL. 4.1 Prófun búnaðarins skal framkvæma á eftirfarandi hátt: 4.2 Þegar prófun búnaðar er lokið, þannig að þeim kröfum sem gerðar eru í 4.1, sé fullnægt, skal leigutaki án óþarfa tafa staðfesta það skriflega. 4.3 Sé staðfestingin, sem nefnd er í 4.2 dagsett á umsömdum afhendingardegi eða síðar, telst sá dagur vera (raunverulegur) afhendingardagur. Sé staðfestingin hins vegar dagsett fyrir umsaminn afhendingardag, er leigutaka heimilt að fresta upphafi leigutíma (afhendingardegi) allt til umsamins afhendingardags. 5. LEIGU BREYTT 1 KAUP 5.1 Leigutaki hefur rétt til að kaupa búnaðinn eða hluta hans í stað þess að leigja hann. 5.2 Sé kaupréttar, skv. 5.1 neytt fyrir afhendingardag, gjaldfellur kaupverð hins keypta búnaðar á afhendingardegi. 5.3 Sé kaupréttar neytt eftir afhendingardag, skal greiða fyrir búnaðinn eftirstöðvar af kaupverði sbr. 2.1, en þó ekki lægri upphæð en % af upphaflegu kaupverði sbr. 1. gr. 5.4 Hyggist leigutaki neyta kaupréttarins á leigutímabili, skal hann tilkynna leigusala það með mánaða fyrirvara. 6. GILDISTÍMI OG UPPSÖGN 6.1 Samningur þessi gildir í ár frá afhendingardegi, en er þó uppsegjanlegur af hálfu leigutaka eftir mánuði frá afhendingardegi. 6.2 Segi leigutaki samningnum upp skal hann greiða % af mánaðarleigu fyrir hvern mánuð, sem eftir er af leigutímabilinu. 6.3 Leigutaki skal tilkynna uppsögn samnings með minnst mánaða fyrirvara.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.