Tölvumál - 01.06.1980, Qupperneq 2
2
TÖLVUMÁL
örtölvubyltingin er í sjálfu sér ekki tæknibylting
- öllu fremur veróbylting vegna tæknilegra fram-
fara. Þessi verðbylting (stórlækkað verð á tölvu-
vélbúnaði) hefur það i för með sér, að nú er vel
fært að vinna ýmislegt með tölvu, sem áður var
ekki fjárhagslega hagkvæmt aó gera í slíkum tækjum,
þótt tæknilega hafi ekkert verið því til fyrirstöóu.
Ahrifa þessarar byltingar mun gæta hægar en spáð
var i sjónvarpsþáttunum, sem sýndir voru fyrir
nokkru. Þvi veldur einkum og sér i lagi innbyggð
tregóa þjóðfélagsins til aö tileinka sér breytingar.
Þá mun og skorta nauósynlegan hugbúnað, til að
unnt verói að nýta vélbúnaðinn til fulls. Ekki
er fyrirsjáanleg bylting i geró hugbúnaóar og mun
hugbúnaðarkostnaóur þvi ekki lækka. Meiri likur
eru á aó sá kostnaður hækki. Mikill skortur er og
veróur á hæfu fólki til aó sinna geró hugbúnaðar.
Þessi bylting mun, þótt hægt fari, flæða yfir okkur
íslendinga eins og aðra, án tillits til skoðana
okkar á málinu. Þaó sem við getum reynt aó gera,
er að leitast við að stýra nokkuð áhrifum og hraða
byltingarinnar. Engin stefna til leiósagnar i þessu
efni mun hafa verió mótuó, né vera i undirbúningi.
Til dæmis hefur litið sem ekkert veriö gert til að
undirbúa jarðveginn meó þvi aó auka kennslu á þessu
sviói i skólum, og þótti mönnum skólakerfið hafa
brugóist i þessu efni. Það stafar væntanlega fyrst
og fremst af þvi aó stefnuna skortir. Þá er og
ljóst, aó litió hafa verió hugleidd áhrif byltingar-
innar á þjóöfélagió og t.d. atvinnutækifæri þegnanna
i framtiðinni, svo sem þeirra, sem miöur eru búnir
gáfum eða sérstökum hæfileikum. Áhrif hinnar nýju
tækni á vinnuumhverfi verða mikil.
Þaó er von og trú Skýrslutæknifélagsins að þær umræður,
sem til þessa hafa orðið hérlendis um tittnefnda (ör)tölvu-
byltingu séu fremur upphaf en endir umfjöllunar þessara
mála.
Hér er á ferðinni málefni, sem kemur til með aó hafa áhrif
á lif hvers einasta einstaklings i þjóófélaginu á komandi
árum - og alda tölvuþróunarinnar verður ekki stöðvuð.
Hins vegar eru vissir möguleikar á að takast megi aó koma
beisli á óhemjuna og ná þar meó á henni nokkurri stjórn.
Lióur i þvi er að vikka sjóndeildarhring almennra borgara
á þessu sviöi - upplýsing er hálfur sigur - ásamt þvi aó
vekja athygli stjórnvalda á þeim vandamálum, sem hér er við
að kljást. Hér kunna félög,eins og örtölvufélagið og Skýrslu-
tæknifélagið aó hafa hlutverki aó gegna.
Skýrslutæknifélagió hefur fyrir sitt leyti áhuga á að
leggja hér lóð á vogarskálarnar og stefnir aó þvi aö taka
þráðinn upp á ný, á vetri komanda.