Tölvumál - 01.06.1980, Qupperneq 7

Tölvumál - 01.06.1980, Qupperneq 7
TÖLVUMÁL 7 meö tiltölulega lítilli tilsögn, aö fá fram á sína endastöö þær upplýsingar, sem hann óskar eftir og hefur aðgang aö, úr upplýsingabanka tölvunnar. Varöandi nýtt forritunarmál mætti minna á kynningu á málinu ADA, sem fram fer nú á næstunni. Annaö sviö gagnavinnslunnar, þar sem framfarir munu veröa hvaö örastar, er sending og móttaka á upplýsingum, bæöi um linur og þráölaust. Á þessu sviöi er gert ráö fyrir aö um geysi miklar framfarir veröi aö ræöa, enda er þetta einn af þeim þáttum gagnavinnslunnar sem vex hve hraöast, því næsta framtíð gagnavinnslu mun byggjast á stórum tölvumiöstöövum og „network". Ég er þeirrar skoöunar, eins og fram hefur korniö, aö örtölvan muni ekki breyta almennri gagnavinnslu, muni aðeins efla þann vélbúnaö sem notaöur er viö hana. Við gagnavinnslu er og verður það hugbúnaðurinn sem skiptir öllu máli. Ef horft er fram á veginn í þessum efnum, sjá menn fyrir sér, aö fyrir lok þessa áratugs, muni það veróa talió jafn sjálfsagt og í dag þykir að sími sé á borðum starfsfólks, að þar veröi einnig endastöó frá tölvu, og geti hver starfsmaður þannig haft beinan aögang aö þeim upplýsingum, sem hann þarf á aö halda. Ég geri ekki ráó fyrir því aö viö hér á landi veröum komnir svona langt að 10 árum liönum, vegna þess hve mjög viö erum nú þegar orðin á eftir i þessum efnum, og ef viö miöum við þróun okkar á síöasta áratug, þá viröist mér aö við séum stööugt aö dragast aftur úr. Jón Þór ólafsson: / ÖRTÖLVUTÆKNIN Eins og þeim er kunnugt er horföu á sjónvarpsþættina um örtölvubyltinguna fyrr i vetur, þá hefur átt sér staö geysimikil þróun í rafeindatækni á síöast liönum 10 árum. Þessi þróun hefur leitt til þess aö nú eru framleiddar tölvur í heilu lagi í einni samrás. Meö hjálp þessara tölva má nú leysa verkefni sem áöur var ekki hagkvæmt aö leysa vegna þess aö kostnaöurinn viö þaö hefði veriö óheyrilegur. Þaö má segja aö núna seinustu misseri séu afkvæmi bylt- ingarinnar fyrst að líta dagsins ljós í formi fullkom- inna tækja og ódýrra tölvukerfa.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.