Tölvumál - 01.11.1981, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.11.1981, Blaðsíða 6
 6 TÖLVUMÁL Ég ætla ekki að svara þessum spurningum, en þaó liggur hins vegar í augum uppi að því fleiri sem fá tilsögn í þessum efnum því betra. Ég held líka að þaö muni verða auðveldara aó kenna fólki þessa hluti í skólum í framtiðinni og kemur þar einkum tvennt til. Skólar hljóta að taka tölvur í notkun til stjórnunar- og kennslustarfa og þannig verður hægt aó kenna fólki aó nota tölvur á þann hátt aó það sé eólilegur þáttur i námi i öórum greinum. Ennfremur mun nýr hugbúnaður, einkum stýrikerfi, valda þvi aó notendur verði ekki varir við hvaða vélartegund þeir eru aó nota. Þannig veróur auð- veldara fyrir skólakerfið að velja kennsluaðferóir án þess að þurfa þar með að velja milli vélagerða eða framleiðenda. Mér sýnist þvi bæói nauðsynlegt og sjálfsagt að skólar veiti sem flestum (helst öllum) kennslu i almennum undirstöóuatrióum tölvunotkunar og gagnavinnslu, en skólakerfið þarf einnig að bjóóa upp á itarlegri kennslu fyrir þá, sem vilja hasla sér völl i gagnavinnslu og tölvurekstri. Þessi fundur er mjög timabær og hafi Skýrslutæknifélagió þökk fyrir framtakið, þvi ég held að framundan sé talsvert starf við skipulagningu kennslu í gagnavinnslugreinum og jafnvel enn meira starf vió aó fylgjast meó þróun mála og gæta þess að kennslan verði samstiga þróuninni. Þessi fundur mætti einnig vera upphaf i samstarfi skóla að þessum málum, þvi i þessum efnum, ekki siður en i mörgum öórum, er kostnaóar- samt aó hokra einn i koti sinu. Við norðanmenn munum heils- hugar taka þátt i sliku samstarfi, sem við teljum að hafa muni ört vaxandi þýóingu.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.