Tölvumál - 01.11.1981, Page 6
6
TÖLVUMÁL
Ég ætla ekki að svara þessum spurningum, en þaó liggur hins
vegar í augum uppi að því fleiri sem fá tilsögn í þessum
efnum því betra. Ég held líka að þaö muni verða auðveldara
aó kenna fólki þessa hluti í skólum í framtiðinni og kemur
þar einkum tvennt til. Skólar hljóta að taka tölvur í notkun
til stjórnunar- og kennslustarfa og þannig verður hægt aó
kenna fólki aó nota tölvur á þann hátt aó það sé eólilegur
þáttur i námi i öórum greinum. Ennfremur mun nýr hugbúnaður,
einkum stýrikerfi, valda þvi aó notendur verði ekki varir
við hvaða vélartegund þeir eru aó nota. Þannig veróur auð-
veldara fyrir skólakerfið að velja kennsluaðferóir án þess
að þurfa þar með að velja milli vélagerða eða framleiðenda.
Mér sýnist þvi bæói nauðsynlegt og sjálfsagt að skólar veiti
sem flestum (helst öllum) kennslu i almennum undirstöóuatrióum
tölvunotkunar og gagnavinnslu, en skólakerfið þarf einnig
að bjóóa upp á itarlegri kennslu fyrir þá, sem vilja hasla
sér völl i gagnavinnslu og tölvurekstri.
Þessi fundur er mjög timabær og hafi Skýrslutæknifélagió
þökk fyrir framtakið, þvi ég held að framundan sé talsvert
starf við skipulagningu kennslu í gagnavinnslugreinum og
jafnvel enn meira starf vió aó fylgjast meó þróun mála og
gæta þess að kennslan verði samstiga þróuninni. Þessi fundur
mætti einnig vera upphaf i samstarfi skóla að þessum málum,
þvi i þessum efnum, ekki siður en i mörgum öórum, er kostnaóar-
samt aó hokra einn i koti sinu. Við norðanmenn munum heils-
hugar taka þátt i sliku samstarfi, sem við teljum að hafa
muni ört vaxandi þýóingu.