Vísir - 23.12.1961, Page 1

Vísir - 23.12.1961, Page 1
VtSIR - - '_'á_.__:_ 51. árg. Laugardagur 23. desember 1691. — 295 B tbl. ASTIR DOSTÖÉVSKYS Ástir Dostóévskys eftir Marc Slonim. Útgef- andi: ísafoldarprent- smiðja, 1961. Qostóévsky mun sennilega löngum verða talinn með- al hinna stóru í heimsbók- menntunum. Sögur hans eru enginn skemmtilestur að jafnaði, en þar er kafað feimulaust í djúp mannlegs eðlis, tilfinninga og ástríðna, glímt við vofur sjúklegra óra í margvíslegum mynd- um. Öllu þessu lýsir Dostó- évsky af kunnleika og sér- stæðri list, svo ógleyman- legt verður þeim, sem hefir dug og dáð til að kryfja sögur hans til mergjar. En þó að sögur hans marg- ar séu ógleymanlegar og furðulegar, var þó saga hans saga hans eigin lífs furðu- legust og ógleymanlegust. Hún tekur fram öllum öðrum sögum hans. Flestar sögur Dostóévskys eru að einhverju leyti sprottnar af reynslu hans sjálfs, brot af hans eig- in ævisögu og lífsbaráttu, reikningsskil hans við sjélf- an sig og öll þau ky alegu öfl, sem byltust og geysubu í hans eigin sál. Á ritum Dostóévskys sannaðist það, sem annar skáldjöfurr orð- aði svo: „At digte, det er at holde dommedag over sig selv.“ Líf og ævi Dostóévskys hlýtur því að vera mjög for- vitnilegt efni fyrir bók- menntafræðinga og sálfræð- inga. Þetta hefir rithöfundur- inn og bókmenntafræðingur- 'inn Marc Slonim fundið, og bókin, sem hér um ræðir er árangur af rannsóknum hans á vissum þáttum í lífi hins mikla snillings. Marc Slonim er fæddur Rússi og fékk uppeldi sitt og menntun í Rússlandi. Hann nýtur því þess að vera vel kunnugur því sviði, $em lífsleikur Ðostóévskys gerðist á. j>að er ekki hugmynd mín að skrifa eiginlegan rit- dóm um þessa bók Marc Slonims. Ég er ekki nógu kunnugur því efni, sem hér um ræðir til þess að ég geti gengið úr skugga um sann- gildi þeirra niðurstaða, sem Slonim kemst að varðandi atvik ýms í lífi Dostóévskys og sálarlíf hans. En hitt er mér óhætt að fullyrða að hér er vel haldið á penna, og efnið er fram sett á ó- gleymanlegan hátt. Þótt bók- in fjalli sérstaklega um ásta- mál Dostóévskys og afstöðu hans til þeirra þriggja kvenna, sem mest gripu inn í líf hans og sem hann elsk- aði heitast, þá er hér um eig- inlega ævisögu að ræða. Ástalíf hins mikla höfundar er hér krufið til mergjar, en um leið er bókin sálfræðileg stúdía á flestum stærstu eðl- isþáttum hans, því að ásta- lífið var enginn afmarkaður reitur í tilfinningalífi Dostó- évskys. Hann var maður mikilla andstæðna í sálarlífi og tilfinningum, en andstæð- urnar grípa hver inn í aðra, svo að einum þættinum verða ekki gerð full skil nema hinna sé getið að nokkru. Af blöðum þessarar bókar fær lesandinn því góða innsýn í sál þessa mikil- mennis og getur horft yfir hið úfna haf tilfinninga hans og ástríðna. Svo vel er rann- sókn Slonims gerð, að les- andinn kynnist ekki aðeins Dostóévsky, heldur einnig sjálfum sér, því þótt mann- verurnar séu misstórar að gerð, er margt líkt og skylt með þeim. í sálflækjum hinna stóru anda getur hinn venjulegj maður fundið stækkaðar myndir af því, sem hann sjálfur glímir við í eigin eðli. ENDURMINNINGAR ALÞINGISMANNS Bernharð Stefánsson. End- urminningar, ritaðar af honum sjálfum. Kvöld- vökuútgáfan 1961. jjetta er notaleg bók og góður lestur eins og bú- ast mátti við af Bernharði Stefánssyni. Hún er ekki ris- mikið bókmenntaverk, enda hefir slíkt aldrei verið ætlun höfundar. Hér er fyrst og fremst um að ræða hógværa og yfirlætislausa lýsingu á því, sem höfundur hefir sjálfur upplifað frá því hann fyrst man eftir sér og fram á þennan dag. Hér eru engar stílbrellur, engin háspenna, sem halda myndi manni vak- andi heila nótt við lestur, aðeins heiðai'leik: og sann- ferðug frásögn, stundum dá- lítið skýrslukennd, en þó hægt að lesa margt á milli lín- anna, og allt er þetta kryddað góðvild og mannviti og stundum hógværri kímni, sem Bernharð er auðugur af. Jjjvi Bernharðs Stefánsson- ar hefir verið viðburða- rík. Hann er fæddur „rétt við háa hóla“, í þeirri sveit, sem listaskáldið Jónas gerði fræga með ljóðum sínum, og alltaf hefir Bernharð verið tryggur sonur sveitar sinnar. Framan af ævi fékk sveitin að njóta starfskrafta hans, því þar starfaði hann sem kennari og bóndi og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum. Var hreppsnefndaroddviti um skeið og forystumaður í ungmennafélagi sveitarinn- ar. Hann hefir verið stjórn- armeðlimur KEA á Akur- eyri um áratuga skeið, úti- bússtjóri Búnaðarbanka ís- lands á Akureyri frá upphafi, þar til hann lét af störfum vegna aldurs. En lengst verð- ur Bernharð minnzt fyrir störf hans á Alþingi, en þar sat hann sem fulltrúi Eyja- fjarðarsýslu í 36 ár, gegndi þar forseta og ritarastörfum og átti sæti í mörgum nefnd- um, bæði þingnefndum og milliþinganefndum. Hér er því sannarlega af miklu að taka, svo ekki þarf höfundur að lúta að litlu í vali frá- sagnarefnis. j^ð vissu leyti .er sjálfsævi- saga Bernharðs stjórn- málasaga þjóðarinnar síð- ustu áratugina. Bernharð segir hlutlaust og samvizku- samlega frá og alls staðar ber frásögnin vott dreng- lyndis og sanngirni í garð andstæðinga. Bernharð hef- ir ekki verið gallalaus maður, og hann getur bresta sinna af sömu yfirlætislausu hrein- skilninni sem als annars. En drengur góður hefir hann altaf verið, trúr sannfæringu sinni og skoðunum, víðsýnn og hleypidómalaus. Hann hefir því ávallt verið virtur af andstæðingum jafnt sem flokksbræðrum, og óvildar- menn á Bernharð fáa að ég hygg, þótt hann sé mála- fylgjumaður mikill og láti ó- gjarnan sinn hlut, ef því er að skipta. Nú í ellinni, er hann hefir tekið sér penna í hönd og ritað endurminn- ingar sínar, lítur hann yfir farinn veg af svo miklu jafn- vægi og öfgaleysi að undrun vekur. Ég veit, að Bernharði hefir oft fundizt kalt í Glæsivallaveizlu íslenzkra stjórnmála, en ókalinn á hjarta hefir hann samt slopp- ið þaðan, það sýnir bók hans bezt. Jg mundi telja það höfuð- galla þessarar bókar, hve höfundur er varfærinn í frá- sögn sinni. Hann vill engum gók Marc Slonims er fróð- leg bók og lærdómsrík. Áhrif hennar endast lengur en lesturinn sjálfur. Fljót- lesin er hún ekki, en hún er góður félagi þeim, sem gefur sér tíma til að melta það, sem hún hefir að segja. Til- gangur hennar er að gera ýmislegt skiljanlegra og ljósara í verkum Dostóévskys en áður, og ég fæ ekki betur séð en að því marki sé náð. Og hvöt ætti bókin öllum að vera til að kynnast verk- um Dostóévkys af eigin raun. Bókin er smekklega út- gefin af ísafoldarprent- smiðju. Hersteinn Pálsson ritstjóri hefir snúið þessari merku bók á íslenzku, og hefir leyst það vandaverk af mikilli prýði. Kristján Róbertsson. gera órétt og segja það eitt er hann getur staðið við, og við það verður frásögnin bragðdaufari, en ef hann hefði látið gamminn geysa. Samt er þarna margan fróð- leik að finna og víða er brugðið upp lifandi og ljós- um myndum, svo sem af þingrofinu fræga 1931. Einn- ig lýsir höfundur vel klofn- ingnum í Framsóknarflokkn- um, þegar Bændaflokkurinn var stofnaður. En í þeirri frásögn er hlutleysið í önd- vegi og sanngirni. Þó kemui’ sanngirnin e. t. v. hvergi betur í ljós en í afstöðunni til Jónasar Jónssonar, þess umdeilda manns. Þótt þar sé komið inn á viðkvæmt mál, verður beiskju naumast vart, en oftar sársauka yfir því að svo varð- að fara sem fór. Þótt Bernharð hafi um langt skeið verið þátttakandi í orr- ustum íslenzkra stjórnmála horfir hann nú með augum athuguls áhorfanda yfir at- burði liðinna ára, gerir grein fyrir viðhorfum sínum og skoðunum, en dæmir engann. Og úr hópi hinna föllnu saknar hann andstæðinganna jafnt og samherjanna. Ást Bernharðs til heimilis og ástvina kemur víða fram. Þótt hann líti á þingmennsk- una sem köllun, finnst hon- um þó hver fjarvist frá ást- vinunum sem útlegð. Og Framhald á bls. 6.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.