Vísir - 23.12.1961, Side 5
Laugardagur 23. des. 1961
VlSIR
5
FYRSTA NÚTTIN - OG SÍÐASTA
Eftir Katharine Brush
Þegar maður nokkur að nafni
Wintringer var í sumarleyfi
sínu á ferðalagi á vesturströnd
Ameríku árið 1950, varð hann
fyrir því óhappi að lenda í bif-
reiðarslysi mörg hundruð mílur
frá heimili sínu. Það var farið
með hann í sjúkrahús í litlu
nálægu þorpi, þar sem hann
þekkti engan, eða minnsta
kosti áleit hann það.
Morguninn eftir var skýrt frá
slysinu í einu dagblaðinu þar
á staðnum og samdægurs kom
hjúkrunarkona inn í stofu til
hans og sagði, að einhver frú
Malcolm Corwin væri komin í
heimsókn til hans.
— Frú Malcolm Corwin? end-
urtók hann. — Eg kannast ekk-
ert við það nafn. Þetta hlýt-
ur að vera einhver misskiln-
ingur. Eg minnist þess ekki, að
þekkja nokkra manneskju hér
eða í nágrenninu.
Hjúkrunarkonan stóð fast á
máli sínu og ókunnu konunni
var vísað inn til hans. í fylgd
með henni var lítill drengur á
að gizka 6 ára.
— Þetta er Dilly sonur minn,
sagði hún og andlit hennar
ljómaði af móðurlegri um-
hyggju. — Fyrst og fremst lang
aðj mig til að líta inn til yðar,
svo datt mér líka í hug að þér
hefðuð gaman af að heilsa upp
á drenginn minn, og nú var
hjúkrunarkonan svo góð að
leyfa okkur að heilsa upp á
yður. Þér munið vafalaust eftir
mér, sagði hún með vaxandi
ákefð. Eg man svo greinilega
eftir yður, þér sem voruð svo
hjálpsamur og elskulegur gagn-
vart okkur Malcolm sællar
minningar í New York á stríðs-
árunum. Munið þér ekki eftir
ævintýrinu á hótelinu?
Wintringer botnaði hvorki
upp né niður í neinu, en þó? —
— Hann fór að rifja upp í hug-
anum löngu liðnar minningar
og ævintýri. Hann sá nú fyrir
sér kornunga vandræðalega
stúlku, bláeyga með rauðbrúnt
bylgjað hár sitjandi í hæginda-
stól í anddyri gistihúss fyrir
mörgum árum. Gat þetta verið
hún? Maður mætir svo mörg-
um á lífsleiðinni sem líkjast
hver öðrum, en eftir að konan
hafði gefið honum fyrrgreind-
ar upplýsingar, rankaði hann
við sér. Nú sá hann í einni svip-
an fyrir sér hina löngu liðnu
atburði. Hann mundi eftir þétt-
skipuðu hótelinu, biðröðinni við
afgreiðsluborðið, unga liðsfor-
ingjanum sem stóð þar og beið
eins og aðrir eftir hvílu nætur-
innar.
Wintringer hafði tryggt sér
næturstað á hótelinu fyrr um
daginn, og þar sem hann var
kunnugur forstjóranum var
hann þar aufúsugestur.
Eftir að hann! hafði komið
farangri sínum fyrir í herberg-
inu, gekk hann aftur niður í
afgreiðsluna, náði sér í kvöld-
útgáfuna af Times og tók sér
sæti.
Biðröðin virtist lítið hafa
minnkað. Þannig var þetta
ætíð á stríðsárunum. Hermenn
komu og fóru og heimsborgin
var miðdepill mannflutning-
anna meira en nokkru sinni áð-
ur. Wintringer leit við og við
upp úr blaðinu og virti fyrir
sér fólkið. Hann veitti fljótt at-
hygli ungum liðsforingja, sem
varð hvað eftir annað að víkja
fyrir háttsettari foringjum, sem
komið höfðu á eftir honum.
Hann leit ekki út fyrir að vera
eldri en 20 ára. Veslings piltur-
inn, hann kemst aldrei að af-
greiðsluborðinu með þessu
lagi. En það gerði hann nú
samt, en einmitt þá tilkynnti
ármaðurinn, að nú væru öll
herbergi leigð. Þetta kom sem
reiðarslag yfir unga manninn.
Nú vissi hann ekki sitt rjúk-
andi ráð. — Hlustið á mig, sagði
hann og leit bænaraugum á ár-
manninn. — Eg hefir verið að
þreifa fyrir mér með herbergi
síðan klukkan tvö í dag, sjáið
þér engin ráð? — Nei, eg hefi
þegar sagt yður, að öll herberg-
in eru leigð. Hann vék sér frá
vonsvikinn og eyðilagður.
Wintringer gat ekki horft upp
á þetta lengur aðgerðalaus.
Hann stóð upp, gekk til liðsfor-
ingjans og sagði honum, að
hann hefði herbergi á leigu
hér í hótelinu. Það væri með
tveim rúmum og honum væri
velkomið að sofa í öðru þeirra.
— Þetta er mjög vel boðið af
yður, sagði liðsforinginn, — en
konan mín er með mér, við vor-
um gefin saman í dag og um
leið benti hann út í anddyrið,
en þar sat einmitt kornung, blá-
eyg, lítil stúlka föl og þreytu-
leg.
Wintringer náði tali af for-
stjóranum og útskýrði fyrir
honum ástæður ungu hjónanna
og hvort ekki væri nein leið að
ráða fram úr þessu. — Því mið-
ur, herra Wintringer, get eg
ekki bætt úr þessu, öll herberg-
in eru þegar fullskipuð. Á þess-
um stríðstímum koma tugir af
slíku fólki og óska eftir nætur-
stað. Nei, mér er það ekki mögu
legt.
— Þér hljótið að hafa í fór-
um yðar legubekk, sem þér
getið sett inn í herbergið mitt,
á honum get eg legið, nú, þá
vantar ekkert annað en fortjald
svo eg geti afkróað mig svona
til málamynda. Ungu hjónin
geta sofið í rúmunum. Þetta er
allur vandinn!
Hótelstjórinn var farinn að
ókyrrast undir þessum lestri.
Hann kvað þetta skýlaust brot
á öllu velsæmi hér innan veggja
hótelsins og því allra hluta
vegna óframkvæmanlegt.
Wintringer var maður á bezta
aldri, skapmikill og fylginn sér
og alls óvanur að láta hlut sinn
fyrr en í fulla hnefana. Ef hann
tók eitthvað að sér varð það
að fá framgang. Hann stóð nú
andspænis forstjóranum og
nánast hreytti framan í hann:
„Ætlið þér að koma því inn
hjá mér að það sé af siðferðis-
legum ástæðum að þér synjið
um þetta? Eins og þér ef til
vitið, eða ættuð að vita, þá
gjörþekki ég heimilishaldið á
þessu hóteli, og er reiðubúinn
að staðfesta það hvar og hve-
nær sem er.“
Þannig hélt hann áfram ó-
myrkur í máli. — Nú getur
hver sem er, sett sig í spor for-
stjórans. Hann var óviðbúinn
þessari dembu, enda taugar
hans í megnasta ólagi. Hann
varð með einhverjum ráðum að
skrúfa fyrir þennan endemis
orðaflaum mannsins Hann var
reiðubúinn að vaða eld og vatn
fyrir Wintringer, svo var af
honum dregið. Jú, hann brá
voru engin önnur ráð og segir
með sínu breiðasta brosi:
„Ef þessi unga kona er eitt-
hvað í ætt við yður, herra
Wintringer (en W. hafði aldrei
minnzt á það einu orði). Þá
horfir málið öðru vísi við og
þar sem þér sem góður gestur
minn eigið hlut að máli, mun-
um við ráða fram úr þessu
sameiginlega. Þetta hefðuð þér
bara átt að vera búinn að
segja mér!“
Nú voru allar hendur á
lofti. Liðsforingj anum og ungu
konunni hans, var þegar vísað
til herbergis Winringers, en
sjálfur hafði hann auga með
að legubekkurinn og tilheyr-
andi yrði færður þangað inn.
Hann lét af hendi við ungu
hjónin aukalykil að herberg-
inu, en sjálfur sagðis hann fara
út að borða, og að því loknu
færi hann í leikhúsið, svo þau
þyrftu ekki að búast við sér
fyrr en eftir miðnætti, enda
skyldi hann ganga hljóðlega
um og halla sér á legubekkinn
bak við tjaldið.
Þetta fór í einu og öllu eftir
því sem hann hafði sagt. Hann
kom ekki heim fýrr en að á-
liðinni nóttu, læddist að legu-
bekknum og var brátt kominn
í fang draumadísanna.
Þegar hann vaknaði um
morguninn, voru þau á bak og
burt ungu hjónin. Hann veitti
því strax athygli að þau höfðu
aðeins notað annað rúmið, sem
var eðlileg ráðstöfun eins og á
stóð, en á náttborðinu höfðu
þau skilið eftir bréfspjald, þar
sem skráð var hjartans þakk-
læti þeirra til hans fyrir þessa
einstæðu hjálpsemi.
— Nú sat unga konan hér
hjá honum í sjúkrastofunni eftir
sjö ár, með litla drenginn sinn
við hlið sér. Aldrei sagðist hún
geta fullþakkað honum vin-
semd hans.
Hún hafði meðferðis stóran
blómvönd handa honum sem
drengurinn varðveitti í litlu
barnshöndunum. Hann hafði
brún augu, lítið eitt íbogið nef
og liðað hár. Wintringer brosti
til hans um leið og hann sagði:
„Þú likist föður þínum litli vin-
urinn“. Augu ungu konunnar
ljómuðu er hún sagði: „Já,
finnst yður ekki? Þetta segja
allir.“
„Hvemig líður manninum
yðar annars? Nú segir maður
ekki liðsforingi lengur.“
Nú dapraðist brosið ungu
konunnar, en rödd hennar var
róleg, eins og hún hefði tamið
sér undanfarin ár að hafa vald
yfir henni er hún svaraði:
„Hann kom aldrei aftur“, sagði
hún með saknaðarhreim í rómn-
um. „Hann féll á vígvöllunum í
Evrópu. Það er einmitt í sam-
bandi við þann söknuð minn
og jafnframt minninguna um
hann, sem ég geymi og gleymi
aldrei góðvild yðar í garð okkar
á hótelinu forðum“, og nú leit
hún til litla sonar síns. „Hann
átti að fara til vígstöðvanna
morguninn eftir. Það var í síð-
asta skipti er ég sá hann.“
(Úr Reader’s Digest).
Ur gömlum skræðum.
Seint á sumri 1856 varð slys
á Apavatni í Grímsnesi, er þrír
menn á bezta aldri drukknuðu
þar samtímis og var helzt gizk-
að á að hrökkáll hafi ráðizt á
mennina og banað þeim.
Um þenna atburð segir Þjóð-
ólfur, fyrst 30. ágúst á þessa
leið
„Þann 22. þ. m. stóðu tveir
ungir menn að engjaslætti frá
Apavatni í Grímsnesi o kom
þeim og þriðja manninum, sem
þar voru skammt eitt frá að
slætti, frá Þóroddsstöðum, öll-
um ásamt, að fara úrk klæðum
og reyna sund í vatninu hjá
Apavatni, en enginn þeirra var
syndur svo getið sé. Þeir leidd-
ust þá allir og óðu út í, sumir
segja í höku, en allt í einu
hurfu þeir allir eða sukku, og
fundust lík þeirra nokkrum
dögum síðar á 1—2 álna dýpi.“
Þann 1. nóvember um haust-
ið veit Þjóðólfur loks nánari
skil á slysi þessu og segir þar:
„Menn þeir er drukknuðu í
Apavatni og fyrr er getið, voru
allir þá til heimilis á sama bæn-
um, þ. e. Apavatni, en einn
þeirra var kaupamaður héðan
að sunnan. Hann einn — en
hvorugur hinna — fór úr utan-
hafnarfötum.
Piltur einn var eftir á engj-
unum og sá að þeir óðu langt
frá landi og djúpt, í herðar eða
höku, en sneru síðan aftur til
lands. En þá hnigu þeir niður
allt í einu og allir í senn, að
piltinum sýndist. Þessvegna
hugði hann að þeir hefðu allir
sokkið niður um sandyrjuaugu,
er hann og aðrir vissu af þar
úti í vatninu. Óð hann að
vörmu spori út þangað og kann-
aði með orfi sínu. Þangað var
og eikum stefnt í allri leitinni
og könnuninni af leitarmönn-
um á bátnum, bæði samdægurs
og framan af hinum næsta degi,
en þá komu þeir augum á líkin
öll talsvert nær landi, á ná-
lægt 2ja álna dýpi, hvert við
hlið annars, á hörðum botni,
nema hvað ökla gormbleyta
var ofan á og þykir þetta, sem
má, einhver hinn óskilanlegasti
atburður.
Hafa nokkrir getið til að
hrökkáll kunni að hafa slegið
mennina því rafurslagi að þeir
hafi fengið bana af eða liðið í
ómegin og drukknað síðan. En
þetta virðist miður trúlegt sak-
ir þess að aldrei hefir — að
sögn — orðið neinna ála vart
þar í vatninu.“
MAÍ, LJIJFI M\í
Framh. af bls. 4.
svo kuldann legði ekki upp
í stofuna til yðar, vesaling-
ur! Og nú er maí á ný.
„Trútt hjarta,“ hélt gamli
Coulson áfram dálítið efa-
blandinn, „sem vorið hefur
fært nýtt líf, og — en hvað
ætli dóttir min segir, frú
Widdup?“
„Hafið engax áhyggjur,“
sagði frú Widdup, glaðlega,
„ungfrú Coulsson----hljóp
á brott með ísmanninum í
nótt!‘,