Vísir - 30.12.1961, Blaðsíða 1
51. árg. Laugardagur 30. desember 1961. — 298. tbl.
Úlafur Thors tekur
við embætti.
Eins og sagt var frá hér
í blaðinu 2. des. s.l. tekur
Ólafur Thors aftur við
embætti forsætisráðherra
1. janúar, svo sem frá
öndverðu var ráð fyrir
gert. Mun þá Bjarni Bene-
diktsson, sem gegnt hefir
embætti forsætisráðherra í
fjarveru Ólafs , taka aftur
við embætti dómsmálaráð-
herra, sem Jóhann Haf-
stein hefir farið með að
undanförnu.
Svikahrappur
handtekinn.
f gær tók lögreglan jastan hátíðina notaði hann til þess að
gamlan viðskiptavin og kunn-
ingja sinn, sem gerzt hafði sek-
ur um ýmiskonar afbrot í sam-
bandi við vxðskipti sín við al-
menning.
Maður þessi heitir Sigurður
Arnbjörnsson og hefur áður
komið við sögu fyrir sviksam-
legt atferli. Var honum síðast
sleppt út rétt fyrir jólin, en jóla-
svíkja peninga og fjármuni og
úr frá manni, og var það talið
2500 króna virði, ennfremur
tóbaksvörur og fleira,.
Sigurður gefur sig almennt
fram sem stýrimann á einu eða
öðru skipi, og hefur til þessa
ekki 'dregið neina dul á nafn
sitt.
Þetta er hvorki rússneskt eða amerískt geimskot. Þetta er lokaæfing Reykjavíkurstráks fyrir
gamlárskvöld, þegar hann lætur rakettur sínar kveðja árið sem Gagarin og Shephard hoppuðu
yfir þyngdarlögmálið. (Ljósni. Vísis I.M.)
Læknadeilan leyst.
Bráðabirgðasamkomu-
lag náðist í læknadeilunni í
gærkvöldi. — Samþykkti
stjórn Læknafélagsins
sáttatillögu Sjúkrasamlags-
ins. Gildir samkomulagið
Mýr aðili hefur
freðfiskútflutning.
Leigir 5 frystihús.
Dr. Magnús Z. Sigurðsson
hefur nýlega tekið á leigu fimm
frystihús með það í huga að
flytja út freðfisk þann sem
þau framleiða. Hingað til hafa
aðeins Sölumiðstöðin og SÍS
annazt sölu erlendis á hrað-
frystum fiski, svo hér er um
nýjan aðila innan þessarar við-
skiptagreinar að ræða.
Hefur Magnús nýlega stofnað
fyrirtækið Atlantor h.f., Aðal-
stræti 6, sem annast á fiskút-
flutninginn. Hafa undanfarið
dvalizt hér á vegum hans
nokkrir Englendingar frá hinni
miklu fisksamsteypu Ross í
Englandi, en sú samsteypa hef-
ur undanfarið keypt af fyrr-
tæki Magnúsar fiskafurðir, m.
a. frystar rækjur og heilfryst-
an smáfisk frá Vestmannaeyj-
um. Mun þessi þátttaka At-
lantors í fisksölumálunum
vafalítið leiða af sér harðnandi
samkeppni á mörkuðum ís-
lenzks fisks erlendis.
Magnús Z. Sigurðsson var
sem kunnugt er lengi í þjón-
ustu Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna og gegndi er-
indrekastörfum fyrir hana á
meginlandi Evrópu, bæði aust-
an tjalds og vestan.
i næstu þrjá mánuði eða
til 1. apríl.
Áðalatriði hins nýja sam-
komúlags eru þessi:
Sérfræðingar mega nú
taka lágt gjald, 15—20 krón-
ur, fyrir að veita sjúklingum
sérstakan viðtalstíma ef þeir
óska. Hægt verður þó, eftir sem
áður, að ná tali af þeim á al-
| mennum viðtalstímum án þess
j að greiða aukagjald þetta.
-Jf Gjöld sjúklinga til heim-
1 ilislækna, sem nú eru 5—10
I krónur, hækka nokkuð. Sú
hækkun kemur þó ekki til fram
kvæmda fyrr en eftir nauðsyn-
lega lagabreytingu.
Sjúkrasamlagið greiðir
nú sérfræðingum orlofsfé og
framlag í tryggingarsjóð að
upphæð 11.3% af launum
þeim, sem þeir taka hjá sam-
laginu. Slíkar greiðs}ur hafa
ekki tíðkast áður til sérfræð-
inga. Grunngreiðslur til þeirra
af hálfu samlagsins hækka þó
ekki að jafnaði.
Gunnar Möller hrl. fram-
kv.stjóri S. R., sagði blaðiriu' í
gærkveldi að lítið hefði borið
á milli varoandi samningsgrund
völlinn sjálfan, en aftur á móti
hefði borið talsvert á milli að-
ila um greiðslur, sérstaklega
Frh. á 3. síðu.
ÁRAMOTA
/ ■■
AVORP
Að vanda mun forsætis-
ráðherra landsins flytja á-
varp til þjóðarinnar í út-
varpið á gamlárskvöld. Á-
varp þetta mun forsætisráð-
Iierra Bjarni Benediktsson
flytja klukkan 20.00.
Á nýársdag ávarpar for-
setinn herra Ásgeir Ásgeirs-
son þjóðina í útvarpinu og
talar hann beint frá forseta-
setrinu og hefst ávarp hans
klukkan 13.00.
VÍSIR
i