Tölvumál - 01.03.1984, Qupperneq 5

Tölvumál - 01.03.1984, Qupperneq 5
5 1.2 Gildissvið Staðallinn kveður á um niðurröðun íslensku stafanna í sæti, sem ætluð eru fyrir sérþjóðlega stafi, í töflu 1, TABLE 1 - Basic code table, samkvæmt ISO 646 og GO samkvæmt ISO 2022. Staðallinn kveður á um niðurröðun tákna í táknróf G2, samkvæmt ISO 2022. Staðallinn kveður einnig á um röo tákna við flutning breiðra sérhljóða. 2 SKÝRINGAR 2.1 Orð, hugtök og ritháttur. Skýringarrtar gilda aðeins fyrir þennan staðal. Tákn: Stakur fulltrúi eininga sem notaður er til að skipuleggja, stýra eða lýsa gögnum. Táknróf: Tafla sem sýnir einkvæmt samband milli tákna og kóða. Sérþjóðlequr: Tákn í alþjóðlegum staðli sem getur verið breytilegt eftir löndum. Stýritákn: Sæti: Kóði: Bitaröðun: Stakur fulltrúi eininga sem notaður er til að stýra gögnum. Sá hluti táknrófs sem skilgreindur er með dálki og línu. Einkvæmar reglur um samhengi tákna í táknrófi og bitaröðun þeirra. Hvert tákn er kóðað með 7 tvíundartölustöfum, bitunum, b7, b6, .. b1, þar sem b7 er hágildið og b1 er lággildið. Þar sem þess er þörf má gefa einstökum bitum vægi samkvæmt tvíundar- kerfi: Biti: b7 b6 b5 b4 b3 b2 b1 Vægi: 64 32 16 8 4 2 1 Ritháttur: í þessum staðli er notaður tvenns konar ritháttur til að skilgreina sæti tákns í táknrófi. Annars vegar bókstafir, sem einhlítt lýsa hvað við er átt, t.d. ESC. Hins vegar er notað númer dálks og númer línu. í þeim tilvikum er skrifað 1/11, dálkur númer 1, 11. lína, í stað ESC.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.