Tölvumál - 01.03.1984, Síða 9

Tölvumál - 01.03.1984, Síða 9
9 Aðferð 1 Breiður sérhljóði er kóðaður sem broddur fyrst og síðan sérhljóðinn. Aðferð 2 Breiður sérhljóði er kóðaður sem SS2 fyrst og síðan sérhljóðinn. SS2 má kóða á tvennan hátt, sem ESC 4/14 eða, ef nauðsynlegt er að nota einungis einn kóða, þá sem 1/9. Þannig má tákna Á með ESC 4/14 4/1 eða 1/9 4/1. 3.3 Takmarkanir Staðallinn lýsir því einungis hvaða kóðar eru notaðir við flutning gagna milli tækja óháð aðferðinni sem við það er notuð. 3.4 Möguleikar Staðallinn býður upp á möguleika til að kóða nútíma íslensku þannig að flytja megi texta frá einum stað til annars án þess að hann brenglist í meðförum. Staðallinn gefur einnig möguleika á að kóða þau tákn, sem viku fyrir séríslenskum stöfum og táknum úr sætum sínum, í töflu 2 í ISO 646. 4 MERKINGAR 4.1 Tæki Tæki sem uppfylla þennan staðal skulu merkt. Merkingin skal vera augljós. Þetta tæki uppfyllir kröfur skv. ÍST ..., Aðferð ...

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.