Tölvumál - 01.03.1984, Side 10
FRÁ orðanefnd
1 7. tölublaði Tölvumála 1983 var greint frá útgáfu Tölvuoróasafns.
Orðanefnd Skýrslutæknifélagsins var endurvakin árió 1978 og er
Tölvuorðasafn afrakstur af starfi þeirrar nefndar. I inngangi að
bókinni er gerð grein fyrir fyrri orðanefndum og undirbúningi að
Tölvuorðasafni og er ekki ástæða til aó endurtaka það hér. I for-
mála að Tölvuorðasafni er einnig gerð grein fyrir þætti íslenskrar
málnefndar i útgáfu bókarinnar. Orðanefndarmenn eru mjög ánægðir
með aó samstarf skuli hafa tekist við íslenska málnefnd á þennan
hátt, en segja má aó orðanefndin sé komin undir verndarvæng mál-
nefndarinnar.
Eins og greint er frá i inngagni að Tölvuorðasafninu er stefnt að
þvi að gefa út stærri og endurskoðaða útgáfu af orðasafninu, ásamt
skýringum, eins fljótt og auðió er. Undirbúningur að þvi starfi
er þegar hafinn. Oróanefndarmenn hyggjast leita eftir samstarfi
vió fleiri áhugamenn um málrækt á meðal tölvumanna og er ætlunin
að setja á fót hliðarnefndir eða undirnefndir, er starfi að ýmsum
sérmálum. Ágætt samstarf hefur þegar tekist við hóp áhugamanna
um islensk orð yfir "mikro"-miðla. Vonandi mun afrakstur af þvi
samstarfi sjá dagsins ljós bráðlega.
Orðanefndinni er mjög nauðsynlegt að eiga sem best samstarf við
alla tölvunotendur. Litið gagn er aó þvi aó búa til orð, ef þau
eru ekki notuð. Ég skora þvi á alla, sem vilja gera athugasemdir
viö efni Tölvuorðasafnsins að láta til sin heyra. Okkur er annt
um að fá vióbrögð við einstökum þýðingum og einnig ábendingar um
orð og orðasambönd, sem þarf að þýða. Einkum viljum við beina
þessari ábendingu til innflytjenda tölvubúnaðar, þvi að á þeim
brennur skortur á islenskum þýðingum, þegar setja á saman aug-
lýsingar og notendaleiðbeiningar á islensku. Athugasemdum má
koma skriflega eða munnlega til islenskrar málnefndar, Aragötu 9,
simi 2 85 30 eða með þvi að hafa samband við undirritaóa.
Ætlunin er að orðanefndarmenn láti frá sér heyra i Tölvumálum,
þegar ástæóa þykir til. Ekki var ætlunin að ræða um einstök orð
eða orðaþýðingar, að þessu sinni. Mig langar þó til að drepa á
eitt atriði. Á undanförnum mánuðum hef ég sótt tvær tölvusýningar
og fylgir að jafnaði flóð kynningar- og auglýsingablaða. Þar er
nær undantekningarlaust talað um diskettur og diskettustöðvar og
ég þekki eingan, eða að minnsta kosti mjög fáa, nema orðanefndar-
menn sjálfa, sem taka sér i munn islenskt orð um þetta fyrirbæri.
Orðanefndin hefur fjallaó oftar og lengur um þýingu á diskette,
en um flest önnur oró og ýmsar þýðingar hafa verió reyndar, en
allt kemur fyrir ekki. Nú skora ég á tölvunotendur að leggja
höfuðin i bleyti og finna snjalla þýðingu á diskette, orð sem
einnig er þjált i samsetningum.
Og svo er það sjálft orðið tölva. Ég hef áður bent á það á þess-
um vettvangi, hversu margir nota ranglega nefnifallsmyndina talva.
Ég hef að undanförnu heyrt mætustu menn nota orðið á þennan hátt
og get þvi ekki stillt mig um að endurtaka einu sinni enn, að
oróió tölva beygist tölva - tölvu - tölvu - tölvu.
Sigrún Helgadóttir.