Tölvumál - 01.03.1984, Síða 12
NordDATA 84 HELSINKI 5.-7.6.1984 HELSINGFORS
Skýrslutæknifélaginu hafa borist upplýsingar frá DIS ERHVERVS REJSER,
þar sem boðiS er upp á, í samvinnu við Danska Skýrslutæknifélagið,
sérstök kjör á ferðum á NordDATA 84 ráðstefnuna, sem haldin verður í
Helsinki 5.-7. júní 1984. Pantanir í þessar ferðir þurfa að berast
DER fyrir 1. apríl n.k. Boðið er upp á tvo "pakka":
FERÐ A: Kaupmannahöfn-Helsinki. Flogið er frá Kaupmannahöfn til_
Heisinki þann 4. júni og gist á Hotel Qlympia eða Hotel Torni frá
4. til 7. júní. Flogið til baka til Kaupmannahafnar 7. júni.
Verð á þessari ferð er frá D.Kr. 4.200,- á mann, í tveggja manna
herbergi. Innifalið í verðinu er: Flugfar Kaupmannahöfn/Helsinki/
Kaupmannahöfn, ferðir frá flugvelli á hótel og tilbaka, hótel í
þrjár nætur með morgunmat og flugvallarskattur.
FERÐ B: Kaupmannahöfn/Helsinki/Leningrad. Flogið er til Helsinki
frá Kaupmannahöfn 4. júní og gist á Hotel Olympia eða Hotel Torni.
4. til 8. júní. 8. júní er farið í lest frá Helsinki til Leningrad.
8. - 11. júni gist á Hotel Leningrad. 9. júni er Skoðunarferð um £
Leningrad og um kvöldið er farið í RÚssneskan sirkus. Sunnudag ^
10. júní er heimsékn í Vetrarhöllina og St. Isaac Cathedral. Um
kvöldið er farið á balletsýningu. 11. juni er flogið til baka til
Kaupmannahafnar í gegn um Helsinki. Verð á þessari ferð er frá
D.Kr. 5100,- á mann, miðað við tveggja manna herbergi. Innifalið
er: Flugfar Kaupmannahöfn/Helsinki, Leningrad/Kaupmannahöfn. Hétel-
í 4 nætur í Helsinki, Lestarferð Helsinki-Leningrad með morgunmat.
Hételherbergi í 4 nætur í Leningrad með hálfu fæði. Skoðunarferðir,
ballet og sirkus. Ferðir til og frá hétels. Enskumælandi leiðsögu-
maður í USSR. Visa til USSR.
Hér var stiklað á stéru úr ferðaáætlun frá DIS ERHVERVS REJSER.^ Ef
nánari upplýsinga er éskað, þá hafið samband við skrifstofu Skýrslu-
tæknifélagsins í síma 82500, eða við DIS ERHVERVS REJSER, Skindergade
28, DK-1159 Kþbenhavn K, Telefon:01-11 62 62, Telex 15213 DIS DK.
(TöluniniU
Pósthólf 681
121 REYKJAVÍK
Viötakandi