Vísir - 02.01.1962, Qupperneq 1
VISIR
52. árg. Þriðjudagur 2. janúar 1962^,— 1. ibl.
Sprengja veldur
afvarlegu slysi.
Á gamlársdag varð allalvar-
legt slys á 9 ára dreng hér í
Reykjavík, sem orsakaðist af
sprengju.
Drengurinn, sem slasaðist,
heitir Kjartan Kristjánsson, 9
ára að aldri og til heimilis að
Heiðargerði 89.
Kjartan var fyrir utan húsið
hjá sér í leik með fleiri krökk-
um. Voru krakkarnir m. a. með
startbyssuskot, sem límt var
yfir með bréfi og síðan kveikt
í. Verður af þessu mikill hvell-
ur og hafa krakkar gaman af.
Ekki er með öllu upplýst, hvern-
ig slysið varð, en þó talið að
Kjartan litli hafi tekið upp skot-
ið, þegar honum þótti seinka
að kviknaði í því, en þá sprákk
það skyndilega og patrónan
rauk upp í auga drengsins og
varð af mikið sár.
Drengurinn komst heim til
sín og var strax náð í lækni og
drengurinn fluttur í Landakots-
spiíala, þar i$em gerð var á
drengnum ein mesta skurðað-
gerð sinnar tegundar, sem hér
hefur verið framkvæmd.
Ekki verður neitt fullyrt um
það ennþá, hvort drengurinn
heldur sjón á auganu eða ekki.
Talið er, að næstu tíu dagar
skeri úr um það. En í morgun
leið drengnum eftir öllum von-
um, hafði sofið í nótt og var
orðinn hitalaus.
Þing iíatanga kem-
ur saman á morgun
Tsjombe hefur algerlega hafn-
að uppástungu Kasavúbú for-
seta um, að Katanga-þing komi
saman í Kamina-herbúðunum,
vegna öruggis þingmanna, sem
eru andstæðingar hans.
Vegna framangreindrar af-
stöðu Tsjombe er ekki annað
vitað, eins og stendur, en að
Katanga-þing komi saman í El-
isabethville á morgun, miðviku-
dag, eins og Tjsombe hafði áð-
ur boðað.
Fréttaritarar segja, að svo
virðist, sem Tsjombe hafi snúið
hér á Kasavúbú og Adoula og
haldi nú fram rétti Katanga sem
sjálfstæðs rikis til ákvörðunar
í ofangreindu efni.
Brezka stjórnin hefur komið
áleiðis til stjórnar Mið-Afríku-
sambandsins brezka og Rhodes-
íu, uppástungu U. Thants fram-
kvæmdastj. S.Þ. um að þær hafi
eftirlitsmenn á landamærum
Rhodesiu til að gæta þess, að
ekki verði smyglað vopnum inn
í Katanga.
Það var stór og fallegur
strákur, sem vann kapp-
hlaupið um titilinn fyrsta
barn ársins 1962, á fœðingar-
deitd Landsspítalans. Þegar
Ijósmyndarinn mœtti á nýárs
dag til að mynda hnokkann
og móðurina, fannst drengn-
um lítið um tilstandið. Hann
var lagður í fang móðurinn-
ar, og þegar Ijósmyndarinn
myndaði sig til að smella af,
lét hann sig hafa það að geispa
framan i myndavélina. Móð-
irin, Þurxður Sigurjónsdóttir
á Bjargi í Mosfellssveit, fert-
ug eiginkona Sveins Guð-
mundssonar garðyrkju-
manns, var afaránægð með
soninn, sem er fimmta barn
þeirra hjóna. En hún sagði,
að það væri þýðingarlítið að
tala við sig, hún vœri ekki
búin að ná sér eftir fœðing-
una, sem annars gekk vel. ö°
En henni þótti gaman, að I;
strákurinn skyldi verða á !|
undan öðrum börnum þarna I'
á deildinni. Strákurinn var I*
4200 grömm að þyngd og 53 I*
cm á hæð, samkvæmt opin-
berum mœlingum. Það var ’•
eklci fyrr en nokkru síðar
um daginn, að fyrsta barnið ;•
á fœðingardeildinni á Eiríks-
götu kom í heiminn. J.
(Ljósm. Vísis. I. M.)
■.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.-
Salazar hélt velli.
Stjórn Portúgals tilkynnir,
að allt sé með kyrrum kjörum
landinu eftir að byltingartil-
raun var bæld niður í landinu
gærmorgun. Lausafregnir frá
Sjómaður týndur og lítil
telpa ferst af slysförum.
Daginn fyrir gamlársdag bár-
ust þær fregnir frá hafnarborg-
inni Bremerhaven, að þar hefði
ungur sjómaður af togaranum
Frey horfið sporlaust. Til hans
liefur ekki spurzt síðan. Maður
þessi heitir Hilmar Guðmanns-
son. Á gamlársdag vildi það
sviplega slys til vestur á ísa-
firði, að 10 ára telpa fórst af
slysförum.
Sjómannsins af togaranum
Frey var saknað aðfaranótt 27.
desember. Leit hefur verið hald-
ið uppi síðan að hinum týnda
manni, í Bremerhavan og víð-
ar, en árangurslaust. Hilmar
i-nðmannsson var aðeins 23 ára
að aldri. Var hann búinn að
vera á Frey um nokkurt skerð,
byrjaði sem háseti, en nú síðast
var hann smyrjari í vélarrúmi
skipsins. Hilmar lætur eftir sig
konu, Ásthildi Sigurgeirsdóttur,
og tvö ung börn. Þau bjuggu í
stóra, tvílyfta bragganum Mela-
húsi við Hjarðarhaga, hér í bæn-
um. Óttast er, að Hilmar hafi
farizt á einhvern hátt.
Hið sorglega slys á ísafirði
varð þar í bænum um klukkan
2 á gamlársdag. Snjóföl var þar
í bænum og sleipt á götunum.
Voru börn allvíða að leik á
sleðum sínum. Á Urðarvegi var
I gott sleðafæri og þar var með
j ,,magasleða“ sinn Anna María
! Friðriksdóttir, Hlíðarvegi 5.
Hafði hún brunað niður Urðar-
veginn á sleðanum, niður á
Hlíðaveg, missti vald á sleðan-
um, sem rakst á ljósastaur. Virð-
ist sem Anna litla hafi við það
fallið af sleðanum og orðið fyrir
framhorni hans, því meiður
sleðans gekk á hol. Lézt litla
telpan um það leyti, sem komið
var með hana í sjúkrahús bæj-
arins.
Anna María var dóttir Frið-
riks Bjarnasonar málarameist-
ara, Hlíðavegi 5 á ísafirði.
landinu hernia þó að mikil ólga
sé undir niðri og sé öryggislið
hvarvetna á verði. Stjórnin
hefir m. a. Iátið hætta við
fjöldagöngu sem fara átti fram
til embættisbústaðar Salazars
forsætisráðherra, enda mun
hún óttast, að slíkt geti valdið
æsingum.
Þriggja klst.
bardagi.
Allar fréttir um byltingar-
j tilraunina eru frá stjórninni
komnar. Samkvæmt þeim
voru það fjörutíu manns, flest-
ir úr borgarastétt, sem bylting-
una gerðu undir forustu
tveggja liðsforingja. Fóru þeir
í bifreiðum frá Lissabon til
herbúðanna í Beja um 180 km.
suður af Lissabon. Voru þeir
vopnaðir vélbyssum og skamm-
byssum. Þeir munu hafa náð
skála liðsforingja á sitt vald í
bili, en einhverjum þar tókst
að komast burt og gera aðvart,
Frh. á bls. 12.
Biíðarúður brotnar á
rólegu gamlárskvöldí.
Þótt bæjarbragur sé talinn
hafa verið góður hér í Reykja-
vík á gamlárskvöld, og stór-
átakalaust voru samt brotnar 4
stórar búðarrúður í „gamlabæn-
um“ og lögreglan þurfti að hafa
afskipti af töluverðum fjölda
unglinga vegna óspekta. Um 100
áramótabrennur í bænum tók-
ust mjög vel, sumar mjög tign-
arlegar, og margir dauðþreyttir
brennustrákar horfðu hreyknir
á verk sitt fuðra upp í kyrran,
dimman himininn, milli kl.
10.30 og 11. Mikill mannfjöldi
var við brennurnar, og gífurleg
umferð bíla, sem lögreglan
stjórnaði með prýði, þannig að
umferðarslys urðu ekki.
Framh. á 12. síðu