Vísir


Vísir - 02.01.1962, Qupperneq 6

Vísir - 02.01.1962, Qupperneq 6
6 V í S I R Þriðjudagur 2. janúar 1962 ÚTGEFANDI: BLADAÚTGÁFAN VÍSIR Ritst|órar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel íhorsteinsson. Fréttastjór- ar: Sverrir Þórðarson, Porsteinn ó Thorarensen. ' Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 27 Auglýsingar og afgreiðsla. Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur 45,00 ó mónuði. - T lausasSlu krónur 3,00 eintakið. Slmí 1 1660 (5 (fnur). — Féiag* prentsmiðjan h.f Steindórsprent h.f. Eddo h.f Gildir gjaldeyrissjóðir. AS liðnum áramótum er eðlilegt að menn renni huganum yfir liðið ár og geri sér grein fyrir því hvað hefir áunnizt frá síðustu áramótum. Á sviði stjórn- málanna er mjög um það deilt hverjir sigrar hafi unnizt og hver árangur hafi orðið af starfi ríkisstjórnar og stjórnarflokka. Andstöðuflokkarnir hafa sagt kjósend- um sínum að núverandi ríkisstjórn hafi ekki staðið við þau heit, sem hún gaf þjóðinni í öndverðu. Tveimur dögum fyrir gamlársdag gaf Seðlabank- inn út fréttatilkynningu, sem sýnir glögglega hver fá- sinna það er að ætla að neita staðreyndum í efnahags- málum. Þar var skýrt frá því að nú væri hafin endur- greiðsla á þeim bráðabirgðalánum, sem tekin voru þeg- ar viðreisnin var hafin. 86 milljónir króna voru endur- greiddar til Evrópusjóðsins þann dag sem fyrsta af- borgun. Þessi lán, að upphæð 12 milljónir dollara, voru tekin til þess að skapa gjaldeyrisvarasjóði þa, sem sár- lega skorti þegar stjórnin tók við. Þá var útlitið í peningamálunum vægast sagt hörmulegt. Engír varasjóðir en fjöldi óreiðuskulda bankanna erlendis, sem sífellt jukust. En á skammri stund hafa veður skipazt í lofti. Svo gjörsamlega hefir tekizt að rétta við fjárhag landsins, út á við sem inn á við, að hrein gjaldeyriseign bankanna er nú 393 milljónir króna. Hún var engin þegar stjórnin tók við. I stað þess að safna skuldum erlendis erum við nú farnir að greiða skuldir okkar upp. Mánaðarlega hefir gjaldeyrisstaðan batnað síðan stjórnin tók við. Því eru takmörk sett hve stjórnarandstaðan fær lengi blekkt kjósendur sína og talið þeim trú um að núverandi stjórn hafi haldið báglega á málum lands- manna. Gegn beinhörðum tölum duga ekki slagorð. Gjaldeyrisforði upp á tæpar 400 milljónir er stað- reynd sem ekki verður véfengd. Læknadeilan. Því hefir verið almennt fagnað að læknadeilan hefir nú verið leyst til bráðabirgða. Um áramótin var gildis- tími bráðabirgðalaganna á enda og var því mikið í húfi að samkomulag næðist, áður en til algjörra samn- ingsslita með læknum og Sjúkrasamlaginu kæmi. Það samkomulag, sem nú hefir í bili verið gert felur í sér nokkrar hækkanir gjalda til sérfræðinga og einnig til heimilislækna fyrir vitjun og viðtal. Munu flestir telja, að þær hækkanir séu sanngjarnar, enda munu þær ekki valda hækkun iðgjalda, sem neinu nemur. En hér hefir aðeins verið stigið fyrsta sporið. Eftir er að semja um frambúðarlausn deilunnar. Er þess að vænta að sá samvinnuandi sem þegar hefir komið í ljós muni reynast nægur til fullnaðarlausnar deilunnar. sambúð við svarta Virðist nú augljóst, að vikuna sem liðin er síðan ambassdornum var vikið heim, hefir verið reynt að ná einhverju samkomulagi bak við tjöldin, og þá senni- legast að undirlagi sovét- stjórnarinnar, sem að dómi erlendra blaða beið mikinn álitshnekki við brottvísan ambassadorsins. Átti aS vera stökkbretti. Það kemur fram í erlend- um blöðum, að ætlan sovét- stjórnarinnar hafi verið að gera Guineu að einskonar stökkbretti til mikillar áróð- urs- og útþenslusóknar, sem heyja skyldi til þess að gera Afríku alla kommún- istiska, en sovétstjórninni þótti Sekou Toure líkleg- astur fyrir þrem árum til þess að verða henni þægur leppur. Sekou Toure er 38 ára, gáfaður maður, hefir reynzt einaðari og ákveðnari en búizt var við í Moskvu. Kom það í ljós er óánægjan Solod. Fréttir frá Moskvu herma, að Sekou Toure forseti Vest- ur-AfríkuIandsins Guinea,, sem er fyrrverandi frönsk nýlenda og fékk sjálfstæði fyrir þrem árum, hafi boðið Anastas Mikojan, fyrsta varaforsætisráðherra Sovét- ríkjanna, í heimsókn upp úr áramótunum, og Mikojan þekkzt boðið, sem sé fram komið til að bæta samstarf Sovétríkjanna 0,3 Guinea. Sendiherra rekinn. Að undanförnu hefir lítið sem ekkert heyrzt frá Moskvu um sambúðina og samstarfið við Guineu, en ekki er nema vika liðin síð-. an er Sekou Toure vísaði ambassador Sovétríkjanna í Conakry, höfuðborg Guinea úr landi, og sakaði hann um að hafa staðið að ráðabruggi um að steypa stjórn lands- ins. Sekou Toure. tók að magnast í Guineu yf- ir framkomu sovézkra tæknifræðinga, og voru sum- ir, sem unnið höfðu í dem- antanámum landsins, sendir heim við lítinn orðstír. Nýlega kom Sekou Toure heim til Conakry fjórum dögum á undan áætlun úr ferðalagi á landsbyggðinni, og sakaði þá erlend ríki um að hafa staðið á bak við samsæri stúdenta og mennta manna, sem ætluðu að steypa honum og stjórn' hans. Sakaði Sekou Toure þá Daniel S. Solod am-! basador Sovétrikjanna um! að hafa staðið á bak við ogl vísaði honum úr landi. > ■ ■ Rússum sárnar. ! Kom þetta sem reiðarslag! yfir sovétstjórnina — og! sveið enn meira undan,! vegna þess að ekki var hrófl-I að við meðbiðlum sovét-! Anastas Mikoyan. I ■ ■ manna um hylli blakkra! þjóða — kínverskum komm-I únistum. Talið er oð sovét-I stjórnin hafi sent alls 5001 „agenta“ í gervi „tækni-I fræðinga“ til Gione og áttu! þeir að vielja úr 3 miljónum! landsmaiwia, menn líklega! til áróðursstarfa í öðrum! löndum Afríku. ! Ambassadorinn hafði áður» B starfað í Egyptalandi og er« talið, að Nasser forseti hafi» getað gefið Sekou Toure • mikilvægar bendingar um ■ starfsaðfferðir hans, en í ■ Egyptalandi sem víðar, var" kommúnistum fagnað fyrst í* stað, en menn löngu búnir ■ að átta sig á, hvað fyrir ■ þeim vakir. > Uppdráttur er sýnir legu Guineu. '.V.V.V.’AV.V.V.V.V.V.V. 'I^- Burnett biskup í Bloem- 'I ifontain, Suður-Afríku, varð 'I fyrir árás nýl. um hábjart- 'J an dag. Réðust tveir menn 'I á hann í Grahamstown og stungu hann rýtingum, en særðu hann ekki lífshættu- lega. — Biskupinn er Afrík- ani og kunnur sem mikill baráttumaður gegn kyn- þáttakúgunarstefnu stjórn- arinnar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.