Vísir - 03.01.1962, Side 1
VISIR
52.‘árg:“]Vliðvik«dagur 3. janúar J962. — 2. tbl.
fluttur um Keflavík ?
Bandaríkjastjórn
ákveðið að senda 6000
manna herlið skyndilega
hefur til Evrópu einhverntíma á
tímanum frá 16. janúar til
12. febrúar. Herlið þetta
HöHbænda !
við Hagatorg
ÞETTA er nýjasta stórhýsi
borgarinnar, höll bændanna
við Hagatorg. Fyrir hátíðarn-
ar voru vinnupallarnir rifn-
ir utan af byggingunni, og
má nú sjá glöggt útlínur og
liti byggingarinnar. Gífurleg-
ur fjöldi manna, iðnaðar-
manna, er nú við vinnu í
höllinni: múrarar, málarar,
rafvirkjar, loftræsirigar-
menn, handriðasmiðir og tré-
smiðir. Þá hefur leiktjalda-
málaranum Lothar Grund
verið falið að sjá um hina
listrænu skreytingu í bygg-
ingunni, til dæmis í anddyri,
á bprum, í matsal og víðar.
Óhemju vinna liggur fyrir
í höllinni. Gluggar hennar á
öllum hæðum eru meira og
minna upplýstir af vinnu-
Ijósum iðnaðarmannanna.
Veggir hótelherbergjanna
verða klæddir með mjög
vönduðu veggfóðri, en ekki
málaðir.
verður flutt flugleiðis yfir
hafið og því eru miklar lík-
ur til þess, að það þurfi að
hafa stutta viðkomu á
Keflayikurflugvelli meðan
flugvélarnar taka benzín,
þótt enn hafi ekki verið
gefin út tilkynning um það.
Hreyfanlegur
herstyrkur.
Herflutningar þessir eru lið-
ur í áætlun Bandaríkjastjórnar
og NATO um að breyta varn-
arkerfinu þannig, að treyst
verði meira en áður á það sem
kallast „hreyfanlegur herstyrk-
ur“.
Norstad stjórnar.
Tilkynning um þessa her-
flutninga var gefin út af her-
stjórn NATO í París og var
's\'-rt frá því, að jafnskjótt sem
herliðið væri komið til Evrópu
myndi það taka þátt í vetrar-
heræfingum bandaríska varn-
arliðsins í Bæjaralandi. Lauris
Norstad yfirhershöfðingi mun
•sjálfur stjórna heræfingum
þessum.
andtriíarárdðurs!
segir í tiikynningu Sovét-
sendiráðsins í Reykjavík.
Áróðurinn gegn kristinni trú
er nú aftur hafinn í ríkum mœli
í Sovétríkjunum. í stadinn á
að dýrka manninn, liinn mikla
leiðtoga, þrátt fyrir það að kom-
múnistar hafa sagt að skurð-
goðadýrkun sé horfin í Sovét-
ríkjunum.
í hinni löngu rœðu sinni á
22. þingi kommúnistaflokks
Ráðstjórnarríkjanna, rœddi
Krúsév um mótun hins nýja
manns í anda kommúnismans.
Er frá þessum kafla ræðunnar
skýrt í fréttatilk. nr. 20 frá
sendiráði Sovétríkjanna hér.
Kemst Krúsév þar m. a. svo
að orði um hinn nýja mann,
sem flokkurinn ætlar að móta
.... „Menn verða ekki fluttir
á rennireim úr ríki auðvalds í
ríki kommúnisma."........,Leif-
ar fortíðarinnar eru ægilegt
vald, sem þrúgar niður hugi
manna. Þær haldast við í lífi
og hugsjón milljóna löngu eftir
að horfnar eru þær efnahags-
legu aðstæður, sem voru upp-
.haf þeirra.“ Litlu síðar kemst
Krúsév þannig að orði:
„Kommúniskt uppeldi fel-!
ur í sér lausn mannshugar- j
ins af klafa trúarlegra;
hleypidóma og hindurvitna, |
sem enn hamla ýmsum ráð-
stjórnarþegnum frá því að
neyta til fulls hœfileika
sinna í jákvœðu starfi. Nauð-
syn er á áhrifameiru og bet-
ur skipulögðu kerfi vísinda-
íegs andtrúaráróðurs, er nái
til allra hluta og hópa lands-
búa og hamli útbreiðslu trú-
arskoðana, einkum meðal
barna og unglinga.“
Og enn síðar segir Krús-
év:
„Sköpun liinnar nýju teg-
unar þjóðfélagsþegns, manns
með glœstar hugsjónir og há-
leit siðferðissjónarmið, er
eitt af mestu afrekum flokks
vors.“
Lokaorð hans í þessum kaflá
Framh. á 2. síóu.
í gærkvöldi fóru fram miklar
hátíðagöngur og hersýningar í
Havana, höfuðborg Kúbu. Til-
efnið var að þrjú ár eru liðin
síðan Castro gerði byltingu og
komst til valda.
- Ú
Sýningarnar þóttu nú bera
svip rússneskra hátíðasýninga.
Voru festar upp á húsveggi risa-
stórar myndir af Lenin og
Castro. Stærsta myndin af
Castro var andlitsmynd fest á
húsvegg um 30 metra há.
Við hersningu sem fram fór
á aðaltorgi Havana voru ein-
göngu sýnd rússnesk vopn,
skriðdrekar og fallbyssur. Þá
flugu rússneskar og tékknesk-
ar orustuþotur yfir torginu.
Nýr skrif-
stofustjóri
Fiskifélags.
UM áramótin lét Arnór Guð-
mundsson skrifstofustj. Fiski-
félags íslands af störfum eftir
37 ára starf hjá félaginu.
Hefur nýr skrifstofustjóri
verið skipaður í hans stað. Er
það Már Elíasson hagfræðing-
ur. Már er 33 ára að aldri, nam
hagfræði við Háskólann í
Cambridge og stundaði síðan
framhaldsnám við Kielarhá-
skóla. Hefur hann starfað sem
j fulltrúi hjá Fiskifélaginu frá
iþví árið 1954.