Vísir - 03.01.1962, Blaðsíða 3
V í S I R
3
Miðvikudagur 3. janúar 1962
ia,aw.v.wavav.v^av.wa\vav.wwawa,.w.^wava,m%swa,awMW,«|am<wimw.w
Niður með persónu-
dýrkunina.
Rétt fyrir áramótin birtist
skemmtileg teikning hér í
Vísi í annál síðastliðins árs
af Krúsév, þar sem hann er
að kveða niður og fordæma
persónudýrkunina.
En til þess að tákna þá
staðreynd að fordæming
Krúsévs á Stalin er gerð til
að upphefja hann sjálfan og
sýna þá nýju persónudýrk-
un, sem hafin er á Krúsév
setti teiknari Vísis svolitla
englavængi og geislabaug á
Krúsév.
í Myndsjá Vísis í dag er
vikið enn nokkuð að þessu
vandamáli. Myndirnar sem
hér birtast og koma frá
Rússlandi sýna, að það er
fjarri því að hetju og per-
sónudýrkunin hafi verið nið-
ur felld í Sovétríkjunum. Sú
eina breyting hefur verið
gerð að málverkin af Stalin
hafa verið rifin og máluð ný
málverk af Krúsév. Högg-
myndirnar af hinum skeggj-
aða Stalin hafa verið brotn-
ar niður og í staðinn koma
höggmyndir af hinum sköll-
ótta Krúsév.
Rússnesku myndirnar sem
hér birtast minna á gamlar
myndir af Stalin. Þær eiga
að sýna Krúsév sem leiðtog-
ann í hópi verkamanna og
flokksmanna og loks kemur
Ijósmynd af Krúsév þar sem
hann er í ræðustól að klappa
fyrir sjálfum sér. Takið eft-
ir live hún er lík gaman-
teikningunni, sem Vísir birti
á dögunum. Svipur hans á
að lýsa Iiinum landsföður-
lega og óflekkaða dýrling í
mannsmynd.
af heimamiðum.
VV.V.V.V.V.V.".,.V.V.V.V.V".V.V..V.V.V.V.V.V.,.V.V.V.,.,.V.,.V.V.V.V.V.V.
Það var sjaldséð sjón sem
blasti við mönnum niðri við
togarabrygjurnar í gær. —
Togarinn Geir lá þar, og svo
sigipn, að bersýnilegt var
að hann var með óvenjumik-
inn afla, en hann var á veið-
um nú um hátíðarnar hér á
heimamiðum.
Við pánari eftirgrennslan
kom í Ijós, að Geir var lúgu-
fullur af vel ísuðum fislti,
mest þorski, sem togarinn
fekk í 11 daga úthaldi.
Gunnar Auðunsson, einn
hinna kunnu Auðunssona,
er með Geir. Margir, margir
mánuðir eru nú liðnir frá
því að togara hafi tekizt að
fá í sig fullfermi hér á
heimamiðum, jafnvel þó
lengra úthald væri. Geir
siglir með aflann til sölu í
Bretlandi og selur þar vænt-
anlega 8. janúar.
Peron fyrrverandi Argen-
tínuforseti, 65 ára, gekk ný-
lega að eiga spænska stúlku
28 ára að aldri. — Peron
varð að láta af völdum
1955. Hann hefir tvívegis
verið kvæntur áður. Fyrsta
kona lians lézt 1939, en önn-
ur, Eva, sem dáð var af öll-
um landslýð í Argentínu
1952.