Vísir - 13.01.1962, Side 1
VÍSIR
52 árg. Laugardagur 13. janúar 1962. — 9. tbl.
Lífsnauðsyn að
tengjast Efna-
hagsbandalagi.
ÞAÐ er lífsnauðsyn fyrir okk-
ur íslendinga að láta þróunina
ekki hlaupa frá okkur, — en
tengjast Efnahagsbandalagi
Evrópu sag'ði Davíð Ólafsson,
fiskimálastjóri 1 fréttaauka Rík
isútvarpsins í gær, þar sem
hann var a'ð ræða um markaðs
mál sjávarútvegsins.
Hann ræddi um þær stórkost
legu breytingar sem nú eru að
verða á viðskiptamálum
Evrópu, þar sem flestar
Evrópuþjóðir munu væntan-
lega sameinast í eina viðskipta
heild á næstu árum, en þetta
væru lönd sem hefðu keypt
verulegan hluta af öllum út-
flutningi íslands.
Fyrstu ókostir
Davíð gat þess m.a. að nú
eftir áramótin hefðum við ís-
lendingar fengið að kynnast ó-
kostum sem fylgdu því að vera
fyrir utan Efnahagsbandalagið,
þar sem við hefðum orðið að
greiða hækkaðan innflutnings-
toll af fiski innfluttum til
Þýzkalands. og væri sú hækk-
un þó aðeins byrjun á stig-
hækkandi tolli Efnahagsbanda-
lagsríkjanna. Taldi Davíð
einsýnt, að íslendingar gengju
í bandalagið.
NÝORDINN 14 ÁRA.
FYRIR hádegi í gær tókst
rannsóknarlögreglunni að upp-
lýsa hina fólskulegu árás, er lít-
il 7 ára telpa varð fyrir síðdeg-
is á miðvikudaginn hér í bæn-
um. Sá sem hlut átti að máli
var sjálfur nánast barn, dreng-
ur sem nýlega er orðinn 14 ára.
Drengurinn, sem sagður er
koma vel fyrir, og í fljótu
bragði a. m. k. virðist heilbrigð-
ur, játaði strax að vera valdur
að árásinni.
Við rannsókn málsins, sem
ið mestu var lokið þegar síð-
iegis í gær, játaði drengurinn
ið hafa tvisvar áður veitzt að
elpum á þessum sama stíg, sem
r milli Reykjavegar og Suður-
landsbrautar, skammt frá
Undralandi — Var annað þess-
ara atvika þegar kært til
rannsóknarlögreglunnar, en
hitt var kært í fyrradag er
fregnin um atburð þennan
barst út um bæinn. Urðu þess-
ar telpur, 9 og 10 ára fyrir á-
reitni drengsins með eins dags
millibili, um miðjan desember
síðastliðinn. í hvorugt skipti
hlutust þó meiðsl af.
Eins og sjá má af hinum unga
aldri drengsins, er hann langt
undir aldri sakamanna. Hann
var settur í stofufangelsi heima
hjá sér í gær, en mál hans mun
rannsóknarlögreglan nú af-
henda barnaverndarnefnd til
meðferðar.
■ © r- 1 © • • r
Stjornarkjor i
um helgina.
Stjórnarkjör fer fram í
vörubílstjórafélaginu Þrótti
að viðhafðri allsherjarat-
kvæðagreiðslu, sem hefst í
dag.
Kosningin hefst klukkan
eitt í dag og stendur til
klukkan níu í kvöld og síðan
heldur hún áfram á morgun
á sama tíma, en verður þá
Iokið. Eru komnir fram tveir
listar og standa lýðræðis-
Lyklavöldin í
Stjórnarráðinu.
Um síðustu áramót urðu
dyravarðaskipti í Stjórnar-
ráðinu. Magnús Stefánsson
lét af starfi, en við tók
S veinb j örn Timóteusson.
Þeir sjást hér á Stjórnar-
ráðströppunum hiim nýi
dyravörður, Sveinbjöm, að
taka við lyklakippunni úr
hendi Magnúsar, sem er til
hægri. Mörg undanfarin ár
hefur Sveinbjöm verið
stöðvarmaður á afgreiðslu
B.S.R. og getið sér hins bezta
orðs í starfi. (Ljósm. Vísis
I. M.) — Sjá samtal á bls. 7.
Þjdöverjar bregöast
ekki bandamönnum.
VESTUR-ÞÝZKA stjórnin hef-
ur lýst því yfir, að enginn fót-
ur sé fyrir þeim fréttum, sem
breiðzt hafa út að undanförnu,
Þrótti
sinnar að öðrum, B-lista, en
hinn bjóða kommúnistar
fram, en þeir fara nú með
stjórn í félaginu, illu heilli.
Þessir menn eru á lista
lýðræðissinna, B-lista:
Erlingur Gíslason formað-
ur,
Pétur Hannesson, varafór-
maður,
Framhald á bls 5
að Þjóðverjar ætli að bregðast
bandamönnum sínum £ NATO
og gera sérsamning við Rússa
um lausn Þýzkalandsmálsins.
Segir stjórnin að það mál verði
aðeins Ieyst í fullkominni sam-
vinnu vestrænna ríkja.
Ulbricht kastað?
Fréttirnar um þetta stafa af
því, að Rússar hafa að undan-
förnu verið að þreifa fyrir sér
við Vestur-Þjóðverja um að
leysa Þýzkalandsmálið og hafa
látið í það skína, að þeir vildu
kasta Ulbricht og Austur-
Þýzkalandi fyrir borð, ef Vest-
ur Þjóðverjar vildu svíkja
bandamenn sína og segja sig úr
Atlantshafsbandalaginu.
Leynifundir.
Orðrómur um þetta hefur
hermt, að annar stjómarflokk-
urinn, — hinn svokallaði Frjáls
rrh. & bls. i.
Brimnes
til sölu.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefir tekið þá ákvörðun að
selja togarann Brimnes. Hann
var á sínum tíma eign togara-
útgerðarinnar á Seyðisfirði.
Hefur hann legið lengi hér í
„Þanghafinu“. Tilboð þurfa að
hafa borizt fyrir 23. janúar til
ráðuneytisins.