Tölvumál - 01.04.1985, Blaðsíða 10
Noi— d DAT A
Skýrslutæknifé1aginu hefur borist dagskrá ráðstefnunnar
NordDATA 85, sem haldin uerður í Kaupmannahöfn 17. - 19.
j ún í n.k.
Dagskráin er fjölbreytt og úr mörgu að velja.
Fyrirlestrar verða um 200. Vinnufundir, Þar sem Þétttakendum
er boðið að taka Þátt í sérstökum verkefnum eru 10 og um 40
framleiðendur hugbúnaðar kynna framleiðslu sína.
Sérstaklega er ánægulegt að sjá að fjórir 'Islendingar eru á
meðal fyrirlesara, en Þeir eru Gunnar Ingimundarson, Páll
Jensson, Páll Kr. Pálsson og Vilhjálmur Þorsteinsson.
Fyrirhugað er að Þrír 'Islendingar verði á meðal
fundarstj óra.
Ráðstefnan er haldin i danska tækniskó1anum í Lyngby sem er
um 17 km. frá miðborg Kaupmannahafnar.
Kvöldið 16. júní gefst öllum Þátttakendum tækifæri að
hittast á Lorry, fré kl. 18.30 til 21.30.
Skráning Þátttakenda og afhending ráðstefnugagna hefst kl.
08.00, mánudaginn 17. júní á skrifstofu ráðstefnunnar, sem
er til húsa í byggingu 101 í danska tækniskó1anum. Kl.
10.00 hefst ráðstefnan með Því að Henning Jensen formaður
undirbúningsnefndar og danska skýrs1utæknifé1agins býður
gesti velkomna. Henntamá1aráðherra Dana, Bertel Haarde mun
síðan setja ráðstefnuna.
Ráðstefnugjaldið er D.kr. 3.800.00 sé greitt fyrir 1. maí,
en D.kr. 4.200 eftir 1. máí.
Skýrslutæknifé1agið hefur sent eintak af dagskrénni til
flestra fyrirtækja og einstak1inga, sem eiga aðild að
félaginu. Þeir sem ekki hafa fengið eintak, en óska eftir
Því, eru beðnir að hafa samband við Kolbúnu Þórha11sdóttur,
starfsmann Skýrslutæknifélagins, í síma 82500. -kÞ