Vísir - 02.03.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 02.03.1962, Blaðsíða 1
VlSIE 95 manns biðu bana á svipstundu í sama mund og 4 milljónir manna höfðu safnazt saman í New York til þess að liylla John Glenn geimfara og konu hans við komima þangað, fréttist, að œgilegt flugslys hefði orðið i grennd við Long Island skammt frá Idlewildflugvellinum og 95 manns farizt. Það var Boeing-70 þota írá American Airlines, Sem hafði hrapað í sjó niður, rétt eftir flugtak. Farþegar í henni voru 87, en áhöfn 8 manns. Ekkert neyðarskeyti hafði borizt frá flugvélinni og veður var bjart og flugskilyrði að öðru leyti á- gæt. Hina mörgu, sem biðu komu Glenns ofursta, setti hljóða, sem aðra, er þeir heyrðu um ofan- greindan, sviplegán atburð, en hann skyggði ekki nema um stund á fögnuð manna yfir af-- reki Glenns. Ekið var um Broadway, og sátu þau Glenn ofursti og kona hans í hækkuðu aftursæti bif- reiðar og veifuðu til fagnandi mannfjöldans. — Glenn sagði eftir á, að hann hefði ekki séð nema eitt andlit með súrum svip, — og hefði það verið and- lit yfirmanns gatnahreinsunar New York-borgar en varpað var niður 3000 lestum af marglitum pappírsræmum meðan skrúð- gangan fór fram! — Fögnuður var svo mikill, að annað þykir ekki sambærilegt frá því er Lindbergh var fagnað við heim- komuna fyrir hálfum fjórða ára- tug, eftir að hafa flogið yfir At- lantshaf til Parísar. Maílurinn gaf sig fram af sjálfsdáilum Maður sá, sem var valdur að slysinii á Kaplaskjólsvegi, móts við Jófríðarstaði, í fyrra- kvöld, gaf sig fram við lögregl- una af sjálfsdáðum í gær. Þetta er ungur maður og hefur aldrei bomið neitt fyrir hann áður. í framburði sínum við lögregluna sagðist hann ekki hafa séð konuna fyrr en hún skall á bílnum. Kvaðst Framh. á bls. 5 Hinn kunni Pétur Hoff- mann Salómonsson, sem áð- ur bjó í Selsvör, átti heima í gamla húsinu við Kirkju- torg, sem brann í nótt. Hann var í fasta svefni á efstu hæð hússins þegar eldurinn breiddist út og í lífsháska. Hann komst út við illan leik og hefir misst í brunanum mestallt sem hann átti brennt og sviðið. Ljósmynd- ari Vísis tók þessa mynd af kappanum í rústunum í morgun. Gömlu timburhúsin við Kirkjutorg voru í mikilli hættu í nótt, er eldur kom upp í þrílyftu timburhúsi, Kirkjutorgi 6 og var orð- inn mjög mikill er slökkvi- liðið kom á vettvang. Nær 60 brunavörðum tókst á tveimur og hálfri klukku- stund að ráða niðurlögum eldsins í húsinu. Miklar skemmdir urðu á húsinu af Hefja Bandaríkin kjarn orkutilraunir í Kennedy Bandaríkjaforseti ávarpar Bandaríkjaþjóðina í kvöld í sjónvarpsræðu um kjamorkuvopnamálin og er almennt talið, að hann muni boða, að liafnar verði af hálfu Bandaríkjanra tilraunir á ný með kjarnorkuvopn í lofti — þó ekki þegar í stað, og áreiðan- lega ekki fyrir afvopnunar- ráðstefnuna, sem hefst í Genf 14. marz. Orðrómur urm að Kennedy forseti hefði ákveðið að stiga þetta skref hefur verið á kreiki annað veifið og fram kom í fréttum nýlega, að það yrði gert ef Kennedy teldi, að þess væri þörf vegna öryggis Bandaríkjanna og bandalags- þjóða þeirra. eldi, vatni og reyk, og þrjár manneskjur misstu har allt nema bað sem þau stóðu í eftir brunann. Slys varð ekki á fólki, en í hús- inu áttu heima 15 manns. Slökkviliðið fékk boð um eldsvoða þennan klukkan tæp- lega 3,30 í nótt. Þó stutt sé á milli slökkvistöðvarinnar og Kirkjutorgs var mikill eldur á 3. hæð þess er að var komið. jBeggja vegna hússins eru timb- iurhús, og samfelld röð timbur- ^húsa út í Templarasund, og ótt- ' uðust menn í fyrstu, að svo kynni að fava, að stórbrum yrði .við torgið. Frost og strckkingur. En siokkviiiðið, ssm allt var kallað út, var fljótlega komið til skjalanna með dælur sínar og útbúnað, og innan skamms voru nær 60 brunaverðir og slökkviliðsmenn komnir á vett- vang. Eldurinn hafði þá náð upp í rishæð hússins og var mikið bál. Frost var 5—6 stig og norð- an strekkingur, sem stóð beint |upp á framhlið hins gamla 'húss. Út frá sígarettu. Meðal þeirra sem ræstir voru út var Magnús Eggertsson rann- jsóknarlögregluvarðstjóri. í sam- tali við blaðið í morgun, skýrði hann svo frá, að hann hefði átt tal við Sigurð Sigurðsson lög- regluþjón, en hann bjó í því 'herbergi, sem eldurinn kom upp. Kvaðst Sigurður hafa kom Framh. á bls. 5. Þjáðisf af fijartaveilu Vísir skýrði frá því í gær að maður liafi orðið bráðkvaddur í gærmorgun undir stýri bif- reiðar í Lækjargötu. Maður þessi hét Haukur Hró- bjartsson til heimilis að Kópa- vogsbraut 32. Hann hefur um langt árabil verið starfsmaður hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins, en síðustu árin þjáðst af hjarta- veilu. 'íiti I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.