Vísir - 02.03.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 02.03.1962, Blaðsíða 16
VISIR rostuaagur z. marz lHöZ Bylting í Burma Frétt barst um það í morg-1 un, að herinn í Burma hefði1 tekið stjórn landsins í sínar ' hendur. < Herlið í brynvörðum bif-1 reiðum og skriðdrekasveitir' fóru inn í Bangoon í birtingu' og var vörður settur við all-1 ar byggingar í borgsnni og i bústaði æðstu manna, m. a. i ráðherranna. Yfirmaður hersins, Newiní hershöfðingi, flutti þar næst i ræðu í útvarp, og bað menn i gæta stillingar og stunda' vinnu sína eins og ekkerti hefði í skorizt. Newin var forsætisráð-1 herra í 18 mánuði, þar til! U Nu tók við af honum. wwwwwwwwwwwwwwwwwwww" Ríkissaksóknari ur sitt Myndin var tekin í Hæsta- rétti í morgun, þegar sak- sóknari ríkisins, Valdimar Stefánsson, flutti fyrstu sókn sína fyrir réttinum sam- kvæmt nýjum reglum um opinbera saksókn. Á mynd- ihni sjást einnig þrír af fimm dómurum Hæstaréttar, Jón- atan Hallvarðsson forseti Hæstaréttar, Þórður Eyjólfs- son og Gizzur Bergsteinsson. Saksóknari ríkisins, Valdimar Stefánsson, flutti sitt fyrsta mál sem sak- Börnin tvö, sem fórust í cldsvoðanum í Hnífsdal Lárus 4 ára og Jóna 3 ára. HRVGGILEGT SLYS sóknari fyrir Hæstarétti í morgun. Fjallað var um banaslyssmál, sem heitir Ákæruvaldið gegn Jóni öskari Gunnarssyni. Verj- andi var Vilhjálmur Árna- son héraðsdómslögmaður, sem þar með flytur síðasta prófmál sitt fyrir Hæsta- rétti. Vísir náði tali af ríkissak- sóknaranum stuttu áður en hann gekk inn í réttarsalinn. Hann kvað það í verkahring sínum að flytja öll mál ákæru- valdsins sem koma fyrir Hæsta rétt. En hann skipar sækjendur fyrir undirrétti. Kvaðst sak- sóknarinn persónulega vinna að öllum málum og í samvinnu við verjandann, eins og tíðkast hefur meðal málflutnings- manna. Saksóknarinn kvaðst vera í bráðabirgðahúsnæði á Hverfis- götu 6 með einn fulltrúa sér til aðstoðar. Hefði eldrf verið ákveðið frambúðarhúsnæði fyr- ir embætti hans. — Þurfið þér ekki fleiri fulltrúa? — Ég tel mig þurfa að hafa a. m. k. þrjá fulltrúa. Verkefni fulltrúans hefur að Framh. á 5. síðu. Jkhramesbátur siylir á erl. ílutmimgaship VESTUR í gærmorgun, laust fyr- ir klukkan 10 varð sá válegi atburður í Hnífsdal að tvö börn, 4 ára dreng- ur Lárus að nafni og 3 ára stúlka, sem hét Jóna, biðu bana í eldsvoða. Þau voru börn Sigfríðar Lárusdótt- ur og Stefáns Björnssonar, sem bjuggu í litlu timbur- húsi í Stekkjarötu 17. Tveimur börnum bjargað. Þau hjónin Stefán og Sigfríð- ur áttu fjögur börn, en hinum tveimur varð bjargað, og öðru þeirra af einskærri tilviljun, en það var þá meðvitundarlaust orðið í reykhafinu. Rannsókn hefur enn ekki far- ið fram um upptök eldsins, en Sigfríður varð hans fyrst vör, en hún var þá ásamt öllum börnunum uppi á efri hæð húss- ins, en Stefán bóndi hennar að Framhald á bls, 5 AKRANESI: Aðfaranótt mið- vikudagsins varð árekstur skipa liér úti á Krossavík. Svarta þoka olli þessu óhappi, en slys varð ekki á mönnum. Þetta gerðist er vélbáturinn Ver var að fara í róður. Var hann kominn rétt út fyrir hafn- argarðinn, er áreksturinn varð. Formaðurinn á bátnum hafði kveikt á radartæki bátsins, en það var ekki farið að hitna, svo myndin kæmi fram á sjónskíf- unni. Allt í einu varð mjög harður árekstur. Svo svört var þokan þegar þetta gcrðist, að ekki sá út fyrir borðstokkinn. Ver rakst á norskt 1000 tonna lýsisflutningaskip, Helge frá Stavanger, sem hingað var ný- komið og var að leggjast við festar á Krossavík. Stefnishorn- ið á Ver kom á hið norska flutn- ingaskip framanvert, og var höggið svo mikið, að. trjóna stefnisins gekk í gegnum 8 millimetra þykkt stálið í skip- inu, hátt ofan við sjólínu. Stefni Bólusóttarhætta vaxandi í Gripið hefur verið til nýrra, róttækra ráðstafana á j Bretlandi til þess að hindra útbreiðslu bólusóttar í Wales. Heilbrigðisyfirvöldin brezku hafa staðfest, að ný | bólusóttartilfelli eru komin til sögunnar. Hefur fólk það, sem nýlega var sett í sótt- varnadeildir sjúkrahúsa í Wales, reynzt vera haldið sóttinni. Fólk þetta hafði allt haft samband við konu, sem Framh 3 5. síðu. bátsins laskaðist allmikið við höggið, og varð Ver þegar að leita hafnar. Verður að setja nýtt stefni í bátinn og mun hann ekki komast á sjó aftur fyrr en eftir viku til 10 daga. — Sigurður. Togari tekinn í NÓTT tók varðskipið Þór brezka togarann St. Elstar frá Hull norður á Húnaflóa og mun hann hafa verið þar að veiðum innan fiskveiði- lögsögunnar. Ekki var búizt við að varðskipið kæini til hafnar með togarann fyrr en laust eftir hádegið í dag, en það verður bæjarfógetinn vestur á ísafirði sem rann- sókn máls þessa hefur með höndum. Togari þessi mun vera orðinn nokkuð gamall.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.