Vísir - 02.03.1962, Blaðsíða 7
Föstudagur 2. marz 1962
V 1 S I R
7
Félags- og
ærslu-
mál endurskipulögð
Borgarstjórn Reykjavíkur
samþykkti í gær nýskipan fé-
lags- og framfærslumála á veg-
um Reykjavíkurborgar. Geir
Hallgrímsson borgarstjóri gerði
grein fyrir tillögunum. Verða
hinir ýmsu þættir bessara mála
settir undir sameiginlega stjórn
og í eina skrifstofu, skrifstofur
félags- og framfærslumála. Við
þetta hefur skipulag þessara
mála verið fært í fastari skorð-
ur en áður. Það liefur í för með
sér fækkun á starfsliði, aukna
hagkvæmni og tiltölulegan
sparnað.
Stærsta nýbreytnin er mynd-
un félagsmáladeildar, sem á að
| »
i ýinna gegn því að fólk verði
framfærsluþurfi og geti staðið
á eigin fótum. Kvaðst borgar-
stjóri vonast til þess að eftir-
leiðis gengi þróunin í þá átt að
bein framfærsla yrði aulca-
atriði en ýmisskonar tímabund-
in aðstoð kæmi í staðinn.
tilbúin seint á árinu
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri sagði á borgarstjórnar-
fundi í gær að sennilega mundi
uppdráttur af fyrirhuguðu ráð-
húsi í Reykjavík liggja full-
gerður til sýnis fyrir borgarbúa
og borgaryfirvöld seint á þessu
ári.
Þórður Björnsson fulltrúi
Framsóknarflokksins í borgar-
stjórn vakti máls á undirbún-
ingi að byggingu ráðhússins á
fundi borgarstjórnar í gær. Var
yfirlýsing borgarstjóra gefin í
tilefni þeirra ummæla Þórðar
að meirihluti borgarstjórnar
hefði í hyggju að nota ráðhús-
teikninguna á svokallaða „bláa
bók“ Sjálfstæðismanna og slá
sér upp á henni fyrir kosning-
ar. —
Þórður vildi jafnframt vera
viss um, að bæjarfulltrúar
fengju að sjá teikningar af ráð-
húsinu áður en þær kæmu fyr-
'ir almenningssjónir. Borgar-
sþjóri kvaðst telja eðlilegt, að
almenningur fengi að sjá teikn-
ingar af ráðhúsinu á almenn-
ingssýningu áður en borgar-
stjórn og borgarráð tækju af-
stöðu til teikningarinnar.
Þórður og Guðmundur Vig-
fússon, einn af . fulltrúum
kommúnista í borgarstjórn
gagnrýndu þá tilhögun að fela
ákveðnum hópi arkitekta teikn-
ingar af ráðhúsi í stað þess að
efna til íslenzkrar eða jafnvel
norrænnar samkeppni um útlit
þess. Borgarstjóri svaraði því
til, að fyrsta skref ráðhúsnefnd-
arinnar hefði verið að ræða við
íslenzk arkitektafélög um slíka
samkeppni, enda væri sam-
komulag við félögin nauðsyn-
leg til að samkeppnin gæti far-
ið fram. Viðræður og þar með
samkomulag hefði strandað á
því, að arkitektar vildu ekki
Væntanlega byrjað á
kjötmiðstöð í sumar
Borgarstjóri Geir Hallgríms-
son upplýsti á borgarstjórnar-
fundi í gær að lóðin á Kirkju-
sandi undir væntanlega kjöt-
miðstöð yrði tilbúin undir bygg-
ingarframkvæmdir í sumar.
Taldi borgarstjórnin nauðsyn-
legt að framkvæmdir gætu haf-
Friðjón Þórðarson
tekur sæti
á Alþingi
Friðjón Þórðarson sýslumað-
ur tók í gær sæti Sigurðar Ág-
ústssonar á Alþingi vegna fjar-
veru hins síðarnefnda, erlendis,
næstu vikur. Kjörbréfanefnd
lagði til að kjörbréf hans yrði
m-eiið gilt og mælti Einar Ingi-
mundarson fyrir áliti nefndar-
innar. Var till'agan samþykkt.
izt sem ^llra fyrst eftir það.
Jafnframt gat hann þess að
teikningar af kjötmiðstöðinni
væru til endurskoðunar hjá
arkitektinum Halldóri H. Jóns-
syni.
Upplýsingar borgarstjórans
kom fram í svari hans við fyr-
irspurn frá Guðmundi Vigfús-
syni um kjötmiðstöðina. í at-
hugasemdum sínum taldi Guð-
mundur að bygging kjötmið-
stöðvarinnar hefði dregizt um
of á langinn. Flutti hann tillögu
um að borgarstjórn ályktaði að
verkinu skyldi hraðað sem
allra mest. Var henni vísað frá
vegna framkominna upplýsinga
borgarstjóra um að svo yrði
gert.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son ræddi einnig málið og and-
mælti tillþgu Guðmundar Vig-
fússonar.
fallast á að einn arkitektanna,
sem átt hafði sæti í ráðhúsnefnd
um skeið, fengi þátttökurétt í
keppninni. Hefði þá verið á-
kveðið að fela nokkrum arki-
tektum að sjá um verkið í sam-
vinnu.
Framh. á 5 síðu
Milli fyrri
og síðari kvöld
frétta situr á-
reiðanlega
fjöldi fólks
um land allt
og hlýðir á
útvarp. Vænt-
ir það þess,
að því verði boðið upp á efni,
sem geti orðið bæði til hugnun-
ar og fróðleiks. Hið talaða orð
íslenzka útvai’psins var á þess-
um tíma í gærkvöldi 35 mín-
útna erindi dr. Sigurðar Pét-
urssonar um Skelfiskstekju og
skelfiskeitrun — og létt hjal,
sem Hildur Kalman hafði tekið
saman handa sjálfri sér og Gísla
Flaggað var í gær á hálfa
stöng um gervalla Þórshöfn
í Færeyjum.
Tilefnið var það, að tvær
ungar stúlkur höfðu beðið
bana af völdum umferðar-
slyss — hins fyrsta í Fær-
eyjum á 15 ára tímabili.
Alfreðssyni. Það tók þrjá stund-
arfjórðunga.
Erindi doktorsins var skil-
merkilegt og fróðlegt, og það
fræddi hlustendur um eftirfar-
andi staðreyndir:
1. Komið hefur í Ijós eitrun í
íslenzkum skelfiski.
2. Hér var fyrir meira en hálf-
um öðrum áratug soðinn Áiður
og seldur kræklingur og kúfisk-
ur hraðfrystur og fluttur á
markað í Ameríku.
3. Grunur vaknaði um það
vestra, að eitthvað af hrað-
frysta kúfiskinum hefði verið
eitrað.
4. Þrátt fyrir ofangreindar
staðreyndir hafa ekki farið
fram nema alls ófullnægjandi
rannsóknir á íslenzkum skel-
fiski!
Um hið Létta hjal vildi ég
leyfa mér að segja, að ekki
hefði þurft þrjá stundarfjórð-
unga til að sanna, að nógu væri
það léttvægt tií að kafna ekki
undir nafni.
Guðm. Gíslason Hagalín.
Föstudagsgreinin
Framh. at 9. síðu.
við þessa nýskipan og má bú-
ast við byltingartilraunum
og skæruliðahernaði í land-
inu. Þó verður ekki þörf
fyrir allt það mikla herlið
sem Frakkar hafa nú í land-
inu, enda hefur de Gaulle
lýst því yfir að þorri her-
liðsins verði kvaddur heim
í sumar.
Það á að vera hlutverk
hins franska liðs að æfa og
skipuleggja serkneskan þjóð-
arher og lögreglu, sem smám-
saman á að taka við eftirliti
í landinu, einkum í þeim hér-
uðum og hverfum sem byggð
eru serkneskum mönnum.
Ýmis ákvæði eru í sam-
komulaginu um samstarf
Frakka og Serkja. Frakkar
munu fá herbækistöðvar í
landinu til langs tíma, sér-
staklega flotastöðvar í Mers
el Kebir, sem þeir fá að halda
næstu 15 árin. Gert er ráð
fyrir áframhaldandi miklum
verzlunarviðskiptum milli
landanna og sameiginlegt fé-
lag Frakka og Serkja mun
vinna olíu úr Sahara eyði-
mörkinni. Munu þjóðirnar
skipta jafnt með sér ágóðan-
um af olíuvinnslunni. Sahara
eyðimörkin á að teljast til
Alsír. Þá munu Frakkar
halda áfram stórfelldri efna-
hagsaðstoð við Alsír, senni-
lega svo nemur 450 milljón-
urn dollara á ári.
Með þessu er lokið sjö ára
borgarastyrjöld í Alsír.
Styrjöld þessi hefur verið
heimskuleg. og kostnaðar-
söm. Orsök hennar var
skammsýni og skilningsleysi
franskra manna, sem ætluðu
að halda áfram undirokun
og kynþáttakúgun á hinum
serknesku íbúum landsins, en
slík viðhorf bíða nú algeran
ósigur á vorum tímum jafnt
í Alsír sem annarsstaðar.
Engar fullkomnar tölur
eru til yfir mannfall í þessari
styrjöld, en líklegt að það sé
nálægt hálf milljón manna.
Langmest hefur það verið í
hópi Serkja, en álitið er að
milli 20 og 30 þúsund evr-
ópskir menn hafi látið lífið
í átökunum. Beinn herkostn-
aður Frakka er áætlaður um
500 milljarðar ísl. króna.
Það er vissulega gleðilegt
að ein óhugnanlegasta styrj-
öld sem háð hefur verið á
seinni árum, hverfur þannig
úr sögunni, því óhætt virðist
nú að ætla að ekki verði úr
byltingu öfgamanna. Til þess
hafa þeir eyðilagt of mikið
fyrir sér með hermdarverk-
unum. Auðvitað mun taka
langan tíma að græða sárin
og vafalaust mun haturs og
kala gæta í áratugi. Samt
hafa þessar tvær þjóðir svo
mikilla sameiginlegra hags-
muna að gæta, að milli þeirra
ætti í nálægri framtíð að
geta skapazt þolanlegt sam-
starf.
gflú þegar Serkir taka við
völdum í landi sínu er
stór hópur evrópskra manna,
sem ekki mun telja sér leng-
ur til setunnar boðið. Þetta
eru landnemar, sem notað
hafa Serkina eins og þræla
eða ódýrt vinnuafl, en sjá nú
fram á að stoðum verður
kippt undan slíkri gróðaleið.
Einnig eru það menn með
svarta samvizku, menn sem
tekið hafa þátt' í hermdar-
verkum og morðum. Þeim er
vissara að hverfa á braut.
Frönsk yfirvöld gera ráð fyr-
ir því að allt að því 500 þús-
und evrópskir menn muni
flýja frá Alsír á næstu árum.
Á þessu ári er búizt við um
100 þúsund flóttamönnum
og verður það mikið og
kostnaðarsamt að búa þessu
fólki samastað og starfsskil-
yrði.
Þrátt fyrir það er óhætt að
segja, að skynsemin hefur
sigrað í Alsír-málinu í stefnu
de Gau'lles. Nú getur hafizt
nýr þáttur í sögu Frakklands
og það orðið stæltara ríki
með færri vandamálum, ör-
uggari stjórn og með meiri
efnalegum framförum ■ en
nokkru sinni fyrr. Þannig
mun hið nýja Frakkkland
rísa upp sem heilbrigt þjóð-
félag í hinu evrópska sam-
félagi.