Vísir - 12.03.1962, Qupperneq 5
Mánudagurinn 12. marz 1962
VISIR
5
BREZKI SKIPSTJÓRINN FYRIR RÉTTINUM
1 síðustu viku bar það til tíð-
inda norður á Siglufirði að
skipverjar af brezka togaranum
Ross Archer frá Grimsby efndu
til óspekta á veitingastofunni
Diddabar og særðu 15 ára pilt
í ólátunum. Þegar lögreglu-
menn ætluðu að veita þeim
eftirför út í togarann bannaði
skipstjórinn Iögreglumönnum
að koma um borð og hvatti
skipverja til óhlýðni við Iög-
regluna.
Þar kom þó að settur fógeti
Minningarorð -
Framh. af 10. síðu.
syni, vélsmíðameistara, varð það
brátt'stórt fyrirtæki undir stjórn
og dugnaði þessara tveggja ágæt-
ismanna. Skiptu þeir með sér
verkum þannig. að Ólafur var for-
stjóri og sá um reikningshald, en
Óskar var verkstæðisformaður.
Vélaverkstæði það, sem þeir Ólaf-
ur og Óskar stofnuðu, mun nú
hafa starfað í yfir 30 ár, það heit-
ir Vélsmiðjan Magni, rekur um-
fangsmikla starfsemi, og er nú
hlutafélag.
Ég tel að Ólafur hafi valið sér
lífsstarf, sem átti vel við hann, fór
þar sama, svo sem áður segir,
óvenju góðir smíðahæfileikar, út-
sjónar- og stjórnsemi. Ólafur hef-
ur með stjórn fyrirtækis síns kom-
ið mjög við sögu í Eyjum. Eiga
margir eyjaskeggjar góðar endur-
minningar um fórnfúst starf hans,
sem oft var unnið við hin erfið-
ustu skilyrði.
Ólafur var fæddur á Vopnafirði
24. júní 1900. Foreldrar hans voru
Ólafur F. Davíðsson, verzlunar-
stjóri hjá Ör-m & Wulff, og kona
hans Guðríður Jónsdóttir, ættuð
úr Eyjafirði. Seinna fluttu foreldr-
aar hans til ísafjarðar og mun
ætíð hafa talið sig Vestfirðing að
uppruna. Systkini Ólafs voru 5,
Ingibjörg búsett í Reykjavík,
Friðrik, skólastjóri, Reýkjavík,
María, látin í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum árum og systir, sem dó
ung að árum.
Ólafur giftist árið 1927 eftirlif-
andi konu sinni Dagmar Erlends-
dóttur Árnasonar. Bjuggu þau alla
tíð f Eyjum, og áttu þar fallegt
heimili. Eignuðust þau tvo syni,
Friðrii og Gunnar. Vinna þeir
báðir í vélsmiðju föður síns í
Eyjum.
Ég votta fjölskyldu Ólafs mín-
aar innilegustu hluttekningu vegna
fráfalls hins góða heimilisföður.
Aðalsteinn Jóhannsson.
staðarins Pétur Gautur Krist-
jánsson handtók óspektamenn
og skipstjórann og leiddi það
að lyktum til þess að skipstjór-
inn Albert Frederick Hilldrith
var dæmdur í 10 þúsund króna
sekt fyrir mótþróa sinn við lög-
regluna.
Myndin sem hér birtist var
tekin af skipstjóranum, er hann
var fyrir réttl á Siglufirði. Er
hann hinn peysuklæddi mað-
ur í miðjunni. Hægra megin er
dómarinn Pétur Gautur, en
vinstra megin er Knútur Jóns-
son dómtúlkur.
Skipstjórinn var hinn kurt-
eisasti fyrir réttinum og baðst
m kr -
Framh. af 2. síðu.
an Hermann. Ólafur var sem fyrr
mjög lipur, en ekki að sama skapi
nákvæmur.
Heins var beztur KR-inga, en lið
ið í heild ákaflega lélegt. Leikurinn
sjálfur var og mjög lélegur, harð-
ur og grófur svo oft líktist hann
meira íshokkey. Dómarinn, Valur
Benediktsson, bætti ekki heldur úr
skák með lélegum dómum sínum.
í 2. tíeild mættust Ármann og
Akranes og er þess skemmst að
minnast að Ármenningar unnu, en
með miklum erfiðleikum og basli
og ekki voru nema 2 mörk sem
skildu er dómarinn 'flautaði af, 29-
27. Er það furðulegt hve Ármanns-
piltarnir geta látið lið eins og
Akranes, sem ekki hefur mikið ti.l
L. anns að bera f handknattleik,
fara með sig. Ármenningar héldu
uppi hraða, sem þeir réðu ekki við,
vörnin var opin fyrir þungum skot
um( Akurnesinga og þvf fór sem
fór. Jóhann Gíslason dæmdi leik-
inn, og þótti óöruggur í dómum
sínum.
í 3. flokki vann KR Njarðvfk
með 22-7.
I mfl. kvenna vann KR Fram
með 9-7 (5-3). Valur og Ármann
skildu jöfn í þeim flokki, 6-6, í
mjög jöfnum og spennandi leik.
Það vakti athygli í sambandi við
þann leik að auglýstur dómari
skipti um hlutverk og tók upp
þann starfa að „skipta inn á“ fyr-
ir Val, en yngri bróðir dómárans
tók að sér að dæma. Voru Ár-
manns-stúlkurnar mjög óánægðar
með framkvæmd þessa og var það
að vonum. Ekki skal hér neitt
fullyrt hvort neitt ólöglegt hafi
verið framið, en mjög er þetta ó-
viðkunnanlegt.
auðmjúklega afsökunar á fram-
komu sinni, nóttina áður.
Að utan —
Framh. af 8. síðu.
til streitu stefnu sinni í trú
á sigur málstaðar síns. Reyn
ist það svo, að hann hafi á-
lyktað rétt og öngþveiti
verði afstýrt, og samstarf
takist milli franskra og al-
sírskra yfirvalda, getur Alsír
enn komið umheiminum 6-
vænt með því að verða eitt
hið öflugasta framfararíki í
allri Afríku.
Mikilvægt er að hafa í
huga að í reyndinni skiptist
Alsír f tvo gerólíka lands-
hluta. Annað er „strand-
ríkið“ með stórum nútíma
borgum, þar sem býr fjöl-
margt fólk af Evrópustofni
við nútíma skilyrði — mið-
biks 20. aldar. Hinn lands-
hlutinn er hinum gerólíkur.
Þar ríkir glundroði í allri
framkvæmdastjórn, þar er
fólksfæð og lítið sem ekk-
ert er gert til umbóta fyr-
ir fólkið sem býr í reynd-
inni við miðaldaskilyrði, —
á stundum við skilyrði, sem
jafnvel á miðöldum hefðu
þótt léleg. Hér er um efna-
hagsleg- og félagsleg vanda-
mál að ræða, sem ríkisstjórn
nýs, sjálfstæðs Alsírs verð-
ur að horfast í augu við.
Hún verður að hafa það hug-
fast, að vandamál þessara
landsmanna sem annarra
verður að leysa og að bæta
verðui hag þeirra, og miða
að því, að þeir og allir lands-
menn geti unað glaðir við
sitt.
r
KippdræfSi H.I.
Laugardaginn 10. marz var
dregið í 3. flokki Happdrætt-
is Háskóla íslands. Dregnir
voru 1,000 vinningar að fjár-
hæð 1.840.000 krónur.
200.000 krónur komu á
heilmiða, númar 46 821. Mið-
inn var seldur í umboðinu á
Akureyri.
100.000 krónur lromu einn-
ig á heilmiða, númer 32 262,
sem seldur var í umboði Þór-
eyjar Bjarnadóttur, Lauga-
vegi 66, Reykjavík.
Kommúnistar sýna
Framh. af 1. síðu.
Eichmann, þótt svo sé sagt í
kvikmyndinni. Hefir Eichmann
sjálfur skýrt svo frá, að hann
hafi aldrei átt nein samskipti
við dr. Globke.
3) Dr. Globke átti engan þátt í
gyðingaofsóknum í Noregi,
Grikklandi né Slóvakíu, þótt
myndin segi að svo hafi verið.
4) Þýzki lögfræðingurinn Kr. Max
Merten hélt því fram að dr.
Globke hefði tekið þátt í of-
sóknum þessum, en rannsókn
þýzku dómsmálayfirvaldanna
hefur leitt í ljós að það var ó-
sannur áburður. Hefir dr.
Merten nú verið stefnt til refsi
dóms fyrir áburðinn.
5) Bréf það, sem birt er i Kvik-
myndinni, frá dr. Frick, innan-
ríkisráðherra til Rudolf Hess,
er algjör fölsun. Hefir rétt
rannsókn leitt í ljós, að svo
er.
6) í kvikmyndihni er skýrt frá
þvi að dr. Globke hafi dvalizt í
Meran. Þangað hefir hann
aldrei á ævi sinni komið.
•
Enn fleiri dæmi væri unnt að
nefna, sem sýna hve grófar falsanir
kvikmynd þessi hefir að geyma,
en í bili verður þetta látið nægja.
Enda er það í hæsta máta ótrúlegt
að nazistar hafi Iagt sig í líma við
að kvikmynda sín eigin afbrot,
eins og gefið er í skyn í mynd-
inni!
Með þessari mynd, Aktion J.
hcitir hún, eru kommúnistar að
reyna að leiða athyglina frá þeirri
staðreynd, að viku áður en heims-
styrjöldin brauzt út, 24. ágúst
1939, gerðu Sovétríkin griða-
samning við Hitler og lýstu með
því vélþóknun sinni á Gyðingaof-
Hdmsmef ivandts
Framh. af 2. síðu.
og Halldór Ingvason felldu báðir
byrjunarhæðina.
Þrístökkið var skemmtilegasta
grein dagsins. Evandt stökk nú í
fyrsta skipti og sigraði á 10.03,
sem mun vera nýtt norskt met í
greininni og eflaust á hann eftir
að stórbæta þennan árangur áð-
ur en langt um lfður. Vilhjálmur
átti í harðri baráttu við Evandt,
hafði leitt keppnina lengst af eða
þar til í 4. umferð að Evandt sló
bezta árangur Vilhjálms, sem var
10 metrar sléttir. Vilhjálmi tókst
ekki að fara fram úr Norðmann-
inum þrátt fýrir mikið keppnis-
skap, náði bezt 10.02. Þriðji varð
Jón Þ. Ólafsson með 9.5& cm.
Óskar Alfreðsson setti drengjamet
f þessari grein, sjtökk 9.41.
Gunnari Huseby var ekki ver
fagnað nú eftir sigur sinn í kúlu-
varpinu, heldur en oft áður fyrr,
c stærri sigrar voru unnir. Nú
vann Huseby Guðmund Her-
mannsson með 15.31 gegn 15.10 m.
Guðmundar.
Stangarstökkið vann Valbjörn
4 metrum sléttum ,en tókst ekki
að stökkva 4.20, enda óhægt um
vik í hinurrf þröngu húsakynnum
Hálogalands.
Skátar fara í hús á Akranesi
á morgun, 13. þ.m. og safna fyrir
Sjóslysasöfnunina. Eru Akurnes-
ingar vinsamlega beðnir að taka
erindi þeirra vel.
sóknum þriðja rikisins, sem öðr-
um glæpum þess. Með griðasamn-
ingnum, sem íslenzkir kommúnist-
ar fögnuðu mjög, gafst Hitler tóm
til þess að herða enn á Gyðinga-
ofsóknunum. Það eru því komm-
únistar, sem honum eru þar sam-
sekir. Þeir bera ábyrgð á Belsen
og Dachau, ekki «íður en nazist-
arnir sjálfir.
★
Vafalaust heldur Þjóðviljinn að
íslendingar hafi gleymt fögnuði
þess blaðs yfir samstarfi Hitlers
og Stalin. En það er misskilning-
ur. Falsaðar kvikmyndir breyta
þar engu um. En hví leyfir kvik-
myndaeftiriitið sýningu þessarar
myndar athugasemdalaust?
VlðffœB dfagsins -
Framh. af 4. síðu.
- Ég hef aldrei talið þau, en
veit hins vegar að þau eru a.m.
k. 6-7 þús. bindi, ef til vill
meira. Veit það ekki.
- Ef við reiknum bókasafn
þitt í metrafjölda, hvað dettur
þér í hug að það séu margir
metrar?
- Ég hef látið útbúa 200 m
hillurými handa safninu. Það
gerir langt til að fylla það nú
þegar.
- Hvað .telur þú verðmætast
eða mikilvægast í safni þínu?
- Það er engin leið að segja
neitt um það. Tfmarit eru þó
vafalaust sá hlutinn, sem skipta
mestu máli og taka mest rúm,
eða samtals um 4 þúsund bindi.
Síðan koma aðrir flokkar eins
og ljóðmæli, leikrit, þjóðsögur
• o.s.frv. sem hver fyrir sig tekur
nokkurt rúm. Aðalstofn safns-
ins eru hins vegar bækur, sem
alls ekki hafa verið flokkaðar
niður, heldur mætti kalla einu
nafni „almenning".
- Er einhver fótur fyrir því
að þú hafir gefið bókasafnið?
- Því er alls ekki að neitta.
Árið 1952 gerði ég Norður-
Þingeyjarsýslu tilboð um að
þiggja safnið að gjöf, með viss-
um skilyrðum þó.
- Og hver voru þau skilyrði?
- Fyrst og fremst að safnið
yrði gert að sýslubókasafni. 1
öðru lagi að sýslan legði fram
fjármuni til viðhalds og endur-
nýjunar safninu, sem ég per-
sónulega teldi viðunandi, og
loks það að safnið yrði í minni
umsjá og vörzlu á meðan ég
óskaði og teldi mig hafa að-
stöðu til að annast það.
- Gafstu allar þfnar bækur?
- Nei, ég undanskildi t.d. rfm-
ur, sem ég er enn að basla við
að ná saman. Ég hef náð nær
öllu af því tagi eftir aldamótin
1800, en örlítið vantar mig þó
ennþá. Hvað af þeim verður, er
enn óákveðið.
- Og er áhugi þinn fyrir bóka
söfnun sá sami og áður?
- Því er eklci að neita að
nokkuð hefur slaknað á áhug-
anum eftir að ég gaf safnið. Ég
hef líkaj orðið þess greinilega
, var í sambandi við bókaöflun.
Bækurnar eru hættar að berast
upp í hendurnar á mér sem
áður. Það er vegna skorts á
áhuga. Það er sagt að áhuginn
skapi tækifærin og að trúin
flytji fjöll. Ég hef orðið þess
arna vár, þvi eftir að áhuginn
dofnaði, hef ég varla orðið nokk
urrar bókar eða ritlings vai
Það talar sfnu máli.