Vísir - 12.03.1962, Síða 16
VISIR
í bíl
á Esju
Bræðumir Eyvindur og Egill,
;synir Jónasar vegaverkstjóra í;
Stardal, sem báðir eru miklir;
ferðagarpar, komust á sunnu-
daginn á bil alla leið upp á
lEsju. Sagði Egill í simtali við
blaðið í morgun, að ferðin hefði;
gengið mjög vel og verið;
■ skemmtileg.
Við ókum inn allan Bleikdal
og síðan inn á móts við Hrúta-i
;dai og á harðfenni upp allt;
fjaliið! Hvergi iá jeppinn í, og;
•er skemmst frá að segja, að við
ókum síðan eftir fjallinu og
;fram á suðurbrún þess við
hamrabeltið hjá Kerhólakambi.; .
Þaðan var útsýnið dásamlegt.
Við dvöldum góða stund á fjall-
inu. Niður gekk ferðin og vel,
!en við urðum að gæta meiri
;varúðar. Ekki er svo að skilja;
;að hættulegt hafi verið, því í
•slíku harðfenni sem var í gær,
er nánast sagt skotfæri upp &
Esju, sagði Egill.
JACKIE FER
Á PÁFAFUND
Jacqueline Kennedy, banda-
ríska forsetafrúin, gekk í gær
fyrir Jóhannes páfa.
Ræddust þau við í hálfa
klukkustund og mæltu á
franska tungu. Var þetta ein
Iengsta áheym, sem páfi hefur
nokkum tíma veitt. Forseta-
hjónin bandarísku eru bæði
rómversk-kaþólskrar trúar.
Eftir á heimsótti forsetafrúin
prestaskóla, þar sem rómversk-
kaþólsk prestaefni stunda nám.
Menn höfðu safnazt saman í
tugþúsundatali, til þess að
fagna forsetafrúnni, er hún
lagði leið sina í Vatikanríkið.
■' . f
HINIR FJORU STÓRU
Á afmælismóti ÍR sem fram fór íþróttamenn, sem nú eru löngu
fram um helgina i iþróttahúsinu
að Hálogalandi var mikið fjöl-
menni saman komið. Mátti þar
sjá m.a. marga gamla og kunna
hættir keppni.
Ljósmyndari Vísis, Bjarnleif-
ur Bjarnleifsson, tók þá þessa
óvenjulegu mynd af fjómm
köppum, sem voru stærstu
stjörnurnar á íslenzkum íþrótta
himni fyrir einum áratug. Þeir
eru talið frá vinstri: Finnbjöm
Þorvaldsson, fyrmm Norður-
Iandamethafi í 100 m hlaupi,
Gunnar Huseby, Evrópumeist-
ari í kúluvarpi og Clausen-
bræðurnir frægu, Örn sem var
einn fremsti tugþrautarmaður
heims og Haukur, sem var Norð
urlandamethafi i 200 m hlaupi.
Nú færast árin yfir og hárin
taka að grána og nú verða
menn of stirðir til að taka þátt
í keppni. Þó er sú merkilega
undantekning frá þessu, að
Gunnar Huseby lætur eliina
engin áhrif hafa á sig. Hann tók
sjálfur þátt í mótinu og varð
sigurvegari í kúluvarpi.
Kommúnistar
í kvöld hyggst Æskulýðs-
fylking kommúnista sýna kvik-
mynd í Austurbæjarbíói um ævi
Globke, núverandi ráðuneytis-
stjóra dr. Adenauers. Segir
Þjóðviljinn, að myndin sýni fer-
il þessa „dygga þjóns nazist-
anna“, sem átt hafi þátt í gyð-
ingamorðum á stríðsárunum.
Gefur blaðið í skyn, að dr. Ad-
enauer hafi gamlan nazista og
gyðingamorðingja, sem hægri
hönd sína.
Vísir hefur aflað sér áreiðan-
legra upplýsinga um að mynd
þessi er hin argasta fölsun og
sett saman af kommúnistum í
Austur-Þýzkalandi í áróðurs-
skyni.
★
Ætla kommúnistar að freista
þess að sýna myndina hér á Iandi
og á öðrum þeim stöðum, sem
menn eru alls ókunnir sögu dr.
Globke og freista í skjóli þess að
telja fólki trú um sannleiksgildi
myndarinnar.
Tilgangurinn er augljós: að gera
núverandi stjóm Vestur-Þýzka-
lands tortryggilega og telja mönn-
um trú um að þar sitji gamir naz-
istar og hermdarverkamenn enn á
silkipúðum. Sannleikurinn er hins-
vegar sá að stjórn dr. Adenauers
hefir gengið mjög ötullega fram í
þvi að koma f veg fyrir að gamlir
nazistar komist aftur til vegs og
valda. Sjálfur mátti dr. Adenauer
flýja undan nazistum og fara huldu
höfði um langt skeið. Ósköp^trú-
legt væri að hann hefði skipað
gamlan nazista sinn nánasta sárn-
verkamann!
Hér skulu aðeins nefnd fáein
dæmi af mörgum um falsanir þær,
sem í kvikmyndinni felast:
1) Dr. Globke var aldrei félagi í
nazistaflokknum.
2) Dr. Globke starfaði aldrei með
Framhald á bls. 5.
Þrír söguleg
ir árekstrar
3 ungir menn handteknir
— grunaðir um þjófnað
í nótt stöðvuðu lögreglumenn
^amlan herbil á götum Reykja-
víkur, og fylgdi i kjölfar þess, að
þrir ungir menn sem voru í bíln-
um voru handteknir. Grunur Ieikur
á að þeir hafi framið innbrots-
þjófnaði austur á Stokkseyri svo
og í kaupfélagsútibúi við Landveg.
Innbrot þessi voru framin að-
fr.ranótt sunnudags. Innbrotið á
Stokkseyri var framið i benzínaf-
greiðsluskúr Pöntunarfél. verlca-
manna. Þar var opinn kassi og í
honum um 1800 krónur í pening-
um og var hann tæmdur. Einnig
var þar stolið 2-3 lengjum af sígar-
ettum.
Þessa sðmu nótt var og framið
innbrot-í útibú frá Kaupfélagínu
Þór á Hvolsvelli, við Landveg.
Þykir sennilegt að þar hafi verið
að verki sömu menn og á Eyrar-
bakka.
í útibúinu var stolið alls 3000
krónum í peningum. Brutu þjóf-
arnir rúðu í glugga og skriðu inn
í verzlunina, og stálu þar 2000 kr.
í húsinu er einnig bréfhirðing
póststjórnarinnar og var farið
þangað inn og stolið um 1000
krónum í peningum. Þá stálu þeir
nokkrum ölflöskum.
Það sem meðal annars rökstyð-
ur grun yfirvalda um að menn
þeir sem handteknir voru hér í
Reykjavík í ,nótt séu hinir seku,
er farkostur þeirra, en til bíls af
sömu gerð hafði sézt fyrir austan
aðfaranótt iaugardagsins og ferðir
hans þótt æði grunsamlegar.
Sföðva allar
flugferðir!
FRANSKA stjórnin birti árdeg-
is í dag bann við flugi leigu-
flugvéla og einkafiugvéla til
franskra flugstöðva og frá
þeim. Bannið, sem litið er á sem
öryggisráðstöfun vegna byiting-
arhættu, nær þannig ekki til
flugvéla viðurkenndra flugfél-
aga í áætlunarflugferðum.
Síðdegis á laugardaginn
varð allharður árekstur á
Ægissíðu við Hofsvallagötu.
Þar var 16 ára gömul og
réttindalaus stúlka á ferð í
bifreið, en ökuleiknin ekki
meiri en svo, að hún lenti á
tveim kyrrstæðum bílum,
þannig að þrír bílar urðu
fyrir meiri eða minni
skemmdum, einn þeirra það
mikið ,að flytja varð hann
brott af árekstursstað á
kranabíl.
Um helgina tók lögreglan
tvo ölvaða menn við akstur.
Annar þeirra hafði komið á
Volkswagenbifreið úr Lækj-
argötu, inn á Lækjartorg og
lent þar beint aftan á stræt-
isvagn. Þetta skeði um 7 leyt-
ið á laugardagskvöldið. Lög-
reglumenn voru nærstaddir,
þustu til og tóku ökumann-
inn, sem reyndist pöddufull-
ur, í vörzlu sína.
Þá hafði verið ekið í gær
á kyrrstæðan bíl á Hring-
brautinni með þeim afleið-
ingum að báðir bílarnir stór-
skemmdust.
Á fundi borgarráðs á föstu-
daginn var rætt um möguleika
á kaupum húsanna Kirkjutorg
6, en þau skemmdust mikið,
einkum annað húsið, af völdum
bruna fyrir skömmu, sem kunn-
ugt er. Hefur skrifstofustjóri
borgarskrifstofunnar, Páli Lín-
dai, haft mál þetta með hönd-
um. Hefur borgarráð hug á að
kaupa húsin með það fyrir aug-
um að rífa þau.
Á þessum borgarráðsfundi
var Páli Líndal falið að athuga
frekar um kaup húsanna.
BORGARRÁÐ VILL
M KAUPA HÚSIN