Vísir - 17.03.1962, Qupperneq 5
LaugardagOTln® 17. marz 1962.
VISIR
5
þjóðfé-
tækifæri
Langt er um liðið síðan við höfum birt frétt af sænska stórhlaup-
Vikan 18.— 24. marz. W W
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Þú ættir ekki að hafa of
hátt um þig nú í vikunni, því
aðrir hafa vindinn með sér.
Leitaðu því ráðlegginga maka
þíns, vina og félaga, það mun
reynast þér heppilegra, þegar á
reynir. Þú þarft því um fram
alit að sýna lipurð og sam-
starfsvilja. ‘
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Nýtt Tungl í sjötta húsi þínu
bendir til þess að þú ættir að
hagnýta þér nýjar hugmyndir
og aðferðir á vinnustað. Þú ætt-
ir þvf að leitast við að leysa
eins mikla vinnu af hendi og
þér er frekast unnt, þvf áhrif-
in til þess eru nú þér hagstæð.
Tvíburamir, 22. maí til 22.
júní: Þessi vika er hagstæð til
að skemmta sér, fara á sam-
komur, kvikmyndahús, dans-
leiki o. s. frv. Hins vegar er
þér ráðlegt að gæta fylistu var-
úðar hvað ástaniálin áhrærir,
því annars er hætt við spreng-
ingu, sem þú mundir dauðsjá
eftir síðar meir.
Krabbinn, 22. júní til 23.
júlí: 1 vikunni gefst þér tæki-
færi til að leysa heimilisvanda-
mál, sem þú hefur lengi verið í
vandræðum með. Sú lausn, sem
þú nú getur komið á ætti að
geta orðið varanleg og þyrfti
ekki að angra þig lengur en
þegar orðið er.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Vikan verður þér ánnrfk, sér-
staklega varðandi nágranna
þína og ættingja. Þeir munu nú
leita ráðlegginga þinna, en þú
þarft að gæta þfn sérstaklega
í öllum ákvörðunum, þar sem
þeir leita til þín í fullu trausti.
Ekki er ólíklegt að þú farir í
smáferðalag til að heimsækja
ættingja.
Meyjan, 24. ágúst til 23.
sept.: Fjármálin eru nú mest á
döfinni hjá þér og þá sérstak-
lega í sambandi við sameigin-
leg fjármál þín og annarra.
Hins vegar ættirðu að gæta
þín f því að kaupa aðeins hluti,
sem þú raunverulega þarft en
ekki hlaupa eftir ytri gljáa og
girnilegum hlutum, sem þú hef-
ur alls engin not fyrir.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Nú í vikunni verður ekki annað
sagt en að þú njótir verðskuld-
aðrar athygli annarra, sérstak-
lega síðari hluta hennar, þar
sem fullt Tungl er f fyrsta húsi
þínu. Samt þarftu að gæta þol-
inmæði gagnvart öðrum, sér-
staklega maka eða félögum þín-
um, því þeir eru ekki vel fyrir
kallaðir nú.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Vikuna ættirðu að nota til að
ijúka þeim verkefnum, sem þú
áður hefur byrjað á, en van-
rækt að ljúka. Þetta á þó sér-
staklega við um það, sem er
nauðsyn. Einnig er nú hagstætt
fyrir þig að framfylgja þeim
trúnaðarmálefnum, sem þú
býrð yfir.
Bogmaðurlnn, 23. nóv. til
21. des.: Þú munt fá margar
heimsóknir nú í vikunni frá
vinum og kunningjum. Tímabil-
ið ætti að verða fullt skemmt-
unar í vinahópi og félaga.
skipti þín og vina þinna ve
eftir beztu vonum þínum.
ættir einnig að leita ráða þei
nú, því þau munu reynast
haldgóð.
Steingeitin, 22. des. til 20,
jan.: í vikunni ættirðu að til-
einka þér íhaldsama afstöðu til
hlutanna, þannig muntu fram-
fylgja málefnum þfnum á auð-
veldastan hátt. Sérstök áherzla
er á stöðu þína í
laginu og þér býðst
til að auka álit þitt.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Vikan verður full verk-
efna og þú munt sjá að þú
verður nú að gera áætlanir upp
á framtíðina til langs tíma.
Viðskipti við fjarlæga vini og
útlönd eru undir hagstæðum á-
hrifum nú, svo sem bréfavið-
skipti eða verzlunarviðskipti.
Fiskamir, 20. febr. til' 20.
marz: Fjármál þín og
þinna eru nú undir sérstökum
hagstæðum afstöðum. Þetta
á sérstaklega við um maka eða
viðskiptafélaga þfna. Þú ættir
nú að reyna að auka og endur-
skipuleggja tekjulindir þínar.
aranum Dan Waem, og enn lengra síðan mynd hefur birzt af
honum. Hér sjáum við hann í fyrsta hlutverki sínu sem atvinnu-
maður í frjálsum íþróttum, en það var að hlaupa gegn boðhlaups-
sveit kvenna, .... stúlkumar unnu þama frækilegan sigur.
um
mn
stöðva
Eidsvoðar otj fjón gætu orðið afleiðingar
FYRIR s.l. helgi var stuldur I
sjúkraflugvél Björns Pálssonar og
er talið fullvíst að þar hafi böm
verið að verki. Var flugvélin inni
í flugskýli þegar þetta gerðist I
Ijós kom og, að einnig hefur verið
stolið úr ‘veim flugvéium öðrum,
einkaflugvélum sem voru i sama
skýli.
í stuttu sfmtali blaðsins við
Björn Pálsson í gær, sagði hann,
að um væri að ræða stuld á hljóð-
nema við talstöð flugvélarinnar. j
Við hann er gormsnúra og er hljóð
neminn m.a. auðþeklctur á henni.
Ég vaV að fara í sjúkraflug á
laugardaginn er ég veitti því eftir-
tekt að hljóðneminn var farinn.
Þetta tafði mig eðlilega, því í loft-
ið fer ég ekki nema hafa hljóð-
nemann, því án hans er talstöðin
í frk. En til allrar hamingju var
ekki um að ræða neinn skyndi-
flutning á slösuðum, og því kom
það ekki beint að sök þó ég yrði
að bíða nokkra stund eftir að tek-
izt hafði að útvega nýjan og koma
honum suður á Reykjavíkurflug-
völl. 1 hinum tilfellunum var einn-
ig um að ræða þjófnað á þljóð-
nemum.
I þessu sambandi fór blaðið að
ræða við hann um það, með hverj-
um hætti það gæti orðið að börn
væru á flækingi inni á flugvallar-
svæðinu. Sagði Björn að því væri
ekki að leyna, að alltof mikil brögð
væru að þvf. Það er nauðsynlegt,
sagði hann, að taka upp strangari
löggæzlu á flugvellinum. Gæzlan
er of staðbundin við lögregluskýl-
ið við flugvallarhliðið fyrir neðan
Miklatorg. Það myndi skapa mik-
ið aðhald gagnvart krökkunum,
sem auðvitað eiga ekkert erindi
inn á flugvöllinn, ef lögreglan væri
á ferli um flugvöllinn, til gæzlu-
starfa.
í flugskýlunum eru mikil verð-
mæti í flugvélunum, sem þar eru
geymdar. Og hvað myndi t.d. ske
í ensku bikarkeppninni urðu
úrslit á miðvikudaginn að Fulham
vann leik sinn gegn Blackburn á
heimavelli þeirra síðarnefndu með
1 — 0, en Manchester United vann
Preston með 2—1. í „semi-final“
enska bikarsins rnunu leika Burn-
ley og Fulham og Manchester Uni-
ted og Tottenham. Er ekki ólíklegt
að topþliðiðin Tottenham og Burn-
ley mætist til úrslita í keppninni á
Wembley, enda er það óskaleikur
flestra.
þar inni, ef krakkar færu upp í
eina flugvélina. Viljandi eða óvilj-
andi gætu krakkarnir valdið
skemmdarverkum á flugvélunum,
með hinum alvarlegustu afleiðing-
um. - Og setjum sem svo, að
krakkar færu upp í flugvél,
kveiktu þar á eldspítu. - Já, þá
myndi slökkviliðið fá nóg að gera
og tryggingafélögin nóg að borga.
LAUGARDAGUR
Reykjavíkurmeistaramót í
bruni (A-B-C- drengja og
kvennaflokkar) í Skálafelli kl.
16 með þátttöku 50 brunmanna
kvenna.
Körfuknattleiksmót Islands
að Hálogalandi kl. 20,15. Ár-
mann - ÍKF í meistaraflokki
karla ÍS - ÍR í 1. flokki karla.
SUNNUDAGUR
STEFÁNS-mótið í Skálafelli.
Keppt verður í svígi (A-B-C-
KVEÐJA
FRÁ FRÍ
Nýlega barst okkur til eyrna
sú frétt, að frú Gerda Harbig
hafi látizt eftir stutta en þunga
legu þann 24. febrúar s.l. á
sjúkrahúsi í Berlín, aðeins 42ja
ára gömul.
Gerda Harbig var ekkja hins
fræga íþróttamanns, hlauparans
Rudolf Harbig. Hún var ís-
lenzkum íþróttamönnum kunn
og þá sérstaklega frjálslþrótta-
mönnum og fulltrúum Islands
í Olympíunefnd. Frú Harbig
hafði jafnan stuðlað að sam-
skiptum íslenzkra og austur-
þýzkra frjálsíþróttamanna, og
stóð hún fyrir rausnarlegum
boðum til íslenzkra þátttakenda
á alþjóðamót það, sem haldið
er árlega í frjálsíþróttum í
Dresden og kennt er við minn-
ingu látins eiginmanns hennar,
Rudolf Harbig.
Gerda Harbig var mjög þekkt
í heimalandi sfnu fyrir hið
mikla og fórnfúsa starf hénnar
þar í þágu íþróttalífsins og
uppbyggingu þess ásamt út-
breiðslu fþróttastarfseminnar
og þá sér í lagi fyrir barna- og
kvennaíþróttaiðkanir. Hún átti
áæti f Olympíunefnd Austur-
Þýzkalands frá stofnsetningu
nefndarinnar 1951.
Þeir, sem kynntust frú Gerdu
Harbig, tóku stráx eftir hinum
sérstöku persónueiginleikum
hennar, sem komu sérstaklega
fram í meðfæddum mannkær-
leika og hjálpsemi við náung-
ann. Hún lifði fyrir annað æðra
takmark en að fórna íþrótta-
starfseminni líf sitt, en það var
að sjá fyrir og ala upp einka-
barn sitt, sem var aðeins reifa-
barn, þegar Rudolf Harbig lézt.
Með þessum fáu línum kveðj-
um við Gerdu Harbig og þökk-
um fyrir að hafa átt því láni að
fagna að kynnast henni og hafa
átt samstarf við hana á undan-
förnum árum.
Frjálsíþróttasamband íslands.
drengja- og kvennaflokkar).
Nafnakall fer fram í skálanum
kl. 11, en strax á eftir hefst
keppnin.
Handknattleiksmót íslands að
Hálogalandi kl. 20,15.
Leikið í 2. fl. kvenna B og A,
3. fl. karla A og 2. fl. karla A,
alls 12 spennandi leikir.
Um helghia lýkur Meistaramóti
Norðurlanda í handknattleik.
í dag fara fram cftirfarandi
leikir f Næstved:
Danmörk — ísland
Noregur — Svíþjóð
Finnland — ísland.
I
á morgun í Hróarskeldu:
Danmörk — Noregur
Finnland — Svíþjóð
' fsland — Noregur
Danmörk — Svíþjóð.
Sagt verður frá leikjunum hér
á síðunni á mánudag.
i