Vísir - 21.03.1962, Page 1
VISIR
52. árg
Miðvikudagur 21. marz 1962. - 68. tbl.
kjamorkusprengjur'
Einkaskeyti frá UPI.
New York í nótt.
ÞAÐ hefir nú verið ákveðið af
ríkisdómara í Jersey City, að
í morgun brann mest allt
frystihúsið við Fífuhvammsveg
í Kópavogi. Langmestur hluti
hússins með dýrustu vélunum,
miklum birgðum af fiski gjör-
eyðilagðist. Ekki er hægt að
meta tjónið í krónutölu með
* nokkurri vissu en augljóst er
að um milljónatjón hefur verið
að ræða.
Þegar fyrst varð vart við
eldinn frá húsi skammt frá um
kl. 6.48 var hann orðinn mikill
og logaði út, einkum í mið-
hluta hússins. Slökkviliðinu
var..þ.egar gert viðvact og komu
5 bílar með dælur, þar af
tveir frá Reykjavíkurflugvelli
á vettvang eftir 10 mínútur. Þá
var húsið alelda. Þegar búið
var að slökkva aðaleldinn um
kl. 9 var mestur hluti hússins
alveg brunninn, þakið fallið,
vélar að mestu ónýtar svo og
fiskbirgðir hússins.
Þarna skemmdist alveg ný
500 þúsund króna síldarflökun-
arvél, sem hafði verið í notkun
nokkra daga. Á annað hundrað
kassar af frystum fiski, eink-
um ýsu, 15-20 tonn af síld,
annað eins af loðnu, eitthvað
af kola og 10 — 15 tonn af refa-
fóðri, sem allt var í geymslum
hússins eyðilagðist.
I þeim hluta hússins, sem
brann, en grunnflötur hans er
um 700 — 750 fermetrar voru
pökkunarsalur, frystiklefar,
frystigeymsla. Vélarsalurinn
með 6 frystivélum að verð-
nlæti um eina til eins og hálfa
milljón kr. brann að ofan, en
ekki er gott að gera sér grein
fyrir skemmdum á vélum.
Eigandi frystihússins var
hlutafélagið Kópur. Fram-
kvæmdastjóri er Karl Bjarna-
son en verkstjóri Sveinn
Jónsson. í morgun áttu um 20
manns að mæta til vinnu. Allar
heimildir um vinnu þeirra,
vinnuskýrslur og magnskýrslur
brunnu í húsinu.
Eldsupptök eru ókunn. Eng-
inn sá hvar eldurinn byrjaði, en
talið er að það hafi verið í
miðhluta hússins eða í öðrum
þeim enda vélasalarins, sem er
næst miðhlutanum. Á þessum
stað er rafmagnstafla. Raf-
magnskerfið hafði verið rann-
sakað nokkrum dögum áður.
5.s.'
/ frystihúsbrunu í morgun
íslenzku sjómennimir þrír, sem
sekir hafa gerzt um smygl á
írskum happdrættismiðum, megi
fara með Goðafossi, þegar skip
ið lætur úr höfn á föstudaginn.
David Satz yngri, aðstoðar-
saksóknari, lét svo um mælt við
tíðindamann UPI, að aðalræðis-
maður íslands í New York,
Hannes Kjartansson hefði gef-
ið yfirlýsingu um ,að hann tæki
á sig ábyrgð á því, að mennim-
ir kæmu til Bandaríkjanna inn-
an viku frá því að þeim væri
tilkynnt, að mál þeirra skyldi
tekið fyrir rétt.
Málsvari Thule Ship Agency,
sem hefir á hendi afgreiðslu
skipa Eimskipafélagsins, lét svo
ummselt, er tíðindamaðurinn
ræddi við hann:
„Þetta kom okkur sannarlega
á óvart og okkur þykir það á-
kaflega leitt, að þetta skyldi
gerast. Það er þeim mun leið-
ara sem félagið er í rauninni
eign allra íslendinga, svo að það
er nokkur hnekkir fyrir alla ís-
lenzku þjóðina".
Framh. á 5. síðu.
Þjóðviljinn segir frá því í
morgun, að Nóbelsskáldið Hall-
dór Kiljan Laxness sé nú á för-
um til Ungverjalands í boði rit-
höfundasamtakanna þar.
Ekki mun H. K. L. haía heim-
sótt Búdapest frá því að bylt-
ingin var kæfð þar á götum
borgarinnar af Janos Kadar og
skriðdrekasveitum Rauða hers-
ins, er síðar myrti ýmsa af for-
ustumönnum þjóðarinnar. At-
hyglisvert er að H. K. L. fer
þangað í boði rithöfundasam-
takanna, en þau komu mjög við
sögu í upphafi byltingarinnar.
Þjóðviljinn getur þess og að
verið sé að þýða á ungversku
islandsklukku H.K.L. og £ ráði
muni að gefa þar út Heimsijós
og Gerplu.
\aaaaaaaaaaaaaaaa/w»
B. Bella Hermenn í Argentínustjórn?
íagnað
Manntjón varð minna i borg-
um Alsír í gær en fréttir f gær
hermdu og áreiðanlegar tölur
ekki enn fyrir hendi, en tala
hinna drepnu mun þó yfir 30
og á annað hundrað særðust, í
Arabahverfinu í Algeirsborg,
7ramhald á bls. 5.
I Buenos Aires hefur verið lýst
yfir, að herlög gildi í nokkrum
hiuta borgarinnar, og var þessi
ráðstöfun gerð af öryggisástæðum,
en ekki hefur frétzt um vopna-
viðskipti neinsstaðar í landinu.
Allir aðalráðherrar Argentínu-
stjómar, átta talsins báðust lausn-
ar í gær, og gerir Frondizi ríkisfor
seti nú tilraun til þess að mynda
samsteypustjóm — með þátttöku
æðstu manna landvarnanna.
Fundur var haldinn í gærkvöldi
og sátu hann yfirmenn landhers,
flughers og flota, ásamt ríkisfor-
setanum, og náðist samkomulag
um myndun samsteypustjórnar.
Jafnframt varð kunnugt, að ráð-
stafanir verða gerðar til þess að
banna alla stjórnmálastarfsemi
Peronista og er vænzt tilskipunar
um bann við starfsemi flokksins.
Herinn stjórnar nú í þeim fimm
fylkjum, sem Peronistar unnu með
stuðningi kommúnista, en stjórn-
skipaðir embættismenn í hinum
fylkjunum.
Fyrri fréttir hermdu, að það
hefði verið gegn vilja Frondizi að
herinn tók völdin, en hann fékk
engu þar um ráðið og verður nú
að mynda stjórn með þátttöku
hans.
Aískifti Peroaista bönauð
1