Vísir - 21.03.1962, Side 4
4
VISIR
Miðvikudagurinn 21. marz':l^f'
SGRAFFITO
HIÐ nýja viðskipta og iðnað-
arhverfi í Múlunum fyrir ofan
Suðurlandsbrautina þar semeru
stórhýsi H. Ben. h.f. og Ford-
umboðs Kr. Kristjánssonar, ?r
nú óðum að byggjast upp. Til
þess að mæta kröfum tímans
verður einnig að koma þar upp
matsölustaður. Er nú unnið af
kappi við að fullgera stóra mat-
sölu á horni Ármúla og Halla-
múla. — Hér verður fullkomn-
asta matsalan í allri borginni,
sagði Stefán Ólafsson mat-
sveinn, framkvæmdastjóri þess-
arar nýju matsölu. Pað er fyr-
irkomulagið á starfsemi matsöi-
unnar sem gerir þetta. — Stórt
og rúmgott vinnupláss verður
fyrir matreiðslumennina að
vinna við kjötið, og við hliðina
á kjötvinnslunni verða stórir
frysti og kæliklefar fyrir öll
matvælin. En við munum sýna
þetta allt þegar við opnum,
sem vonandi verður rétt fyrir
páska, sagði Stefán.
Við vorum annars komnir
þangað til að skoða veggskreyt-
ingu, sem er ný hér á landi, en
ævaforn t.d. í S-Evrópu. Hún
er kölluð Sgraffito. Eini íslend-
ingurinn sem numið hefur
jtessa listgrein er Snorri Frið-
riksson, ungur listamaður norð-
an frá Sauðárkróki.
Við röbbuðum dálitla stund
við Snorra, sem útskýrði fyrir
okkur hvernig Sgraffito-myndir
eru gerðar á veggi. — Þetta er
I sjálfum matsalnum, sem verð-
ur mjög bjartur. Einn veggur
hans sem til suðurs snýr verður
allur úr gleri. Snorri hafði lokið
við að gera skreytingu á allhá-
I an vegg. Skreytingin verður á
tveim veggjum. Hann hafði bú-
ið til þrjár mismunandi litar
hrærur, með mjög litlu sem-
entsinnihaldi. Múrari smurði
neðst hvítu lagi. Eftir að það
var hæfilega stirnað, var smurt
þar ofaná svörtu lagi og efst
rauðbrúnu. Síðan hafði Snorri
skorið í þessi lög, mismunandi
myndir, ýmist hvítar, svartar
eða brúnar. Þetta er rytmisk
hreyfing í litum, sagði hann.
Hann sýndi okkur verkfærin,
sem virtust ákaflega einföld:
járn, sem hann sker út mynd-
irnar með, og réttskeið. Þegar
við ungan iistamann
horft er á myndirnar á veggn-
um, hafa þær svipaða áferð og
fios.
Snorri sagðist halda að þetta
væru fyrstu veggirnir sem
þannig væru skreyttir hér á
landi, en úti í Sviþjóð er þetta
allalgengt og yfirleitt í Evrópu-
löndum alþekkt listgrein.
Snorri kvaðst hafa numið ’
þessa listgrein svo og mosaik
á listskóla í Stokkhólmi, en þar
hefur hann verið við nám und-
anfarin ár. Þar áður hafði hann
verið nemandi í Handíðaskólan-
um nokkur ár. Ég lagði stund
á málaralist, sagði Snorri, en
tók hinar greinarnar tvær svona
sem hliðarnám. Síðan ég kom
heim hef ég unnið við aug-
lýsingateiknun hjá Kassagerð
Reykjavíkur.
Við höfðum orð á því við
hann að ekki myndi hann hafa
haft neina opinbera sýningu á
verkum sínum. Því svaraði
Snorri, að hann yrði fyrst að
hafa upp á eitthvað að bjóða I
þeim efnum. Kvaðst hann nokk-
uð hafa viðað að sér að efni.
Ég mála einkum abstrakt
myndir, sagði hann. En ég hefi
gaman að þessu verki, sem ég
hef fengið að leysa á þann hátt
sem ég tel sjálfur að það falli
bezt inn 1 umhverfi sitt og til-
gang.
Snorri við Sgraffito myndina,
— flosáferð í hvítu, svörtu og
dökkbrúnu.
RUMLEGA ÞRIÐJA HVERT
SKÓEABARN HÉR REYKIR
Ætlaðí t il Eyja-
lenti á Akureyrí!
Hvað er hægt að gera til
að draga úr sígarettureyk-
ingum hér á landi? Prófessor
Niels Dungal, einn harðasti
andstæðingur tóbaksnotkun-
ar og forystumaður samtak-
anna gegn krabbameini, álít-
ur, að er til lengdar láti,
dugi ekki annað en að haga
svo uppeldi æskunnar, að
hún verði frábitin reyking-
um.
Helzta ráðið til að draga
úr reykingum hennar, en þær
eru allverulegar, samkvæmt
skoðanakönnunum, er að
dómi próf. Dungals, að banna
láusasölu á sígarettum. Það
eitt nægir þó ekki, segir pró-
fessorinn, en mundi stuðla að
framgangi þessa nauðsynja-
og heilbrigðismáls.
Vísir spurði Jón Kjartans-
son, forstjóra Áfengis- og tó-
bakseinkasölunnar, hvort
bann þetta við lausasölu á
sígarettum hefði komið til
tals þar. Forstjórinn svaraði/
að það væri fjármálaráðu-
neytið, sem réði þessu. Einka
salan hefði að vísu tillögu-
rétt.
„Þetta hefur ekki verið
rætt,“ sagði hann.
Af niðurstöðum könnunar,
sem Haraldur Guðjónsson
læknir framkvæmdi að undir-
lagi dr. Jóns Sigurðssonar
borgarlæknis árið 1959 er
ljóst, að ærin verkefni eru
fyrir þá, sem vilja beita sér
gegn reykingum skólabarna.
Um þriðji hver eða um
35% af 13 ára drengjum
reykir meira og minna sígar-
ettur. Meira en helmingur
þeirra er farinn að reykja á
12 ára aldri, eða 54%. Meira
en 36% allra pilta í skólum
reykir og meira en 18% allra
stúlkna.
Stjórnarfar Castros á Kúbu
virðist smám saman færast I
það horf, sem menn þekkja af
öðrum kommúnistaríkjum, því
að óðum þrengist hagur manna.
í síðustu viku tilkynnti
Castro i langri ræðu, að nauð-
synlegt væri að taka upp
skömmtun á hrísgrjónum og
baunum, sem eru tvær aðal-
matvælategundir eyjarskeggja.
Hann tilkynnti jafnframt, að
skömmtun á feitmeti og fleira,
aðrir þeir, sem hafa velt fyr-
ir sér þessu vandamáli, eru
þeirrar skoðunar, að bann við
lausasölu á sígarettum geti
dregið úr þessum' miklu reyk-
ingum.
Unglingum finnst ekki
í mikið ráðizt að kaupa
eina og eina sígarettu.
En þegar þeir þurfa að
kaupa heilan pakka,
leggja út fyrir honum
og jafnvel geyma hann
fyrir foreldrunum. eru
sígarettukaupin orðin
nokkur vandamál.
sem látin var ganga í gildi í
ýmsum héruðum eyjarinnar á
síðasta ári, skyldi framvegis
gilda um landið allt. Loks gat
hann þess, að sápu og þvotta-
efni hvers konar mundu verða
sett á skömmtunarlista í
stærstu borgum landsins.
Castro sagði, að skömmtunin
væri því að kenna, að sett hefði
veriö „ruddalegt viðskipta-
bann“ á Kúbu, sem gerði að
verkum, að viðskipti þjóðarinn-
EFTIR hádegið í fyrrad. lagðist
allt flug niður frá Reykjavíkur-
flugvelli og 2 flugvélar, sem
fóru fyrir hádegið út á land,
komust ekki til Rvíkur aftur.
Önnur þessara flugvéla fór um
morguninn til Akureyrar, en
um það leyti sem hún ætlaði
að leggja af stað þaðan aftur,
barst henni tilkynning um að
Reykjavíkurflugvöllur hefði lok
azt vegna þoku. Hún varð því
að halda kyrru fyrir á Akureyri
þar til í gær. Hin flugvélin, er
ar væru ekki með eðlilegum
hætti. Þetta mundi koma verst
niður á íbúum höfuðborgarinn-
ar, þvi að þar yröi einnig að
skammta grænmeti, egg, mjóik,
fisk og kjöt.
Þessi héraðaskömmtun Castr-
os bendir ótvírætt til þess, að
kommúnistar á Kúbu eigi í
vandræðum á fleiri sviðum en
þeim einum, sem hér hefur ver-
ið getið.
tepptist úti á landi fyrrad. lagði
í áætlunarflug til Vestmanna-
eyja rétt áður en þokan skall
yfir. Þegar hún kom yfir Vest-
mannaeyjar var flugvöllurinn
þar lokaður vegna þoku, svo
flugvélin snéri aftur til Reykja
víkur. En þokan varð á undan
flugvélinni hingað, svo hér varð
ekki heldur unnt að lenda. Var
þá flogið tíl Akureyrar og þar
urðu Vestmannaeyjafarþegarnir
að gista um nóttina.
Ágætur ufli
é Ólafsvík
Fjórtán stórir bátar eru nú
gerðir út frá Ólafsvík og er
afli ágætur.
Heildaraflinn var orðinn 1631
iest um miðjan þenna mánuð,
og hafði hann fengizt í 237
róðrum. Hæsti bátur var þá
Jón Jónsson, sem fengið hafði
245 lestir í 32 róðrum, og er
þess að geta í því sambandi, að
allur sá afli er fenginn á línu.
Prófessor Niels Dungal og
Castro skammtar nauðsynjar