Vísir - 21.03.1962, Qupperneq 9
Miðvikudagurinn 21. marz 1962
VISIR
9
Reykjaneshyrna, séð yfir Trékyllisvík. (Ljósm.: Þorst. Jósefsson).
í kvöld er hin vikulega kvöld
vaka vetrardagsskárinnar í út-
varpinu, og hún er að sjálf-
sögðu þjóðleg sem vera ber.
Helgi Hjörvar heldur áfram að
lesa úr Eyrbyggja sögu, sem
hefir sveitunga hans, Snorra
goða, að einni höfuðpersónu
og segir frá reimleikunum á
Fróðá, frægastadraugagangihér
á landi til forna. Þá verða flutt
sönglög eftir Bjarna Böðvars-
son, Jóhannes úr Kötlum les úr
þjóðsögum Jóns Árnasonar, og
Sigurbjörn Stefánsson flytur
vísnaþátt.
Gamalt útilegumannabæli
er í Þórðarhelli á Ströndum,
og flytur dr. Sfmon Jóh. Ág-
ústsson prófessor frásöguþátt
af því á kvöldvökunni í kvöld,
en hann er einmitt fæddur og
upp alinn á þessum slóðum.
Segir hann þannig umhorfs í
hellinum, að þar hafi einhvern-
tíma hafzt við maður. Söguna
af Þórði sakamanni skráði
Tómas nokkur Guðmundsson
frá Gróustöðum f Geiradal á
Barðaströnd, kallaður „vfð-
förli“, og sendi á sínum tíma
Jóni þjóðsagnasafnara Árna-
syni, en hún hefir ekki birzt
fyr en í nýju útgáfunni, sem
bókaútgáfan Þjóðsaga hefir ný-
lega Iokið við. Tómas vfðförli
fékkst talsvert við að skrá
þjóðsögur og sagnir, og ekki
eru annarsstaðar til en í hand-
ritum hans Ljúflingsmálin
fögru, sem hefjast þannia
(sagan og kvæðið allt hefir
verið prentað í Þjóðsögum og
munnmælum Jóns Þorkelsson-
ar):
Man ég enn lundinn,
man ég enn menja lundinn
mest fyrir dyggðir flestar.
Engri áður né síðar
ann ég betur en svanna.
Man ég enn lundinn,
man ég enn menja lundinn.
Ekki verður rakin hér sagan
af Þórði sakamanni, svo að
ekki sé spillt fyrir lestri pró-
fessorsins í kvöld. En Þórðar-
helli, sem er í Reykjaneshyrnu
milli Trékyllisvíkur og Ingólfs-
fjarðar, er þannig lýst: Dyr
hans eru svo lágar, að inn
verður að ganga hálfboginn.
Liggur hann niður á við, þegar
eins faðms Iangt er inn komið.
í miðjunni er bálkur eða vegg-
ur hlaðinn úr köntuðu grjóti. Á
1 hellismunna Þórðarhellis í Reykjaneshymu. T.v. vinstri er
prófessor Símon Jóh. Ágústsson, sem segir frá Þórði útilegu-
manni í útvarpinu í kvöld.
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra:
Opinberir starfsmenn
Launalög.
Launakjör opinberra starfs-
manna eru ákveðin f launa-
lögum, sem Alþingi setur.
í framkvæmd hefur þess-
um málum þó lengi verið
skipað með þeim hætti, að
áður en frumvarp til nýrra
launalaga er lagt fyrir Al-
þingi, hafa rækilegar viðræð-
ur farið fram milli fulltrúa
ríkisins og hinna opinberu
starfsmanna. Hefur þá yfir-
leitt náðst samkomulag i
megindráttum. En Alþingi
hefur úrslitavaldið og getur
breytt frumvarpinu eins og
því þykir henta.
Samningsréttur.
Lengi hefur Bandlag starfs
manna ríkis og bæja haft
uppi þá kröfu, að þessari
skipan væri breytt. í stað
Iaunalaga kæmi kjarasamn-
ingur milli rfkissjóðs og
bandalagsins, — samnings-
réttur yrði viðurkenndur.
Ýmsir hafa einnig krafizt
verkfallsréttar til handa hin-
um opinberu starfsmönnum.
Frambúðarlausn.
Að undanförnu hefur mikil
vinna verið lögð í það, að
finna frambúðarlausn á þessu
vi§kýf£i£$,1í>g] vfðtæka vanda-
máíi. -Verður hér eins og ella
að leita að hinum gullna
meðalvegi.
Þjóðfélaginu væri það
vafalaust lítill fengur, að op-
inberir starfsmenn bættust
við þá fjölmennu hópa í landi
voru, sem beita verkfalls-
vopninu til þess að reyna að
bæta kjör sín. Enda verður
það æ fleiri mönnum ljóst,
að það er ekki leiðin til
bættra lífskjara að lama
framleiðsluna eða starfsemi
ríkisins með vinnustöðvun-
um.
Ýmsum alþingismönnum
mun þykja það viðurhluta-
Gunnar Thoroddsen
mikið, að Alþingi afsali sér
valdinu til þess að setja
launalög. Fjárveitingavaldið
sé með þeim hætti tekið úr
höndum Alþingis. '
Hinn gullni •
meðalvegur.
Hinn gullni meðalvegur
sem til þess er vænlegastur
að sætta andstæðar skoðan-
ir, er sá, að ríkið viðurkenni
fullan samningsrétt opin-
berra starfsmanna. Báðir að-
iljar gangi til viðræðna sem
jafnréttháir samningsaðiljar.
Þeim sé ætlaður til þess
hæfilegur tími að koma sér
saman. Ef ekki næst sam-
komulag, verði málið af-
hent sáttasemjara ríkisins til
meðferðar. Leiði þær umleit-
anir eigi til árangurs, gangi
málið til úrskurðar kjara-
dóms, sem kveði upp endan-
legan úrskurð um það, hver
kjörin skuli vera.
Samningar til
tveggja ára.
Kjarasamningur, eða úr-
lausn kjaradóms, þarf að
gilda til tveggja ára í senn,
til þess að nokkur festa köm-
ist á.
Undirbúningur
fyrsta kjara-
samnings.
Ef frumvarp um samnings
rétt opinberra starfsmanna
verður lagt fyrir Alþingi, er
nú situr og afgreitt sem lög
frá því þingi, má ætla, að
samtök þeirra telji það sigur
í langri réttindabaráttu og
meti að maklegleikum.
Myndi skjótlega hefjast
undirbúningur kjarasamn-
inga, sem hlýtur að taka all-
langan tíma. Það er mikið
verk að undirbúa í fyrsta
sinn slíkan kjarasamning,
afla upplýsinga og gagna inn
anlands og utan, skipa starfs
mönnum niður í launaflokka
og ákveða hlutfall þeirra í*
milli.
Æskilegt væri, að allir op-
inberir starfsmenn yrðu hér
samferða og einstakir hópar
féllust á að bíða með kröfur
sínar um kjarabætur þangað
til heildarsamningur lægi
fyrir.
Sérstaða kennara.
Margir telja þó, að í þess-
um efnum hafi kennarar
nokkurra sérstöðu. Kennara-
skortur er hér tilfinnanlegur
og erfitt að fá nógu marga
kennara með fullum kenn-
araréttindum til starfa í skól-
unum. Á hverju ári missast
margir hinir hæfustu menn
úr kennarastétt yfir til ann-
arra starfa. Hafa Danir og
Norðmenn að undanförnu átt
við þennan sama vanda að
glíma, og hafa þeir nýlega
bætt kjör kennara sinna.
Ef íslendingar vilja halda
uppi skólastarfi til jafns við
aðrar menningarþjóðir, verð-
úr að búa svo að kennara-
stéttinni, að jafnan fáist
nóg af hæfum mönnum til
þess að annast menntun og
uppeldi æskunnar.
Afíinn sL ár
635 þás. L
öllum röndum hans eru lagðir
steinar hver við annan. Rjáfur
hellisins er hvelft. Lítil birta er
í honum og ekki er þar les-
bjart um hádag. Kaldur óþefur
er f honum, og liggur manni
við ógleði þar inni. Sandskriða
brött liggur úr stórgrýttri fjöru
til hjallans, sem hellirinn er f.
Ekki sér til dyra hellisins fyrr
en að þeim er komið.
Veraldarsaga og
næturhljómleikar.
Eftir seinni fréttir flytur
Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri
8. lestur úr Veraldarsögu
Sveins frá Mælifellsá, og loks
verða næturhljómleikar í eina
klukkustund, langt fram á 12.
tímann. Kammerhljómsveit út-
varpsins í Strassborg, undir
stjórn Marius Briancon, leikur
sinfóníur eftir Haydn og
Gounod, og divertimente eftir
Mozart.
. síðasta ári varð fiskaflinn á
öllu landinu rúmlega 635 þúsund
Iestir, að þvi er segir f lokaskýrslu
Fiskifélags íslands, en varð á ár-
inu 1960 513,7 þúsund lestir.
Bátafiskur á sfðasta ári varð
562,8 þúsund lestir (400 þús. lestir
árið 1960), og var síld meiri hluti
þessa afla, því að alls lögðu bátar
á land 325,7 þús. lestir af síld, og
er það meira en tvöföldun síldar-
aflans frá 1960, þvl að þá varð
hann aðeins 135,6 þús. lestir. Tog-
araaflinn á síðasta áfi varð tæp-
lega 72,4 þús. lesta, en hafði verið
113,7 þús. lesta árið 1960. Var
togaraaflinn þvf rúmlega 40 þús.
lestum minni á sfðasta ári en 1960.
Sýningum
að Ijúka
í kvöld verður 14. og um leið
næst sfðasta sýning á leikriti
I 'astley’s „Hvað er sannlejkur?“
Það er þvf hver síðastur með að
sjá þetta ágæta Ieikrit.