Vísir - 21.03.1962, Qupperneq 16
t
VISIR
Miðvikudagurinn 21. marz 1962
Leikur
einleik
á Selló
Einar Vigfússon, selióleikari,
kemur fram sem einieikari á
tónleikum Sinfóníuhljómsveit-
ar islands í sgmkomuhúsi Há-
skólans annað kvöld, en stjórn
andi verður Jindrich Rohan.
Þetta eru tónleikamir, sem
haida átti 15. marz en varð að
fresta sökum inflúenzufaraid-
ursins, og gilda því sömu að-
göngumiðar nú.
Flutt verða fjögur verk: Eg-
mont-forleikurinn eftir Beet-
hoven. Rococo-tilbrigði fyrir
selló og hljómsveit eftir Tsch-
aikowsky, þar sem Einar Vig-
fússon leikur einleikinn. Þá
verður tónverkið Tapiola eftir
Sibelius og loks Skozka sin-
fónían eftir Mendelssohn.
Ljósmyndari Vísis I.M. tók
þessa mynd af Einari á æfingu
í morgun.
Cnskur togan
UM klukkan 8 í gærkvöldi var
brezkur togari tekinn að veið-
um innan fiskveiðimarkanna
við Vestmannaeyjar. Var hér
um að ræða togarann Wyre
Mariner frá Fleetwood.
• Það var hið gamla varðskip
Ægir, er hér var að verki, skip
herra Haraldur Björnsson. Gerð
ist þetta vestur af Vestmanna-
eyjum og hafði togarinn verið í
sínu fyrsta hali er Ægir stóð
hann að verki. Var togarinn þá
kominn 2 mílur fyrir innan
mörk veiðihólfs sem þar er op-
ið, eða alls um 8 mílur fyrir
innan 12 mílna mörkin.
Togarinn var færður til Vest
mannaeyja og verður fjallað
um mál skipstjórans, Percy
Alþjóðaleikhúsdag-
ur hér í fyrsta sinni
Næstkomandi þriðjudag, 27.
marz, verður haldinn Alþjóðaleik-
37. SÝNING
N.k. föstudag verður f Skugga-
Sveinn sýndur í 37. sinn í Þjóð-
Ieikhúsinu. Uppselt hefur verið
á allar sýningar og hafa þá um
23 þúsund Ieikhúsgestir séð
þcssa vinsælu sýningu.
Þetta leikrit er mjög mikið
sótt af fólki úr nærliggjandi
byggðarlögum. — Á næstunni
verður leikurinn sýndur síðdeg-
is á sunnudögum, en sá sýnþig-
artími virðist mjög vinsæll -'hjá
leikhúsgestum. Því að þetta er
leikrit allra í fjölsltyldunni. —
húsdagurinn í yfir 50 löndum
og verða Ieiksýningar hér í Þjóð-
leikhúsinu og hjá Leikfélagi
Reykjavikur í tilefni dagsins, sem
nú verður í fyrsta sinn haldinn hér.
Það var ákveðið á síðasta al-
þjóðaþingi leikhúsa, sem háð var í
Vín, að þennan dag, 27. marz, þeg-
ar „Leikhús þjóðanna" í París byrj-
ar starf ár hvert, skuli dagsins
minnzt í öllum aðildarlöndum
með því að, sýna helzt þjóðleg leik-
rit, þótt ekki sé þess krafizt. Þjóð-
leikhúsið hefir sérstaka sýningu
á Skugga-Sveini þennan dag, en
hjá Leikfélagi Reykjavíkur verð-
ur sýning á leikritinu Kviksandi.
Alþjóðaleikhússambandið var
stofnað 1947, en Leikhús þjóð-
anna tók til starfa fyrir 5 árum,
hefur sýningar 27. marz og starfar
fram á sumar.
Bedford, þar. Skipstjóri þessi
mun hafa verið með togarann
um nokkurt árabil, því hann var
skipstjóri er togarinn var tek-
inn hér við land og dæmdur í
fyrrahaust. Skipstjóranum, sem
er 45 ára, voru gefnar upp sak-
ir í marzmánuði 1961. Það brot
hefur ekki áhrif til þyngingar
refsingu hans nú. Togaranafnið
Wyre Mariner hefur lengi verið
þekkt hér á landi. Þetta er ann-
ar brezki togarinn sem tekinn
er hér við land á þessu ári.
Hólastaður nú
rafmagaslaus
Hólastaður er rafmagnslaus sem
stendur vegna bilunar á vatnsafls-
stöðinni þar og veldur rafmagns-
leysið að sjálfsögðu miklum erfið-
leikum á staðnum. Vísir fékk eftir-
farandi upplýsingar í morgun hjá
Ævari Hjartarsyni kennara á Hól-
um, en blaðið átti við hann síma-
viðtal.
— Hér á Hólum er vatnsafls-
stöð, sagði Ævar, og við uppsetn-
ingu á henni fyrir mörgum árum
var henni breytt þannig, að meira
álag varð á túrbínu, öxli og leg-
um en gefið var upp af verksmiðj-
unni að vera mætti, og hefur því
alla tíð reynt of mikið á vélarnar,
— sigið æ meira á ógæfuhlið og
bilanir orðið æ tíðari, þar til öxull
bilaði og legur gersamlega s.l.
fimmtudag, og má fara nærri um
afleiðingarnar, þar sem dagleg
störf á staðnum byggjast að mestu
á eða eru háð rafmagni. Öll hús
á staðnum, íveru- og peningshús,
eru lýst með rafmagni. í fjósi
ganga mjaltavélar fyrir rafmagni,
á verkstæði vélar, og liggur
kennsla þar niðri o.s.frv. Og sein-
ast en ekki sízt: íveruhúsin eru
hituð upp með rafmagni.
Fólk fiytur í skólann.
Fjögur íveruhús eru á staðnum
og er fólk nú að flytja úr þeim í
skólahúsið. Eins og er þá er allt
ljóslaust, og íveruhúsin köld, en
skólahúsið má hita upp með göml-
um kolakyntum katli.
Viðgerð.
— Það tekur að minnsta kosti
10 daga að koma vatnsaflsstöð-
inni f lag, ef til vill lengur, og er
óvíst eins 'og stendur hvenær stað-
urinn fær rafmagn.
Skólinn.
Vísir spurði Ævar einnig um
skólann.
— Kennslu verður haldið áfram
Framhald á bls. 5.
Mjög góður
báta við Flóann
Fréttaritari Vísis á Akranesi
símaði í morgun, að undanfama
daga hafi verið hið ákjósanleg-
ásta veður á miðunum, og Akra
nesflotinn yfirleitt með sæmi-
Iegan afla. Hæsti bátur komst
upp í 33 tonn, var það Höfrung-
ur, en algeng er 9 — 17 tonn.
Nú eru aðeins sárafáir bát-
anna sem enn eru með línu, all-
ir fara á netin. Enn gætir in-
flúenzunnar allverulega í röð-
um sjómanna, þó ekki séu eins
mikil brögð að henni og að und-
anförnu.
Hafnarfjörður.
Fréttaritari blaðsins í Hafnar-
firði sagði, að 3 síðustu daga
hefðu bátarnir þar verið með
prýðisafla daglega og hefði einn
þeirra, Fagriklettur, komið með
um 40 tonna afla í fyrradag.
Þessa 3 daga hafa borizt á land
í Hafnarfirði alls um 450 tonn,
þar af var aflinn í gær 165 tonn.
Guðbjörn hafði verið með 23
tonn rúm, Vonarstjarnan 16 og
Akraborg, Héðinn og Auðunn
með 11 tonn hver.
sss
Rúmlega 30
skrjóðar
í morgun stóðu inni í porti Vöku
við Síðumúla rúmlega 30 bílar, en
þeir höfðu verið fluttir þangað,
því allir eru komnir undir hamar-
inn hjá borgarfógeta, og átti upp-
þoðið að hefjast klukkan 1.30 í
dag.
Aðeins nokkrir bílanna höfðu
verið í gangfæru lagi og komizt
inn í portið hjálparlaust ,en hin-
um hafði orðið að drösla alla leið-
ina. Þetta voru alls konar bíla-
útgáfur, þrír vörubílar, sendiferða-
bílar, fólksbílar og yfirleitt ár-
gerðir 1942-1955. Starfsmenn Vöku
sögðu að horfur Væru á að þetta
yrði með stærri bílskrjóðauppboð-
Fjórir nú í haiéi á Akranesi
I MORGUN sátu fjórir nienn í
varðhaldi í hinu litla fangelsi á
Akranesi, allir i sambandi við
mjög umfangsmikla rannsókn á
allmörgum innbrotsþjófnuðum
sem framdir hafa verið þar í bæn-
um, sumir fyrir 1—2 árum. í
sumum tilfellum var um stórþjófn-
aði að ræða á peningum og varn-
ingi.
Ér mjög um þetta mál talað þar
í bænum af skiljanlegum ástæðum,
því grunur féll á marga menn. Nú
mun rannsóknin vera komin það
langt áleiðis, í höndum bæjarfó-
getafulltrúans Haraldar Jóhann-
essonar, að honum hefur tekizt
að finna mann þann sem mun
hafa verið að verki í öllum inn-
brotunum og hefur hann játað
yerknað sinn. Hinir hafa komið
meira og minna við sögu í afbrot-
um þessum.
■ Skrifstofa bæjarfógeta hefur
varizt allra frétta af rannsókn
þessari, en altalað er þó á Akra-
nesi, að senn muni þessi umfangs-
mikla rannsókn og niðurstöður
hennar verða birtar.