Tölvumál - 01.05.1987, Blaðsíða 12

Tölvumál - 01.05.1987, Blaðsíða 12
r KYNNING A TÖLVUNÁMI 1 tengslum við ráðstefnu um TÖLVUNÁM OG TÖLVUMENNT- UN, sem Skýrslutæknifélagið og Verzlunarskólinn gangast fyrir 1. júní n.k. og auglýst er hér á næstu siðu hefur stjórn Skýrslutæknifélagsins ákveðið að efna til kynningar á tölvunámi. Kynningin er haldin í kjölfar ráðstefnunnar í forsal (á marmara) Verzlunarskólans, kl. 16.00 til 18.00. Fyrirkomulag hennar er með svipuðu sniði og á þeirri er Skýrslutæknifélagið stóð fyrir á sama stað fyrir einu ári. Þá var það í fyrsta sinn er slik kynning var haldin. Ekki var annað að sjá en að þetta væri kærkomið tækifæri fyrir marga, þvi stöðugur straumur gesta var á kynninguna allan daginn. Alls komu um 600 manns á þá kynningu. öllum þeim, sem hafa einhvers konar tölvunám á sinni dagskrá hefur verið boðin þátttaka. Kynn- ingin er öllum opin og verður auglýst i dagblöðum. -kþ. 12

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.