Vísir - 17.05.1962, Síða 8

Vísir - 17.05.1962, Síða 8
8 Útgefandi Blaðaútgáfan VlSIR Ritstjórar: Hersteinr, Pálsson Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði. í lausasölu 3 kr. eint. - Simi 1166C (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. --------------------------------------------------------T_______________t Lokaðir sálargluggar Þeir eru seinheppnir framsóknarmenn þegar þeir ætla að fara að skrifa um hagsmuni Reykjavíkur- borgar. Það er reyndar engin furða. Þeir hafa aldrei látið sig hag og heill borgarinnar neinu skipta, heldur jafnan barizt á móti því að höíuðborgin nyti jafnréttis við landsbyggðina. Síðasta dæmi eru skrif Krisíjáns Benediktssonar kennara annars manns á Framsóknarlistanum. Hann fjargviðrast óskaplega út af því I Tímanum að reyk- vísk börn hafi engan annan stað til þess að leika sér á en götuna. Varla getur þessi Kristján hafa búið lengi í höfuðborginni úr því hann talar svona. Kristján mun starfa sem kennari í einum hinna glæsilegu fram- haldsskóla sem reistir hafa verið undir stjórn Sjálf- stæðismanna, Hagaskólanum. Ef hann lítur út um gluggann fer ekki hjá því að hann komi auga á tvö leiksvæði, þar sem reykvísk börn eru að leik undir gæzlu sérmenntaðra kvenna. Þrjár skýringar eru því einar til á þessari fáfræði framsóknarframbjóðandans. Kannski er hann svona óskaplega nærsýnn að hann sér ekki leikvellina. Eða ef til vill er hann svo Ijósfælinn að hann lítur aldrei út um gluggann. Eða þá það :.ð heiðarleiki manns- ins er ekki meiri en svo að kýs að þegja um að á síð- asta kjörtímabili voru tekin 3 ný barnaheimili í not- kun í bænum og eru þau nú 11 í bænum, en alls 50 leiksvæði. Framsóknarframbjóðandinn ætti að kynna sér mál borgarinnar betur áður en hann ritar næstu grein. Refskák framsóknar Ekkert sýnir betur hið rótfasta samband komm- únista og framsóknarmanna en afstaða Framsóknar til kauptaxtaauglýsingar verklýðsfélaganna á Norður- landi. Á Akureyri báru fulltrúar stjórnarflokkanna í bæjarstjórn fram tillögu um það í fyrradag að bærinn mótmælti hinum nýja taxta og teldi sig ekki skuld- bundinn af honum. Hvað skeði? Gegn tillögunni greiddu atkvæði kommúnistar og framsóknarmenn. Það er augljóst hvað hér er á seyði. Síðasta sumar voru það fram- sóknarmenn í kaupfélaginu á Akureyri, sem gengu til samninga í verkfallinu um stórhækkað kaup. Með því hleyptu þeir af stað flóðöldu verðbólgunnar og afleiðingin var ný gengislækkun. Þar var samspil kommúnista og framsóknar vandlega undirbúið. Nú er greinilega sami leikurinn að gerast. Aftur leita félagamir Einar Olgeirsson og Eysteinn fulltingis framsóknarmanna á Akureyri og Húsavík til þess að sprengja upp kaupgjald og skapa ringulreið í þjóð- félaginu. Takmarkið er nú það sama og í fyrrasumar: að reyna að gera ríkisstjóminni hverja þá skráveifu sem unnt er og lokatakmarkið er að fella hana, svo samstjórn Einars >g Æysteins seti tekið við völdum. VISIR Fimmtudagur 17. maí 1962. heilbrigðismálum hefur Reykjavík jafnan haft alla forystu hér á landi. Næg- ir að benda á að Reykjavík- urkonur byggðu Landsspítal- ann og hafa nú nýlega kom- ið upp þar barnadeild. Sjúkra hús Hvítabandsins var einn- ig byggt og rekið af reyk- vískum kvennasamtökum, unz bærinn tók við rekstri þess fyrir allmörgum árum og rekur það enn. Einnig á sviði heilsuvemd- ar, vann „Lfkn“, samtök kvenna, merkilegt brautryðj- endstarf, sem aldrei verður fullþakkað eða metið. Eftir því sem umrædd störf þró- uðust og urðu umfangsmeiri í ört vaxandi bæ, tóku bæjar- yfirvöldin þau að sér og juku þau og breyttu. Þannig þró- uðust á farsælan hátt, þessi störf hugsjónamanna og á- hugamanna á sviði heilbrigðis mála, unz upp hafa sprottið jafn myndarlegar, umsvifa- miklar og fjölbreyttar stofn- anir og Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Um þá stofnun hafa erlend- ir sérfræðingar, einmitt á þessu sviði, farið hinum lof- samlegustu orðum og lýst undrun sinni á því að finna slíka stofnun hér. í þessu sama húsi eru skrifstofur borgarlæknis, sem segja má að haldi fingri sínum á slag- æð heilsuverndar í borginni. Þar er eftirlit með matvæl- um, vatni og hollustu á vinnu stöðum. í stuttu máli, eftir- lit með heilbrigði borgaranna, og starfa þar 7 manns, lækn- ar og aðstoðarmenn. gkoðun skólabarna er einn- ig undir stjórn heilsuvernd arstöðvarinnar og margþætt heilsuvernd unnin í skólum. Hef ég ekki heyrt jafnvel heit ustu ofstækismenn í hópi and stæðinga Sjálfstæðisflokks- ins, halda öðru fram en að þau störf væru vel unnin og skipulögð. Tannlækningar í skólum hafa að undanförnu verið bundnar við tannskoðanir á skólabörnum en viðgerðir far ið fram á stofum tannlækna í bænum. Þær verða teknar að öllu leyti inn í skólana aftur, jafnskjótt og tannlæknar fást til þessara starfa aftur, en skortur á tannlæknum veldur núverandi ástandi. Hefur nú verið samþykkt tillaga Sjálfstæðismanna í borgarstjórn um að styrkja unga tannlækna til náms, gegn störfum við skólatann- lækningar að námi loknu. Er þetta það raunhæfasta sem gert hefur verið, þessu máli til lausnar, en kommúnistar greiddu atkvæði gegn þessari ' -’^gu. Hið nýja Fæðingarheimili Reykjavíkur hefur nú starfað í nærri tvö ár og fæðzt þar um 900 börn árlega. Ýmsar nýjungar hafa verið teknar upp þar og reynzt vel. Vin- sældir þessarar stofnunar, sem hefur stór bætt ástandið í þessum málum, eru vafa- laust ekki sízt því að þakka að þar starfar einvalalið. gorgarstjórn er búin að samþykkja að Borgar- sjúkrahúsið skuli taka til starfa 1964—1965. Margir urðu hissa, fyrir nokkrum árum, er byrjað var á tveimur stórum sjúkrabyggingum hér í bænum, á sama tíma, Borg- arspítalanum og viðbót Lands spítalans. Báðar þessar bygg- ingar gengu þó hægt vegna skorts á fjármagni og fjár- festingarleyfum. Var ekki skynsamlegra að Dyrja á öðru og ljúka því sem fyrst, og hefja síðan fram- Úlfar Þórðarson læknir. Hann skipar 5. sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins. kvæmdir við það síðara? Vissulega, en þeir, sem hefur gefizt tækifæri til að skyggn- ast bak við tjöldin í þessu máli, vita að borgarstjórn vildi fara þessa samningaleið. Afturhaldsklíka Framsóknar í þáverandi ríkisstjórn, með sín vanalegu þröngsýnu sjón- armið, setti fótinn fyrir þessa möguleika og því er svo kom- ið sem raun ber vitni. En Borgarsjúkrahúsið skal byrja sitt starf á tilsettum tíma og það er sá hlutur, á sviði heil- brigðismála, sem mesta á- herzlu ber að leggja á. Á örðum sviðum heilsu- verndar og heilbrigðismála mun verða unnið eftir því sem sérfróðir menn telja rétt og undir forystu stjórnar heil suverndarstöðvarinnar, en þar er fremstur dr. Sig- urður Sigurðsson og er óþarft að hafa þar um fleiri orð. Heyrzt hefur að geðsjúkl- Framh, á 10. síðu

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.