Vísir - 01.06.1962, Síða 1
VISIR
Adolf Ekhman
ai lífí í
52. árg. — Föstudagur 1. júní 1962. — 123. tbl.
Líkið brennt og öskunni dreift á haf út
Adolf Eichmann. Myndin tekin við réttarhöldin.
Teknir á skrúð-
1 morgun hófst málflutningur í Olíumálinu svokallaða. Var dómþing sett í skrifstofu saka-
dómara við Fríkirkjuveg af hinum skipuðu rannsóknardómurum. Tók ljósmyndari Vísis þá
þessar myndir. — Á efri myndinni sést Ragnar Jónsson sækjandi málsins flytja ræðu, en á
bak við rannsóknardómaramir Guðmundur Ingvi Sigurðsson og Gunnar Helgason. — Á neðri
myndinni sjást verjendur málsins þeir Sveinbjöm Jónsson og Guðmundur Ásmundsson,
sem eru verjendur stjómar Olíufélagsins og Benedikt Sigurjónss. verjandi Hauks Hvannbergs.
göngu ímiðbænum
í gær stöðvuðu lögreglumenn ,
einskonar „skrúðgöngu“ þýzkra |
sjómanna í Miðbænum í Reykjavík
og fluttu sjómennina út. í skip.
Þetta atvik skeði skömmu eftir \
hádegið í gær. Þá hafði um 20
manna hópur úr þýzka flutninga-
skipinu m.s. Hilde Horn, sem lá í
Reykjavíkurhöfn hafið göngu um
Miðbæinn með undarlegum hætti
og talsverðri háreysti. Að því er
lögreglan tjáði Vísi létu þeir ýmis-
konar skrípalátum, klæddu sig
sumir hverjir í ankannalega bún-
inga, lituðu sig í andliti, báru prik
með tómum bjór- og vínfiöskum,
svo og bjúgum sem sem þeir
hengdu 4 prkin, sL'0j síðan saman
potthlemmum og spiluðu á munn-
hörpu með kokkinn í fararbroddi.
Sagði varðstjóri lögreglunnar að
hávaði þeirra hafi gengið svo úr
hófi, að ekki hafi verið annað fært
en stöðva þessi skrípalæti, enda
hafi a.m.k. sumir sjómannanna
verið talsvert undir áfengis áhrif-
um.
Vísir hafði í tilefni af þessu
einnig tal af skipstjóranum á m.s.
Hilde Horn, en hann heitir Klaus
H. Glitza og er frá Hamborg. Hann
sagði að hér hafi átt sér stað
leiðinlegur misskilningur, sem sjó-
mönnunum hafi sjálfum leiðst, því
Framh. á 5. síðu.
Siesfamaiur
í gær tók lögreglan ölvaðan
hestamann, sem var á reið eftir
götum ReykjavJcur og þótti hátta
lag hans með þeim hætti að ekki
væri hægt að láta hjá líða að
skerast í leikinni og jafnframt
taka af honum hestana.
Lögregian tjáði Vísi að það
væri talsverð brögð að því að
menn væru ölvaðir á hestbaki.
Er það þó jafnan látið afskipta-
laust á meðan mennirnir fara
sómasamlega með skepurnar og
Lufla ekki umferð, eða eru tald-
ir hættulegir í umferðinni. í gær
keyrði þetta úr hófi og var mað-
urinn kæri....- co sektaður, en
hestarnir teknir af honum.
Þá voru ,g þrír bifreiðastjórar
teknir fyrir ölvun við akstur um
helgina.
Flotadeild kemur
Fjórða bandaríska flotadeildin
undir stjóm P. D. Buie flotafor-
ingja er væntanleg til Reykjavík-
ur í byrjun næstu viku. 1 henni er
hið mikla flugvélarskip WASP og
allmörg önnur herskip, flest tund-
urspillar.
Á skipunum eru alls rúmlega
4500 sjóðliðar, þar af 384 sjóliðs-
foringjar. — Buie flotaforingi mun
heimsækja utanríkisráðherra, borg
arstjóra, lögreglustjóra og yfir-
mann landhelgisgæzlunnar meðan
flotadeildin dvelst hér, og koma í
skrifstofu forseta íslands og skrá
nafn sitt í gestabók embættisins.
Utanríkisráðuneytið býður hópi
sjóliða og foringja í ferð til Þing-
valla og Hveragerðis á mánudag
og fleiri ferðir verða farnar í kynn
ingarskyni. íþróttafélög keppa við
íslenzk íþróttafélög og hljómsveit
flotadeildarinnar leikur á Austur-
velli ld. 17,30 á mánudag, við
Hrafnistu kl. 17,30 á þriðjudag.
Landvistarleyfi sjóliðanna verð-
ur takmarkað við 3-4 tíma I senn
auk þeirra, sem fara í skipulagðar
Iandkynningarferðir eða taka þátt
í íþróttakeppnum. Frjálst landvist-
arleyfi verður ekki leyft eftir kl.
18, en skipulagðir hópar, sem fara
til íþróttakeppni og í landkynning-
arferðir undir stjórn og á ábyrgð
foringja munu fara um borð i skip-
in að leikjunum og ferðunum lokn
um.
Flotadeildin verður hér 4., 5. og
6. júní.
Líflátsdóminum yfir nazistaforsprakkanum Adolf
Eichmann hefur verið fullnægt. Var þetta tilkynnt frá
Tel Aviv í morgun. Var Eichmann hengdur, lík hans
brennt og öskunni dreift á hafi úti af ísraelskum lög-
reglubáti.
Náðun synjað.
Eichmann var tilkynnt í fang-
elsinu fyrir utan Tel Aviv, þar
sem aftakan fór fram, nokkrum
klukkustundum fyrir hana, að
forseti Israels hefði synjað náðun-
arbeiðni hans. Engin svipbreyting
var sjáanieg á honum, er honum
var tjáð þetta. Trúboði, er var hjá
honum hinztu stundirnar, segir
hann hafa verið harðan og
beizkan til hinztu stundar og þess
ekki orðið vart, að hann iðraðist
gerða sinna. Áður en snörunni var
brugðið um háls Eichmann setti
hann sig í hermannsstellingar og
hrópaði: Lifi Þýzkaland, lifi Aust-
urríki, Iifi Argentina.
Olíumálið fyrir dómi
í fyrri fréttum hafði verið sagt,
að hann hefði lýst yfir sakleysi
sínu og að hr.nn tryði á guð.
Þess er getið, að sami háttur
var hafður á nú, og er fullnægt
var líflátsdóminum yfir stríðs-
glæpamönnum, sem dæmdir voru
í NUrnberg, þ. e. að öskunni var
dreift á sjó úti.
Von ættingja brást.
Ekki liggja enn fyrir um-
sagnlr blaða um fullnægingu
líflátsdómsins eða umsögn ást-
vina hans, en fullyrða má, að
fréttin hafi komið sem reiðar-
slag yfir þá, þar sem þeir hafi
haldið í vonina um náðun, en í
fréttum hafa yfirleitt verið
taldar líkur fyrir náðun, ekki
nðeins í seinni tíð, heldur alla
tíð frá þvx dómurinn var felld-
ur í desember síðastliðnum, m.
a. vegna þess, að fangi hefur
aldrei verið tekinn af lífi í
Israel, og Eichmann er hinn
Framh. á bls. 5