Vísir - 01.06.1962, Side 4
'AV.W.V.mVAV.VAV,
4
Föstudagur 1. júní 1962.
VISIR
Um verkefni Æskulýðsráðs Reykjavíkur
Æskulýðsráð Reykjavíkur
hefur á þessu ári starfað í sjö
ár. Upphafsmaður starfsemi
þessarar var Gunnar Thor-
oddsen, þáverandi borgar-
stjóri, sem árið 1955 skipaði
nefnd „til að beita sér fyrir
umbótum í félags- og skemmt
analífi æskufólks í bænum“.
Nefndin hlaut síðar nafnið
Æskulýðsráð Reykjavíkur og
starfar enn með sama fólki
og í upphafi. Starfsemi ráðs
ins hefur farið stöðugt vax-
andi og nú orðið mjög fjöl-
breytt. Er hér um að ræða
mjög merkilegt starf, sem er
algert brautryðjendastarf á
landi hér. Hefur almenningur
tekið þessu mjög vel og verið
afar þakklátur fyrir það sem
áunnizt hefur. Ráðið hefur
alla tið notið góðs stuðnings
borgarstjómar og báðir borg-
arstjóramir, Gunnar Thor-
oddsen og Geir Hallgrímsson,
haft mikinn áhuga fyrir þess-
ari starfsemi og stutt hana
dyggilega.
í ráðinu hafa setið frá upp-
hafi þessir menn: Helgi H. Eiríks
son, verkfræðingur, formaður,
Bent Bendtsen, forstjóri, frú
Elsa Guðjónsson, séra Jón Auð-
uns, Ragnar Jónsson, forstjóri,
dr. Símon Jóhann Ágústsson og
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri,
fulltrúi í. B. R.. Sá síðastnefndi
hefur ekki sótt fundi og hefur
varamaður hans, Sigurgeir Guð-
mannsson, framkvæmdastjóri,
lengst af átt sæti í ráðinu.
Hlutverk æskulýðsráðs, er að
koma á fót tómstunda- og félags
iðju meðal æskufólks. Er þar
átt við 12 ára og eldri, þó að
fyrir komi að yngra fólk sé með.
Að þessu vinnur ráðið fyrst og
fremst með þvi að koma á fót
tómstundaheimilum fyrir æsku-
fólk. Er reynt að hafa sem nán-
asta samvinnu um þetta við
ýmis æskulýðsfélög, þar sem
ráðið vill ekki keppa við þau,
heldur starfa með þeim.
Föndur í tómstundum.
Starfsemi ráðsins skiptist I
fjóra meginþætti. Er þar fyrst
að nefna ýmiskonar tómstunda-
föndur. Fer það gjarnan fram
f 15—20 manna hópum, sem
eru hér og þar um borgina. Eru
í sumum greinum föndurs marg-
ir slfkir flokkar. Otvegar ráðið
þeim efni til starfsins, auk þess
sem það sér fyrir húsnæði og
leiðbeinanda.
Unglingum gefst kostur á að
búa til ýmis konar hluti úr
basti, tágum og hornum, svo
sem borðmottur og lampa-
skerma. Or beini horni og teak
eru búnir til alls kyns skraut-
munir. Einnig er kennd ýmis
konar leðurvinna, svo sem að
búa til leðurveski, og skreyta
þau myndum.
Trésmíði er kennd og geta
nemendur þar smíðað alls kyns
hluti, sem þeir helzt kæra sig
um. Auk þess er kennt bók-
band á bókum og blöðum.
Flokkar starfa að smíði flug
módela og smíða svifflugur
Þar er einnig veitt fræðsla um
flug þeirra. Kennd er Ijósmynd
un og framköllun og hvers kon-
ir meðferð myndavéla. Þá er
ag kennd málm- og rafmagns-
vinna og smíðuð einföld raf-
magnstæki. Lögð er áherzla á
meðferð tækja og efnis og er
petta hinn gagnlegasti undir-
búningur fyrir þá, sem síðar
fara út í einhvers k_ íar raf-
magnsstörf.
1 frímerkjasöfnun er og veitt
tilsögn. Þar er kennd uppsetn-
ing, og veitt tilsögn í frímerkja-
skiptum og fleiru.
Skemmtiklúbbar.
Annar meginþáttur starfsem-
innar eru ýmis konar klúbbar,
sem starfa á vegum ráðsins,
en eru þó flestir undir sjálf-
stæðri stjórn, með leiðsögn
ráðsins. Hjartaklúbburinn, Tíg-
ulklúbburinn og Stjörnuklúbb-
urinn hafa á stefnuskrá sinni
skemmti- og fræðslustarf. Gang
ast þeir meðal annars fyrir dans
skemmtunum, auk fræðslustarf-
semi, og er lögð sérstök áherzla
á vínlausar skemmtanir.
Fræðafélagið Fróði gengst
fyrir málfundum og æfingum i
ræðumennsku. Skákklúbbur er
einnig starfandi og veitir til-
sögn í skák, auk þess sem
hann gengst fyrir skákmótum.
Vélhjólaklúbburinn Elding kenn
ir umferðarreglur og annað,
sem akstri viðvíkur.
Þá er einnig starfandi kvik-
myndaklúbbur, sem aðallega er
ætlaður börnum, og sýnir bæði
fræðslu og skemmtimyndir.
í Tjarnarbæ er síðan hug-
myndin að koma á fót klúbb-
um í hinum ýmsu listum, svo
sem leiklist, bókmenntum, kvik-
myndum og tónlist.
Margþætt námskeið.
Þriðji þáttur starfseminnar
ins, Sjómannasambandsins, Fé-
lags íslehzkra botnvörpuskipa-
eigenda og Vinnuskóla Reykja-
víkur.
Hefur nefndin gengizt fyrir
námskeiðum, sem kenna alla al-
genga sjóvinnu, kennt er á sigl-
ingatæki, hjálp í viðlögum o. fl.
Reynir nefndin að aðstoða
drengina við að ráða sig á skip
eftir námskeiðið. Einnig hefur
nefndin rekið skólabát. Fara
nokkrir hópar á hverju sumri
og er hver hópur I þrjár vik-
ur úti.
Þá gengst Æskulýðsráð fyrir
námskeiðum á leikvöllum fyrir
börn. Hafa þau verið mjög vin-
sæl.
Einnig hefur ráðið gengizt
fyrir ýmsum sýningum, svo
sem „Með eigin höndum“ 1958,
sem sýndi ýmsa hluti gerða af
unglingunum og sýning á
Reykjavíkursýningunni.
Sumarstarf.
Fjórði liðurinn er skipulag
sumarstarfs. Ráðið hefur veitt
sumarstarfi Þjóðkirkjunnar
nokkurn styrk. Ferðalög eru
skipulögð fyrir unglinga, en auk
þess hefur ráðið tekið þátt í
ýmsum rannsóknarferðum um
óbyggðir. Þá hefur það gengizt
fyrir heimsóknum útlendinga
hingað til lands. Einnig hafa
hópar héðan farið til útlanda á
vegum ráðsins.
Aukið húsnæði.
Húsnæðismál ráðsins hafa
mjög batnað undanfarið. Höf-
uðstöðvar hafa lengst af verið
á Lindargötu 50. Er þar skrif-
stofa ráðsins, auk þess sem þar
er tómstundaheimili. Sækja
Bast og tágavinna.
stíg 9. Hefur ráðið húsnæði þar
á leigu tvo daga í viku og hef-
ur það verið mjög vel sótt. —
Koma þar 200—300 unglingar
á viku.
í Golfskálanum hafa starfað
Klúbbar, svo sem Vélhjólaklúbb
urinn Elding, sem þar hefur að-
Fjölbreytt starfsemi
eru ýmis konar námskeið. Sér-
stök sjóvinnunefnd hefur starf-
að á vegum ráðsins. Eru í henni
meðlimir nokkurra samtaka,
sem við slík mál fást: Slysa-
varnarfélagsins, L.I.O., Far-
manna- og fiskimannasambands
heimili þetta milli 4 og 5 hundr-
uð unglinga á viku, svo að þar
er fullsetið allan seinni part
dags til 10 á kvöldin, alla daga
vikunnar.
í vetur var stofnsett tóm-
stundaheimili á Bræðraborgar-
setur sitt og starfar undir
stjórn Sigurðar Ágústssonar,
varðstjóra í lögreglunni, og Jóns
Pálssonar.
í Tjarnarbæ skapast aðstaða
til tómstundaiðkana á sviði alls
kyns lista og er meðal annars
5
i
Frá starfsemi Skákklúbbsins.
í ráði að stofna þar leiklistar-
klúbb. Á sumrin hefur einnig
verið opið tómstundaheimili í
Skátaheimilinu, í samvinnu við
Skátahreyfinguna.
j haust fær svo ráðið til af-
nota Héðinshöfða, fyrir aðal-
stöðvar sínar og verður það
mjög mikilvæg viðbót við hús-
næði ráðsins.
Auk þessa hefur ráðið fengið
inni í ýmsum skólum. Þá hefur
það fengið inni í féiagsheimil-
um ýmsra félaga og segir Bragi
Friðriksson að mjög æskilegt
væri að meir yrði um slíkt.
Einnig hafa Áhaldahús borgar-
innar og Viðgerðarverkstæði út-
varpsins veitt aðgang að verk-
stæðum sínum.
Það sem Æskulýðsráð leggur
megin áherzlu á, er að þjálfa
ungt fólk til starfsemi með ung-
lingum. Nóg er af fólki sem hef
ar hæfileika til þess, en lítið
um fólk, sem hefur kunnáttu og
reynslu.
Óleyst vandamál.
Eitt þeirra vandamála, sem
óleyst eru enn, er að ná til
þeirrar æsku, sem ekki hefur
áhuga á neinum sérstökum við-
fangsefnum, og eyðir því frí-
stundum sínum á miður heppi-
legum stöðum.
Telur síra Bragi það ráð helzt
að fá til afnota gott húsnæði í
Miðbænum, þar sem þessir ung-
lingar geta komið og fengið að
vera alveg frjáls. Þetta yrði
peirra eigið hús og engin myndi
neyða þá til þátttöku i neinu.
Veitingar yrðu á boðstólum og
vmis tæki til Ieikja, svo sem
oorðtennis og annað slíkt. —
Mætti þannig koma unglingum
þessum i heilbrigðara umhverfi
jg oft mögulegt að vekja á-
nuga þeirra á ýmsum viðfangs-
efnum.
,iV.%%%Vi%%%%Vi%%%V«%V«Vi,i,«,ili%ViVi%%%Vi%,%,iV.Vi,iV«*i%,i%%%*i,«,«%Vi«»,«Vi,i,i%V*,i,*,i%Vi,»'t%%ViV«».,«%*iV.%%,i*«%%*«%%,(%%%,,»i,I%%%*i,iV«,.%,.\Viv'
,• .V.