Vísir - 01.06.1962, Síða 5

Vísir - 01.06.1962, Síða 5
Föstudagur 1. júní 1962. VISIR Jón Múli í Ameríkuför Jón Múli Árnason útvarps-1 þulur er nú staddur í Washing-1 ton D. C., Bandarikjunum, en, hann lagði af stað áleiðis þang- að s.l. sunnudag til þátttöku í1 jazzmóti. Jón Múli Árnason eV mikill, jazzúnnandi sem kunnugt er' og hefur með höndum sérstak-' an jazzþátt í Ríkisútvarpinu. | Fer hann á jazzhátíðina, sem | er fyrsta Alþjóða jazzhátíðin, t sem haldin er í Bandaríkjunum, sem fulltrúi þess og gestur há-1 tíðarinnar, og naut fyrir- greiðslu Upplýsingaþjónustunn- ar til un'irbúnings förinni. Á þessari jazzhátíð koma I fram jazzleikarar "rá Banda- ( ríkjunum og mörgum öðrum ( löndum, t. d. Duke Ellington, Dave Brubeck og Thelonius \ Momk, sem allir eru bandarísk ( ir. Alls eru á hátíðinni um 60 / einleikarar frá ýmsum þjóðum og fjölda margar hljómsveitir' o. s. frv. Hátíðin stendur 4 ( daga. Eichmann — Framh. af 1. síðu. fyrsti, sem þar er tekinn af lífi frá st f .un Israels fyrir 14 ár- um. Adolf Eichmann var sakaður um meginábyrgð á því að 6 mill- jónir Gyðinga voru teknir af lífi á stríðstímanum á valdatíma naz- ista í Þýzkaiandi. Hann hvarf ger- samlé'ga 1945 og spurðist ekkert til hans f 15 ár, en svo fóru að koma á kreik fréttir um, að hann hefði sézt í ýmsum Iöndum, og vitað var, að Gyðingar höfðu úti allar klær til þess að leita hans og hneppa í fangelsi. Fundu þeir hann loks í Argentínu og tókst að koma honum til Israels, og vakti fréttin um mannránið og flutning- inn heimsathygli og deilur risu upp út af handtökunni milli ríkis- stjórna Argentínu og Israels. Hjól í vélinni. Réttarhöldin stóðu 4 mánuði. Eichmann hélt því fram jafnan, að hann væri sa’-laus, hann hefði að eins verið „hjól í vélinni" — hann hefði framkvæmt fyrirskipanir, sem gefnar voru af mönnum sér æðri og har.n verið nauðbeygður til að hlýða. Þess er minnzt, að kona hans fékk Ieyfi til þess að heimsækja hann. Var höfð leynd yfir ferð hennar til Israels og burtför, en leyft að segja allítarlega frá heim sókn hennar í fangelsið. Adolf Eichmann var 56 ára að aldri. Dómur sögunnar. Reuter-Í ttastofan hefur snúið sér til Klaus Eichmanns, elzta son- ar hans, og. spurt hann um álit hans á dóminum. Kvað Klaus svo að orði: Sagan mun fella úrskurð yfir þeim glæp, sem israelska rikið framdi á föður mínum og allt mannkyn um það hvað er rétt- láit og hvað ekki. Uppþot í Montreal. Um 75 manns söfnuðust saman fyrir utan ' arpsstöðina í Montre al í morgun til þess að mótmæla þvj, að 'ttastjó útvarpsins Herb Manr" íg hafði látið í ljós í .éttaútsc" ' _u 'ivort skynsam- legt efði v'—ið x '"'lnæg;. líf- látsdóminum. Lögreglan kom og reifði hópnum. Sumir -nótmæl- o-'Ia báru spjöld, sem á var letr- st Eichmann, þar næst I i.ig. Föstudagsgreinin - Framh. af bls. 9 sagði sá sem spurt hafði. — Ég veit ekki, svaraði Yevtushenko. Það dylst engum sem les þessi ummæli að hér kemur fram andstæða við' lífsskoðanir sósíalismans. Yevtushenko sagði ennfrem- ur þegar hann var í Englandi. — Ég yrki ekki um sannleik- ann, heldur um hamingjuna. Það einkenni hinnar nýju stefnu hve hún er tilfinninga- rík setur hana í algera and- stöðu við sósíalrealisma Stal- instímabilsins. flin ungu rússnesku skáld við urk.nna það fyllilega að þeir Ieita fyrirmynda í vest- rænum bókmenntum. Eftirlætis höfundar þeirra eru Rainer Maria Rilke, Erich Maria Re- marque og bandarísku höfund- arnir og skáldin Salinger, Kerouac og Hemingway. Það er því engin furða þó sumum hinna gömlu hirðskálda Stalins eins og Alexej Surkov for- manni rithöfundasambandsins rússneska þyki nóg komið og krefjist þess að I.omið verði á ströngu eftirliti með ungu skáldunum. TVTýja skáldskaparstefnan, sem ” þannig hefur fengið að vaxa upp í Rússlandi er mjög undarlegt fyrirbæri í sósíal- ísku þjóðfélagi. Ungu skáldin eru smituð af vestrænum hugs- unarhætti, scm samræmist illa sósíalísku þjóðfélagskerfi. I orði kveðnu egjast þau vera kommúnistar, en þeir eru þó áhugalausir um framgang sósí- alískar stefn og í einstaklings- hyggju sinni og þörf til gagn- rýni skapa þeir sósíalismanum hættu. ann hefur hvergi þol- að mótspyrnu eða gagnrýni. Það er hæt. við því að komm- úniskt ríki sem leyfir gagn- rýni sé á fallanda fæti, því að kommúnisminn virðist ekki standast raunina £ hugsjóna- baráttu manna. Til þess eru öfgar ha.is og gallar nú orðnir of augl' ‘sir að hann þoli frjálsa gagnrýni. Er því eðlilegt að menn fylgi með athygli þróun þessara mála, hvort þessi fyrsti vottur þjóðfélags, rýni á sósíal- ismanum í tvíræðum skáld- skaparlíkingum fær að vaxa upp í víðtæka þjóðfélagsádeilu, eða hvort valdhafarnir taka sig til og reyna að kyrkja þennan vott frjálsrar hugsunar í fæð- ingu. Þorsteinn Thorarensen. íþróttir — Framh. af 2. siðu. Eftir markið voru Valsmenn talsvert ágengir og Þorsteinn Sí- vertsen skaut t. d. í þverslá' úr þvögu innan vítateigs. Sami maður fékk gott fæ á 37. mín. eftir að Bergsfeinn hafði leikið nann uppi. Þorsteinn skaut svo 3 mín. síðar ágætu skoti i framhjá. Þannig laak leiknum rrreð þess- ur:. óvænta sigri Vals, sem var sem fyrr segir verðskuld„5ur. Framlína Vals gerði nargt lag- lega, en beztir f henni voru Berg- steinn, Þorsteinn og Steir ’rímur KR-1'“:ð va: eitt stórt nú' , ef frá eru aldir 3ar og Sveir.n K-lldó.r Kjartansson, sem var sá eini í framlínunni sem eitthvað lét að sér kveða. - jop. - Tveir af gjaldkerum Iðnaðarbankans með „kassann“ undir lög- regluvemd, Bergljót Ólafs og Einar Flygenring. Teknir — Framh. af 1. síðu. þeir hafi á engan hátt ætlað sér að koma ósæmilega fram eða mis- bjóða Reykvíkingum á nokkurn hátt. Tildrögin að þessum galsa sjómannanna voru þau, að þeir hefðu heima „bóndadag“ á upp- stigningardag og þá væri það -venja innan þýzku sjómannastétt- arinnar að gera sér glaðan dag og sleppa fram af sér beizlinu hvar sem þeir væru staddir í höfn. Á „konudaginn" væru menn undirok aðir undir alræðisstjórn kvenþjóð- arinnar, yrðu að sitja og standa að | vilja þeirra og mættu ekki einu sinni fá sér neðan í því. En upp- reisn fá þeir á bóndadaginn og það er venja að fara í göngur um hafnarborgir með áþekkum hætti og hér var gert í gær, og væri það yfirleitt ekki tekið illa upp. Þá sagði skipstjórinn að það hafi verið ákveðið að fara £ skemmti- leiðangur til að skoða hverasvæðið £ Krfsuvik £ gær, en við viðbrögð lögreglunnar hafi flestir sjómann- anna orðið miður sin og hætt við ferðina. M.s. Hilde Horn er kæliskip, 1000 Iestir að stærð, og sækir frýsta a'ld til Reykjavíkur og Akraness. að átti að fara f morgun til Akra- ess, en var væntanlegt aftur til Teykjavikur £ kvöld eða nótt og siglir héðan áleiðis til Þýzkalands í fyrramálið. Efni fundin til að draga úr Dönsk blöð skýra frá þvi, að þar i landi sé nú farið að nota efni sem virðast reynast vel til að draga úr krabbameini í lungum. Skýrðu læknar frá þessu efni á Iæknafundi sem nýlega var hald- inn í skurðlæknafélagi Danmerk- ur. Efni þessi kallast Endoxan og i Sendoxan óg hafa þau verið reynd í Danmörku í tvö ár. Læknamir sem skýrði frá þess- um nýjungum segja, að það sé sannprófað að efni þessi dragi úr vexti krabbameins og hjaðni mein in við noL. eirra. Þannig er víst að það frestar dauða. Hitt er Þjóíarnir frá Röðli fundnir í nótt handtók lögreglan tvo menn, játaði annar þeirra að hafa verið með í innbrotinu á veitinga húsið Röðul nú fyrir nokkrum dögum er miklu af áfengi og tó- baksvörum var stolið. í þessu innbroti var stolið milli 80 og 90 flöskum af áfengi, en 15 flöskur fundust I kassa ekki langt frá Röðli morgunin eftir. Auk þess var talsverðu magni stol ið af vindlum og vindlingum. I nótt tilkynnti maður nokkur lögreglunni að hann hafi orðið var tveggja manna, sem voru að reyna að selja vindlinga, og kvaðst hann hafa rökstuddan grun um að þarna væri um tóbaksvörur úr veitingahúsinu Röðli að ræða. Lögreglan fór eftir tilvísan manns þessa á staðinn og hand- tók báða mennina. Játaði annar við yfirheyrzlu £ nótt að vera á- samt öðrum manni valdur að inn- brotinu að Röðli. En sá sem með honum var í nótt var hjálparmaður við sölu hins stolna varnings, og að þvi leyti meðsekur, enda þótt hann hafi ekki játað á sig hlut- deild í innbrotsþjófnaðinum sjálf- um. Mál þetta er nú ífrekari rann- sókn hjá lögreglunni. ekki enn fullsannað hvort þessi efni geta til fulls sigrað meinið, en þó segja Iæknarnir að nokkur von sé til þess. Efnin eru m. a. notuð eftir uppskurði til þess að hindra að meinin taki sig upp f Iungna- pipum. Ennfremur upplýstu læknarnir að svo miklar framfarir hefðu orð ið í meðferð lungnakrabba, fleiri uppskurðir eru nú gerðir en áður og líkumar fyrir bata hafo auk- izt. Er nú talið að þrír af hverj- um fjórum sem ganga undir upp- skurð fái bata. Stafar þetta m. a. af því að yfirleitt eru slík mein ttkin fyrr til aðgerðar en áður tiðkaðist Góð sjóstangaveiði Sjóstangveiðimótið hófst í Vest- mannaeyjum í gær. Þátttakendur eru 42, og eru flestir þeirra að- komumenn. Um helmingur þátttak- enda eru útlendingar, flestir Banda ríkjamenn. Á mótinu eru notaðir sjö bátar, frá 12 til 30 tonn að stærð. Fóru þeir -' fyrstu veiðiferðina i gær kl. eitt og komu inn aftur kl. sex. Mestan fisk að þyngd veiddi í gær Halkór Snorrason, sem er for- maður Sjóstangaveiðifélags Reykja víkur, og veiddi 131,4 kíló. Mest- an fjölda fiska veiddi Birgir Jó- hannesson, 115 fiska talsins. Farið var út i morgun klukkan tíu og búizt við bátunum inn aft- ur um klukkan sex 1 dag. Mótið stendur í þrjá daga og lýkur því á morgun. í> í mesta rnbrautarslysi á Italíu á uppsf' 'igardag snemma biðu P menn bana en yfir 40 voru fluttir i sjúkrahús. Þungri vöru- ! flutningalest var ekið aftan á far- '’egalest er.i stóð kyrr með þeim aflc’ð'ngum, að afta'-ti vagn far- þegalestarinnar klofnaði að endi- löngu og voru þar flestir þeirra, sem biðu bana, þeirra meðal 8 börn. Slcólaslifin -- Framh. af 16. síðu. myndir kristindómsins um hóg- værð og mannkærleika. Vorið sem spáir fögru sumri. Séra Bjarni rifjaði það upp, að barnakennsla hófst í Bierings-húsi í Hafnarstræti 1862 og kvaðst hann hafa þekkt marga, sem hófu nám þar fyrsta árið, en þá voru þar þrjár bekkjardeildir og 83 nem endur. Sjálfur kvaðst séra Bjarni hafa gengið í skólann sem stóð þar sem lögreglustöðin er nú, en leik- fimihúsið var þar sem Pósthúsið er. Hann minntist sérstaklega skólastjórans, Mortens Hansens sem hafði allt það til að bera sem góðan skólastjóra má prýða. Ég horfi á vorið, sagði séra Bjarni, og leit yfir hinn mikla fjölda unglinga og bama á leik- vanginum. Það spáir fögru sumri landi og þjóð til heilla. Hér er fram tíð tslands framtíð Reykjavíkur. Að lokurn sagði séra Bjarni: - Kenn hinum unga þann veg sem hann á að ganga' og þégar hanr eldist mun hann ekki af honur víkja.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.