Vísir - 01.06.1962, Page 10
Föstudagur 1. júní 1962.
10
V'S'R
i * $3iW$??$3?/iJjg?í>'35§£gSfpí£Sy&Vv?:•$?$&?' '
1.1'"' i':; • V ■■' ■
Vinnustund í heimili Sjálfsbjargar á Akureyri.
Ræðir
Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, hcldur aðalfund sinn á fsa-
firði nú f vikunni. Tiðindamaður
frá Vísi hefir átt tal við Trausta
Sigurlaugsson, framkvæmdatjóra
sambandsins og bar þá aðalfund-
inn á góma og samstarf Sjálfs-
bjargar og Berklavarnar, sem kom-
ið er til sögunnar.
Tíðindamaðurinn spurði Trausta
um helztu mál fundarins, sem hald
inn verður á ísafirði dagana 31.
maí til 2. júní.
★ Styrktarsjóðurinn
— Meðal helztu máia, sagði
Trausti er að marka stefnuna varð
andi styrktarsjóðinn, en um hann
samþykkti Aiþingi frumvarp í vet-
ur sem kunnugt er. Með honum
fær sambandið fastan tekjustofn.
Leggja þarf drög að því hvernig
fénu verður skipt og er eftir að
setja reglugerð um sjóðinn. Verða
reglurnar vafalaust hliðstæðar
þeim, sem gilda fyrir styrktarsjóð
vangefinna. Fénu, sem í sjóðinn
safnast (sælgætisgjaldinu) skal
samkvæmt lögunum verja til bygg
ingar og rekstrar vinnustofnana
fyrir fatlað fólk. Sjóðurinn er í
vörzlu Félagsmálaráðuneytisins, og
rennur ekki beint til Sjálfsbjargar,
en hún hefur tillögurétt um ráð-
stöfun fjársins samkvæmt sérstakri
reglugerð. Eins og ég hef áður
tekið fram í viðtali við Visi, fagna
fatlaðir mjög þessari sjóðstofnun.
★ Samstarf um vinnustofnun
— Annars finnst mér alveg
sérstakt ánægjuefni, að samstarf er
hafið milli Sjálfsbjargar og Berkla-
varnar um stofnun vinnustofu á
ísafirði og hafa fest kaup á húsi
Eichmann biður
um nóðun
Adolf Eichmann hefur nú
sent náðunarbeiðni til for-
seta ísraels. Kemur þetta í
kjölfar dóms Hæstaréttar yfir
honum nýlega, en hann kvað
upp lauöadóm yfir Eichmann.
Það eina sem nú getur
bjargað lífi þessa gamla Gesta-
po foringia er náðun forsetans,
en talið er mjög ólíklegt, að
náðun verði veitt.
í því skyni. Annars hóf Sjálfsbjörg
rekstur vinnustofu þar fyrri hluta
árs 1960 og starfsemin gekk mjög
að óskum. Var svo áformað að
kaupa hús í samvinnu við Berkla-
vörn og jafnframt að stækka vinnu
stofuna og stefna að fjölbreyttari
framleiðslu.
★ Vinnustofa í Reykjavík
— Áformað hefur einnig ver-
ið að koma á fót vinnustofu í
Reykjavík og er nú hafinn undir-
búningur að því. í Reykjavíkur-
deildinni eru annars um 150 fatl-
aðir og margir styrktarfélagar. £
öllum deildum eru á sjöunda hundr
að fatlaðir og álíka margir styrkt-
arfélagar.
Vinnustofur víðar
og félagsheimili
Vinnustofur eru víðar og fé-
lagsheimili. Akureyrardeildin hefur
komið sér upp vinnu- og félags-
heimili (Bjarg — tók til starfa
1960) og Siglufjarðardeildin rekur
vinnustofu. Á Akureyri er reist við-
bótarbygging í sumar (vinnusalur).
★ Deildir nú 10
Félagsdeildir eru 10 á landinu
og mun þeim eiga eftir að fjölga.
Við höfum il dæmis fuilan hug á
að stofna deild á Austfjörðum,
þótt á þvl séu meiri erfiðleikar en
vfða annarsstaðar.
Skrifstofa Sjálfsbjargar er í
húsi SÍBS við Bræðraborgarstíg.
Formaður sambandsins er Theodór
Jónsson. — Fulltrúar frá öllum
deildunum munu sitja aðalfundinn,
sem mun marka tímamót í sögu
sambandsins.
Beriast Angoiamenn
innbyrðis í
Flokkadrættir eru svo miklir
meðal fióttamanna frá Angóla,
sem leitað hafa hælis í Kongó,
að hætta er talin á, að tvær
helztu fylkingar þeirra berjist
þá og þegar.
Miðstjórnin í Leopoldville
hefir talsverðar áhyggjur af
þessu, og ástæðan er sú, að for-
ingjar beggja aðalfylkinga
flóttamannanna hafa haldið því
fram opinberlega, að sótzt hafi
verið eftir lífi þeirra. Foringj-
ar þessir heita Mario de Andr-
ade, sem er foringi frelsisfylk-
ingar aiþýðu“, og Holden Ro-
berto, sem stjórnar „Þjóðfrelsis
fylkingunni". Hvorugur kvaðst
vita, hverjir mundu hafa staðið
að tilræðunum, en létu sér til
hugar koma, að portúgalskir
flugumenn kynnu að hafa kom-
izt til Kongó, og hafi þeir verið
þarna að verki, en hvor um sig
lét einnig í það skína, að vel
mætti vera, að keppinautarnir
hefðu verið að verki — og það
er þetta, sem stjórnin í Lopold-
ville er hrædd við.
Klofnmgur er svo mikill með
al flóttamanna frá Angóla, að
þeir hafa stofnað hvorki meira
né minna en 12 stjórnmála-
flokka í Kongó, og eru tveir
stærstir, þeir sem nefndir eru
hér að ofan. Hefir Kongóstjórn
gert margar tilraunir til að fá
Angólamenn til að leggja nið-
ur allar væringar, meðan þeir
njóta hælis í Kongó, en margir
sáttfundir hafa verið gersam-
lega árangurslausir. Það dregur
heldur ekki úr þeim ótta stjórn
arinnar, að um síðir kunni upp
úr að sjóða og blóðbað verði
úr, en vart er bætandi á þau
vandræði, sem Kongóstjórn á
við að stríða, þótt mjög sé á-
standið nú betra en fyrir að-
eins fáeinum mánuðum.
Sá er einn af helztu munun-
um á tveim stóru flokkunum,
sem getið er hér að ofan, að
Andrade og allir helztu foringj
ar hans og ráðgjafar eru kyn-
blendingar, svertingjar í aðra
ættina en portúgalskir í hina.
Andrade sjálfur var til dæmis
settur til mennta í Lissabon.
Hann hefur verið kallaður
kommúnisti, en neitar, að hann
sé það. Hinsvegar er það á allra
vitorði, að allir helztu foringjar
hans hafa hlotið menntun eða
einhverja þjálfun í Austur-
Evrópulöndunum og sumir jafn-
vel í Sovétríkjunum. Þarf þá
vart að fara í grafgötur um,
hvaða stefnu þeir muni aðhyll-
ast.
Foringi hins aðalflokksins,
Roberto, er hinsvegar hrein-
kynjaður svertingi, fæddur í
Angóla en uppalinn í Kongó.
Hann gerðist bókhaldari, er
hann hafði Iokið gagnfærða-
skóla. Helztu aðstoðarmenn
hans eru í líku menntunarstigi.
Þeir eru fjandsamlegir múlött-
um, en auk þess óttast þeir sam
runa við flokk Andrades, af þvi
að þeir eru hræddir um, að þeir
kunni að verða undir í sam-
skiptum við sér menntari
menn.
Áiaveiðar breiðast út
um S- og Vesturland
Álaveiðar eru nú að hefjast í
stórum stíl i nokkrum byggðarlög-
um, einkum austur í Lóni, í Horna
firði, Meðallandi og Landbroti.
Hætt við hruni efnahags-
kerfís A ustur-Þýzkalands
Walter Ulbricht, kommúnista-
leiðtogi Austur-Þýzkalands, hefur
snúið sér til vestur-þýzku stjómar-
innar í Bonn og beðið hana um
efnahagslega aðstoð, eftir að stjórn
arvöldin í Moskvu neituðu honum
um meiri slíka aðstoð en þau þeg-
ar hafa Iátið Austur-Þýzkalandi í
té. -
Hið hranalega svar, sem Ulbricht
fékk í Moskvu við málaleitun sinni
var, að sú efnahagsaðstoð sem
Austur-Þýzkaland hefði fengið frá
Sovétríkjunum á undangengum 16
mánuðum væri öll sú aðstoð sem
þeir gætu vænzt frá Sovétríkjun-
um, en hún mun nema sem svarar
til 356 milljóna steringspunda.
Óformlegar viðræður hafa þeg-
ar átt sér stað um málaleitan Ul-
brichts milli embættismanna í ut-
anríkisráðuneytinu í Bonn og efna-
hagsmálaráðuneytinu. Síðari fréttir
herma, að dr. A ’cnauer muni ræða
þetta mál við Dean Rusk utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, er hann
kemur '1 Bonn í næsta mánuði
Frá þessari málaleitan er skýrt
ýtarlega i blaðinu Sunday Tele-
graph í London, samkvæmt frá-
sögn fréttaritara þess í Bonn, og er
hér aðallega stuðzt við hana, en
þess er og að geta að í Daily Mail
segir, að vestrænir stjórnmálamenn
séu undrandi yfir beiðninni og geti
ekki skiiið hana á annan veg en
þann, að efnahagslegt hrun vofi
yfir Austur-Þýzkalandi.
Fréttaritari Sunday Telegraph
segir, að utanríkisráðuneytið í
Bonn hafi mælzt til þess að þess
yrði gætt mjög vandlega, að ekk-
ert yrði sagt um afstöðu Bonn-
stjórnar í þá átt, að efnahagsað-
stoð yrði veitt, fyrr en athuguð
hefðu verið 't hlýtar ýmis atriði
stjórnmálalegs eðlis.
Embættismenn í Bonn segja, að
Ulbricht hafi lagt fram hinar á-
þreifanlegustu sannanir sem hugs-
ast getur fyrir þörfinni á aðstoð,
því að hann
hijóti að vita, að hann geti ekki
fengið efnahagslega aðstoð
nema gegn tilslökunum varð-
' andi Berlin. á þeim tíma, er
Berlínarmálið sé orðið það mál,
sem mest beri á, í bandarísk-
sovézkui í samkomulagsumleit-
unum.
í raun réttri hafi Ulbricht rétt
Bandaríkjamönnum nýja lyfti-
stöng í starfinu við ruðning
brautar að samkomulagi um
Berlín með því að snúa sér með
beiðni um aðstoð til síns svarn-
asta fjandmanns — Adenauers.
VEIKLEIKAMERKI
Fréttaritarinn segir augljós veik-
leikamerki í efnahagskerfi Austur-
Þýzkalands. Framleiðsla sé stöðvuð
á sviði heilla iðngreina. Bifreiða-
framleiðslu verður hætt. Verið geti,
segir fréttaritarinn, að Vestur-Þjóð-
verja. bjóði aðstoð í miklu minni
stíl en farið er fram á, en Ulbricht
bað um lán sem svarar til 216 millj.
sterlingspunda — sennilega fái
þeir ekki meira en sem svarar til
90 millj. stpd., en þó verði ekki
með vissu um þetta sagt. Utanríkis-
ráðuneytið í Bonn bendir á hinar
stjórnmálalegu hliðar málsins, til-
slakanir verði að koma í stað hjálp
ar, en embættismenn efnahagsráðu
neytisins leggja meiri áheizlu á, að
hjálpa beri þjóðinni og koma i veg
fyrir vaxandi yfirráð 'tússa f aust-
ur-þýzkum iðnaði, er vilji tengj!)
hann algerlega hinum sovézka. —
Vestur-Þýzkaland hafi bér mikið
tækifæri og beri að nota það.
Auk þess eru álaveiðar að byrja f
tilraunaskyni í mörgum héruðum á
Suður og Vesturlandi, allt vestur
að Breiðafirði.
Austur á Lóni og Hornafirði
munu bæði Samband íslenzkra
samvinnufélaga og Loftur Jónsson
beita sér fyrir lagningu á álagildr-
um og er áhugi manna þar mikill
fyrir veiðunum. Þá hefur SÍS beitt
sér fyrir tilraun með miklu víð-
tækari álaveiði, en í næsta mánuði
opnar SÍS fullkomið álareykhús í
Hafnarfirði og mun fullverka álinn
þar.
I vor eru álagildrur lagðar i
Dyrhólaós í Mýrdal og Holtsós und
ir Eyjafjöllum og hollenzkur ála-
veiðimaður Siwertsen að nafni fer
nú um Mýrar og Staðarsveit á Snæ
fellsnesi til að kenna mönnum
meðferð álagildra. Er áhugi all
misjafn, þar sem mannekla er á
bæjum, en víða eru þó bændur
sem vilja reyna þessa tekjuleið og
brjóta þannig ísinn.
Að þessu sinni er ekki vitað til
að neinar tilraunir verði gerðar
til að flytja ál lifandi út með
flutningsskipum.
Menzis forsætisráðherra Ástr-
alíu er sagður ætla að bjóða
Elisabetu drottningu i heimsókn
til Ástraliu.
Kjamorkus'LÖð til raforkufram-
ieiðslu í Hunterston I Ayrshire,
Skotlandi. Kostnaður varð 63
millj. stpd., en hefði ekki átt
að fara frain úr 37 milljómim.
Gaitskell leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar hefur borið fram fyr-
irspurn i neðri málstonw.rJ.
Landbúnaðarverkaircnn of; ðn-
aðanncnn í Fra/.kiand' bafa
fergið 2.í% kaupíiæ’ikv.n.