Vísir - 01.06.1962, Side 16
í gær tók varðskipið Óðinn
brezkan togara að ólöglegum veið
um innan fiskveiðilandhelginnar
við Stokksnes á Austurlandi.
Togari þessi heitir Ross Stalker
og er frá Grimsby með einkennis-
starfina GY-527. Reyndist hann
vera um eina sjómílu fyrir innan
fiskveiðitakmörkin. Brezkt eftir-
litsskip kom á staðinn og fram-
kvæmdi mælingar.
Eftir það sigldi Óðinn með tog-
arann til Eskifjarðar og kom
þangað í morgun.
Skemmtun
D-listans
áskrifendur
u Eitt þúsund og fimm nýir áskrifendur bættust í hóp
þeirra, sem kaupa Vísi í maí mánuði. Er það mjög góð-
ur árangur, en á annað þúsund höfðu bætzt í hópinn í áskrif-
endasöfnuninni, sem fram fór í marz-apríl. Hafa því nokkuð
á þriðja þúsund Reykvíkingar gerzt áskrifendur að Vísi frá
áramótum.
u Eftir 10 daga verður í fyrsta sinn dregið í hinu nýja
áskrifendahappdrætti Vísis. Allir skuldlausir áskrifendur
eru þátttakendur, gamlir og nýir, og gildir mánaðarkvittun
sem happdrættismiði. Vinningurinn er sófasett. Síðan verð-
ur dregið mánaðarlega í happdrættinu.
Áskrifendasöfnunin heldur áfram næstu vikumar. Hafið
þér athugað hvað miklu þægilegra er að fá Vísi sendan
heim á hverjum degi? Það er líka miklu ódýrara, en að
kaupa blaðið í lausasölu.
► Siminn er 1-16-60. ^
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
£ Reykjavík efnir til kvöldfagnaðar
í Sjálfstæðishúsinu, Hótel Borg,
Lidó og Glaumbæ í kvöld kl. 21.00
fyrir starfsfólk D-listans við borg-
arstjórnarkosningarnar í Reykja-
vik.
Stutt ávörp verða flutt á öllum
stöðunum. I Sjálfstæðishúsinu og
Hótel Borg mun Kristinn Hallsson
syngja einsöng og Gunnar og Bessi
flytja skemmtiþátt. I’ Lidó og f
Glaumbæ mun Erlingur Vigfússon
syngja einsöng og Róbert og Rúrik
flytja skemmtiþátt. Loks verður
stiginn dans til kl. 1 eftir miðnætti.
Aðgöngumiðar verða afhendir £
skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Sjálfstæðishúsinu frá kl. 1 e. h. til
kl. 7 e. h. í dag.
Séð yfir mannfjöldann við skólaslitsathöfnina í Laugardalsvelli í gær. — Skólanemendur hafa raðað sér upp á leikvanginum.
Skólum slitið á veglegri
sumkomu á Luugurdulsvelli
í gær fóru fram á Laugardals-
velli sameiginleg skólaslit allra
15 barna og unglingaskólanna i
Reykjavík. Var hátíð þessi haldin
í tilefni þess að hundrað ár eru lið
Iðnaðarbankinn
í nýju húsi
1 morgun opnaði Iðnaðar-
bankinn afgreiðslu í hinu nýja
húsi sinu í Lækjargötu 10, en
bankinn hefur þau ár, sem hann
hefur starfað, verið í Nýja Bíó
í Lækjargötu. — Nú fær hann
miklu rýmra og betra húsnæði.
Verður afgreiðslusalur á götu-
hæð, á 2. hæð verður salur fyr-
ir bókhald, biðstofu og skrif-
stofu bankastjóra og aðalbók-
ara auk fundaherbergis banka-
ráðs.
Þrjú ár eru nú liðin síðan
smíði iðnaðarbankans hófst
Halldór H. Jónsson arkitekt
teiknaði húsið en yfirsmiður var
in siðan samfelld barnakennsla
hófst í Reykjavík 1862.
Hópur baina og unglinga úr öll-
um þessum skólum gekk í skrúð-
göngu inn á íþróttaleikvahginn.
Jón Bergsteinsson bygginga-
meistari.
Bankastjóri Iðnaðarbankans
er Guðmundur Ólafs, skrifstofu-
stjóri er Jón Sigtryggsson og
aðalgjaldkeri Jón Bergmann, 28
rnanns star/a við bankann. Það
er hlutverl; Iönaðarbankans að
styðja iö; .8 og iðju lands-
manna, >:a jafnframt annast
hann alla venjulega bankaþjón-
unstu fyrir almenning.
Ljósmyndari Vísis tók þessa
mynd í morgun af afgreiðslusal
Iðnaðarbankans þegar hann var
opnaður í morgun. Var strax ös
í bankann í hinu nýja húsnæði.
Sjást hér gjaldkerar og við-
skiptavinir framan við af-
greiðsluborð.
Tókst athöfn þessi mjög vel, var
fjölmenn og virðuleg. Fyrir skrúð-
göngunni gekk skátahópur sem bar
fána, en siðan komu skólanemend-
ur og báru fyrir sér merki skóla
sinna. 1,1 ’ ' ‘
Hestar og bifhjól.
Tákn gamla og nýja tímans var
sýnt við hátíðina, komu fyrst börn
á hestum inn á leikvanginn og
táknuðu þau árið 1862 þegar barna
fræðslan hófst. Á eftir þeim óku
drengir á bifhjólum hring umhverf
is leikvanginn og voru þeir tákn
nýja tímans.
Á hátíð þessari töluðu Gylfi Þ.
Gislason, menntamálaráðherra og
sr. Bjarni Jónsson vígslubiskup.
Guðmundur Jónsson söng og Páll
ísólfsson stjórnaði fjöldasöng barn
anna. Loks sleit Jónas B. Jónsson
öllum skólunum og bað viðstadda
að hrópa ferfallt húrra fyrir
Reykjavík.
Undirstaða framfaranna.
Gylfi Þ. Gíslason, menntamála-
ráðherra gerði í ræðu sinni saman
burð á ástandinu á Islandi fyrir
100 árum og nú. Árið 1862 voru
íslendingar þegnar annars ríkis,
fátækir, hnfpin þjóð í vanda. í dag
eru íslendingar sjálfstæð þjóð og
velmegun ríkir hér. Ræddi hann
um að það væru skólárnir og
menntunin, sem ættu mestan þátt
í þeim framförum sem orðið hefðu.
Menntunin er meginþáttur £ þeirri
þrotlausu baráttu sem þjóðin háði
fyrir sjálfstæði sínu, liður í varð-
veizlu íslenzkrar menningar. Hann
brýndi fyrir nemendum að sam-
eina með sér hinar fornu dyggðir
vaskleika og drengskap og hug-
Framh. á 5. síðu
1000 nýir
VISIR
Föstudagur 1. júní 1962,
Togari tekinn
i t