Vísir - 05.07.1962, Qupperneq 10
/0
VISIR
sSmSnííðiíí
Hildegaard Knef hin heims-
fræga þýzka kvikmyndaleik-
kona og enski kvikmyndaleik
arinn David Cameron voru
um helgina gefin saman í
hjónaband f þorpinu Parcha f
Suður-Þýzkalandi. Fjöldi ljós
myndara safnaðist f kring-
um, en fáum hafði verið boð-
ið til athafnarinnar.
stefnt
DEAN MARTIN hefur fengið
stefnu frá kvikmyndafélaginu
20th Century Fox. Félagið
krefst stórfelldra skaðabóta af
honum vegna þess að hann neit-
aði að Ieika í kvikmyndinni
„Something has got to give“
á móti Lee Remick, eftir að
Marilyn Monroe hafði verið rek-
in úr starfi.
meiddist
ANITA EKBERG meiddist illi-
Iega á fæti og varð að skera
í ilina á henni. Hún hafði verið
í tízkubúð f Rómaborg að máta
kjóla og gekk berfætt um gólf-
ið, þegar saumnál stakkst fast
upp í ilina á henni og brotnaði.
t
sumarfrí
AMINTORE FANFANI forsætis-
ráðherra ítalfu hefur ákveðið að
setja nýjar reglur um sumarfrí
ítalskra embættismanna. Héðan
í frá fá þeir aðeins þriggja
vikna sumarfrí en hafa allt að
þriggja mánaða frí á ári.
V
smjörduft
PAUL HANSEN heitir dansk-
ástralskur vísindamaður, sem
iiefur fundið upp aðferð til að
breyta smjöri í duft. Kemur það
innan skamrns á markaðinn og
verður selt eins og mjólkurduft.
Þannig er hægt að geyma það
ótakmarkaðan tíma.
í Bandaríkjunum voru á sl.
ári send 250 þúsund jólakort
og önnur heillaóskabréf til
hunda.
sykursýki
NASSER forseti Egyptalands
þjáist af sykursýki. Hann leitaði
eftir lækningu hjá sykursýki-
sérfræðingi í New York, sem er
af Gyðingaættum. Læknirinn
neitaði að taka þennan mesta
fjandmann Gyðinga til meðferð-
ar.
giftist
MOUNE SOUVANNA PHOUMA
dóttir hins nýja forsætisráð-
herra Laos, giftist við hátíðlega
brúðkaupsathöfn í St. Pierre de
Chaillot kirkjunni f París fyrir
skömmu. Brúðguminn er fransk
ur aðalsmaður að nafni Hubert
de Germiny greifi.
V
veiktist
EDWARD G. ROBINCDN 68 ára
gamall kvikmyndaleikari, sem
frægur hefur orðið fyrir að leika
harðskeytta karla veiktist
skyndilega er hann vann við upp
töku kvikmyndarinnar Sammy
Going South f fjallshlíðum Kili-
manjaro-fjalls í Afríku. Hann
fékk hjartaáfall og var fluttur
í skyndi í sjúkrahús í Nairobi.
Hann var sár og reiður yfir
þessum veikindum og hrópaði
úr sjúkrarúminu: „Á allri minni
lífstíð hef ég aldrei tafið kvik-
myndaupptöku, ég mæti til
vinnu á morgun“. En læknar
ráðlögðu honum að hvíla sig í
þrjár vikur.
í Stokl^hólmi fékk lögreglan
bréf frá Iækni í Hong Kong.
Hann sagðist dást að sænsk-
um konum og bað lögregluna
um að útvega sér eina
sænska sem eiginkonu. Þetta |
komst í fréttir í sænskum
blöðum. 13 konur sóttu um
giftinguna. Hong Kong lækn-
irinn valdi eina úr hópnum.
Hún er nú gift honum og far-
in til I-Iong Kong.
fluttur
ART BUCHWALD hinn frægi
Parísar-fréttamaður New York
Herald Tribune, sem hefur dval-
izt í París í 15 ár og skrifað
hvem grínþáttinn á fætur öðr-
um um lifið í Evrópu mun nú
flytja til Washington og byrja
að gera gys að löndum smum
heima í Bandaríltjunum.
f
æviminningar
RAOUL SALAN hershöfðingi
set situr í fangelsi í París hefur
gert samning við Fayard-bóka-
útgáfuna um útgáfu æviminn-
inga. Fyrsta bindið á að kallast
„Sjö ára stríðið í Indó-Kína“.
í því mun Salan m. a. birta
mörg bréf sem fóru á milli
hans og de Gaulles, þegar Sal-
an barðist í Indó-Kína.
„jazz“
MARGRÉT PRINSESSA af
Snowdon hafði nýlega faliizt á
kastali
ELISABETH ARDEN hinn
heimsfrægi fegrunarsérfræðing-
ur keypti sér kastala í írlandi
sem er 70 ára gamall.
í Seoul höfuðborg Suður-
Kóreu dæmdi dómarinn Choe
Man-haeng í 5196 málum á
12 kist. Hann dæmdi 4534 af
hinum ákrerðu seka og rukk-
aði inn 370 þúsund krónur
í sektum.
það að leika jazz-lög á píanó í
fínu samkvæmi hjá Ted Leather
einum þingmanni íhaldsflokks-
ins. Hún hætti þó við þessa fyr-
ir ætlun, þegar hún heyrði að
jazz-stjörnur eins og Chris Bar-
ber og Johnny Dankorth yrðu
meðal veizlugestanna. Hún
unni ekki við að leika jazz, þeg-
ar „snillingar“ í þeirir list
hlustuðu á.
t
ökugikkur
STIRLING MOSS, brezki öku-
gikkurinn sem slasaðist er hann
ók út af Goodwood akbrautinni
á ofsahraða hefur síðan ivalizt
tvo mánuði í sjúkrahúsi. Hon-
um er nú að batna og hefur
hann strengt þess heit, að fyrsta
verk hans er hann fer af sjúkra-
húsinu, verði að fara á Good-
wood-brautina og slá það
brautarmet sem hann setti þar
160,5 km meðalhraði á hring.
aðdáandi
ALEXANDRA PRINSESSA af
Kent, (en hún og Elisabet
drottning eru bræðradætur) er
mikill aðdáandi Frank Sinatra.
Nýlega var Frank á ferð í Lond-
on. Alexandra heimsótti hann
á hótelið. Frank heilsaði henni
með því að hrópa „Hiya
honey“ (Halló elskan). Hún sat
í hálftíma á tali við Frank og
hlýddi hjá honum á nýjustu
Frank Sinatra plöturnar.
Fimmtudagur 5. júlí 1962.
Fimmti dogur móts norrænna
íþróttafréttnritara í Reykjvik
Þann 16. júní ræddu fulltrúar um efnið „Á að banna hnefa-
leika?“ Einar Bjömsson las þýðingu á mikilli grein Thorolfs
Smith úr íþróttablaðinu frá 1955, þar sem hann gerir hnefa-
Ieikana að umtalsefni og ræðst harkalega að þeim og telur
það skyldu að afnema þá þá þegar.
Evvald Andersen frá blaði danska íróttasambandsins taldi
að í grein Thorolfs væri um mikinn misskilning og fáfræði
að ræða því takmörkin milli atvinnumennsku væm mjög
glögg, t. d. væri það næsta fátítt að í áhugamennsku væm
menn slegnir út.
Margir ræddu þetta mál og voru flestir þeirrar skoðunar
að banna bæri atvinnuhnefaleika, en áhugahnefaleikar leyfðir.
Margir vom þó með algeru banni líkt og við íslendingar
höfum þegar komið á hjá okkur.
Síðar þennan laugardag héldu „úrvalsmenn“ mótsins ásamt
þeim, sem ekki gátu talizt úrvalsmenn í knattspyrnu uppi
í Mosfellssveit og var þar háður landsleikur í knattspymu1
milli íslands og úrvals hinna Norðurlandanna og er þess
skemmst að minnast að ísland vann þama sinn stærsta og
eina sigur í sumar í leik við erlend lið og var hann ekki
minni en 4:1, sem þótti verðskuldað.
íþróttafélag Reykjavikur bauð svo þreyttum og hungruðum1
knattspymuhetjunum og áhorfendum til kvöldverðar í hinn glæsi
lega skíðaskála sinn í Hamragili við Kolviðarhól. Var þarna borið
fram „kaldasta kalt borð“ sem menn höfðu séð, svo notað séu
orð eins hinna erlendu fulltrúa.
Stjórn ÍR og ýmsar frægustu „stjörnur“ félagsins, formnar og]
nýjar voru þarna kynntar fyrir mönnum og var kvöldstundin í ÍR-f
skálanum hin ánægjulegasta.
Þýðir Hrafnkötlu —
Framh. af 7. síðu.
ar Nordal um söguna. Ritgerð
mín mun koma út í Belgíu á
næstunni, en auk þess hefi ég
þýtt Hrafnkötlu á frönsku og
mun hún koma út mnan j
skamms.
Tungumálanám
raunvfsindamanna.
Þegar Pétur hóf kennslu í
sænsku við Liegeháskóla var
það fyrsta nútíma Norðurlanda-
málið, sem kennt var við þann
háskóla. Lítilsháttar kennsla er ;
veitt í forníslenzku við háskól- j
ann og er það í sambandi við
kennslu í fornensku.
Auk kennslu í sænsku eegnir
Pétur Halleux störfum, sem
yfirmaður námskeiðs í 'ungu-
málum, sem háskólinn hefir
stofnað til fyrir stúdenta, sem
lesa aðrar greinar en tungumál :
að aðalfagi. Læra þar t.d. 'ækn !
ar og verkfræðir.gar tungumál !
svo sem ensku og rússnesku, !
er þeir hafa gagn af sökum j
aðalstarfs síns. Er þetta nýmæli
en hefir gefizt mjög vel og eru j
6 tungumál kennd við dei'.dina.
Starfa um 20 kennarar við 1
þessa sérstæðu tungumáladeild j
en kennsla er þar ókeypis.
Einnig er þar kennd franska
fyrir erlenda stúdenta og er
kennslugjaldið afar lágt.
Málafjöldi.
Talið berst að fyrirlestrmum
á morgun og Pétur bendir á að
í Belgíu eru töluð tvö tungu-
mál. Hollenzka f norðurhluta
landsins en franska í suðurhlut
anum. Auk þess eru svo mál-
lýzkur, flæmska i norðurhlutan-
um og vallónslca sunnar í land
inu. Belgía liggur þannig á
tungumálamörkum, en þau
mörk fylgja ekki hinum póli-
tízku landamærum. Auk þess
er enn að finna í norð-vestur-
hluta landsins leifar rómversk-
unnar og norðan og austan
koma þýzk áhrif í málið Hin
mörgu tungumál og mállvzkur
skapa vandamál í daglegu h'fi.
sem fyrirlesturinn mun gera
skil. En auk þess er fróðlegt
að rekja hinar ýmsu breyting-
ar sem orðið hafa á tungumál-
unum í landinu fram til þessa
og orsakir þeirra.
Undanfarið hefir Pétur rialle-
ux dvalizt að Holti undir Eyja-
fjöilum, í garði séra Sigurðar
Einarssonar en þeir hittust á
norræna þinginu í Cambridge
1956.
— Það er mikið ævintýri að
koma til íslands, segir Pétur að
lokum. Og sérstaklega að hitta
vini sína sem ég nefndi Og
þá ekki síður menn eins og
prófessor Sigurð Nordal og Ein-
ar Ólaf Sveinsson — menn sem
hvarvetna eru kunnir meðal
fræðimanna á sviði norrænna
fræða og hafa ritað bækur, sem
ávallt munu verða lesnar.
Kvennasíða —
Framh. at 7. síðu.
ættu foreldrarnir alltaf fremur
að reyna að bræða mótþróann
en að berja hann niður.
Þetta er einmitt list, sem
móðir Nonna kann. Daginn eftir
atvikið á rakarastofunni var
Nonni litli úti í sandkassa með
nokkrum fleiri félögum sínum.
Þeir byggðu hús og vegi í sand-
inum og keyrðu bílana sína um
vegina með brummi og vélar-
suði. Það var kominn kaffi-
tími og mamma Nonna kom út
á svalirnar og spurði: —
Hvernig er það hjá byggingar-
meisturunum, hafa þeir engan
kaffitíma?
Nonni kipptist við. — Jú,
þeir hafa kortér í kaffi. Það er
kaffihlé, hrópaði hann til hinna
strákanna og stökk inn.
Fólkið segir að mamma
Nonna kunni að amgangast
börn. Og það er alveg rétt. Hún
sér um það með lagni, að ekki
komi til neinna stórfelldra á-
taka. í stað þess að brjóta vilja
Nonna litla með fyrirskipunum,
boðum og bönnum kann hún að
notfæra sér leik hans til að ná
tilganginum og hún er gaman-
söm. Hún veit að það er ekki
ilgangurinn hjá Nonna með
mótþróanum að gera hana reiða,
heldur er honum aðeins að
vaxa viljakraftur sem hann
kann ekki enn að stjórna.